Frjáls verslun - 01.11.1972, Blaðsíða 13
landhelgisbæklings kosti alls
um 200.000 krónur, en þeir
Verzlunarráðsmenn gera sér
vonir um, að íslenzkir kaup-
sýslumenn, sem fá eintök af
honurn til afhendingar, greiði
eitthvert gjald fyrir, þó að það
sé ekki skilyrði.
TÖLUR UM ÚTFLUTNINGS-
MAGN FISKAFURÐA
Meðal þeirra staðreynda,
sem athygli er vakin á í bækl-
ingi Verzlunarráðs, eru saman-
burðartölur yfir hlutdeild fisks
og fiskafurða i heildarútflutn-
ingi nokkurra þjóða, Þjóðverja-
Breta, Japana, Norðmanna og
íslendinga. Á það er bent, að
heildarverðmæti útflutnings ís-
lendinga 1971 hafi verið 13,175
milljónir króna en þar af hafi
fiskafurðir verið 84,6% eða
11,085 milljónir króna. Freð-
fiskur var 57,2% af heildar-
verðmæti alls fiskútflutnings-
Tiie.Cod
„ And
Common
Sense
ins. Um 86% af hraðfrystu
fiskafurðunum voru flutt út til
Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna, og hafa þeir markaðir
fengið aukna þýðingu síðustu
árin en úr mikilvægi annarra
markaða eins og þess brezka
hefur dregið.
VIÐSKIPTIN VIÐ BRETA
OG ÞJÓÐVERJA
Lögð er áherzla á, að við-
skiptin við Breta og Vestur-
Þjóðverja séu íslendingum
óhagstæð að því leyti, að árið
1971 hafi verið fluttar inn
vörur frá Bretlandi fyrir 2.600
milljónir en útflutningur til
Bretlands hafi á sama ári
numið 1700 milljónum króna.
Árið 1971 fluttum við íslend-
ingar út vörur fyrir 702 millj.
til Vestur-Þýzkalands en keypt-
um aftur á móti af Vestur-
Þjóðverjum fyrir 2.900 millj-
ónir.
Islenzk uppfinning:
Mýtt umferðarskilti
Rafvélavirki í Reykjavík,
Axel Eiríksson, hefur sótt um
einkaleyfi hér á landi á um-
ferðar- og auglýsingaskilti. Er
nú unnið að gcrð eins skiltis
þessarar tegundar fyrir um-
ferðanefnd Reykjavíkur og
verður það sett upp við eina
af merktum brautum, sem ætl-
aðar eru gangandi vegfarend-
um, er þurfa að fara yfir götu.
Skilti þessi eru þannig úr
garði gerð, að inni í þeim er
ljós, en með sérstakri tækní
má framkalla skugga, sem fá
myndina á skiltinu til að
,,hreyfast“. Jón Brynjólfsson,
hefur unnið að þessari upp-
finningu ásamt Axeli og eru
þeir þegar skráðir handhafar
einkaleyfis á þessari gerð
skilta í Danmörku.
„KARLINN" HENDIST
TIL OG FRÁ
Þessi skilti eiga ekki að vera
dýr í framleiðslu en enn er
ekki ráðið hvernig framleiðsl-
unni verður háttað. Er verið
að leita samvinnu við fyrir-
tæki um þau mál. Umferðar-
málayfirvöld í Reykjavík hafa
þó látið gera eitt gangbrautar-
skilti, eins og áður var vikið
að, og mun það verða sett upp
fyrir jól við einhverjar af um-
ferðaræðum borgarinnar. Það
verður frábrugðið öðrum gang-
brautarskiltum að því leyti, að
„karlinn“, þ.e.a.s. tákn gang-
brautarmerkisins, hendist til
og frá og mun þannig vænt-
anlega draga að sér enn meiri
athygli en „félagar hans“ a
þeim skiltum, sem fyrir eru.
Laxveiðin:
ÆfSa að taka upp
net í Borgarfirðinum
Laxveiðin á íslandi hefur
tvöfaldazt á rúmum hálfum
áratug og gera laxveiðimenn
sér góðar vonir um enn betri
árangur á næstu árum.
Fyrir sjö árum veiddust 27
þúsund laxar hérlendis á stöng
og í net, en í fyrra voru
veiddir laxar 62 þúsund. Með
aukinni ræktun og minni
netaveiði líta stangveiðimenn
bjartari augum til framtíðar-
innar en oft áður.
16000 LAXAR í
BORGARFIRÐINUM
í Borgarfirðinum eru uppi
áform um að minnka neta-
veiði um 50% árið 1974 mið-
að við það, sem nú gerist, en
stöngum í laxveiðiám Borgar-
fjarðar verður að sama skapi
fjölgað. Er gert ráð fyrir, að
af þessum aukastöngum gætu
landeigendur fengið inn 60—
70% af kostnaði við að taka
upp netin. Alls munu hafa
veiðzt um 16000 laxar í Borg-
arfirði í fyrra og nam neta-
veiðin um helmingi af þvi
magni. Að meðaltali munu
FV 11 1972
13