Frjáls verslun - 01.11.1972, Qupperneq 15
tJtsýn efnir til Afríkuferðar
Fyrsta hópferð Islendinga á þessar slóðir
Ferðaskrifstofan Útsýn efnir
til hópferðar til Fílabeins-
strandarinnar þann 11. janúar
nk. Er þetta fyrsta hópferð ís-
lendinga á þessar slóðir. Verð-
ur flogið til Kaupmannahafn-
ar með Flugfélagi íslands og
gist þar. Næsta dag er flogið
með SAS, til Abidjan, höfuð-
borgar Fílabeinsstrandarinnar.
Mun hópurinn dveljast næstu
15 daga í Abidjan og á heim-
leiðinni geta farþegar stanzað
í Kaupmannahöfn, London eða
annars staðar í Evrópu.
Abidjan, stendur við sjóinn,
en í nágrenni hennar eru feg-
urstu baðstrendur með hvítum
sandi og pálmagróðri. íbúar
borgarinnar eru um 500 þús-
und, þar af allmargt Evrópu-
búa. Franskra áhrifa gætir
mjög í borginni, sem prýdd er
fögrum görðum og mörgum
nýtízkubyggingum og er oft
kölluð „París Afríku“. Þátt-
takendur í ferðinni munu búa
á Hotel Ivoire, sem er glæsi-
legt nýtízkuhótel í eigu hótel-
hringsins Intercontinental. Það
rúmar 1500 dvalargesti og er
líkast borg út af fyrir sig með
7 veitingasali, spilabanka, næt-
urklúbb, fullkomna aðstöðu til
íþrótta og heilsuræktar, svo
sem stóra sundlaug í garði
með hitabeltisgróðri, íþrótta-
sal með æfingatækjum, keilu-
spil, tennis, útbúnað til sigi-
inga, sjóskíðaiðkana, köfunar
og meira að segja skautaiðk-
ana í stórri skautahöll, að
ógleymdu gufubaði og nuddi.
í hótelinu eru auk þess snyrti-
stofur, banki, fjöldi verzlana
og stórt kvikmyndahús. I borg-
inni er fjöldi skemmtistaða, og
efnt verður til ferða frá
Abidjan til að kynnast nátt-
úrufari landsins og lifnaðar-
háttum innfæddra.
Fílabeinsströndin er rösk-
lega þrisvar sinnum stærri en
ísland, eða 3322 þúsund fer-
kílómetrar og íbúarnir um 4
milljónir. Það er í hitabeltinu
lega þess milli 5. og 10. gráðu
norðan miðbaugs og liggur að
Guineuflóanum. sem skerst inn
í vesturströnd Afríku, vaxið
hitabeltisfrumskógum, kókos-
pálmum og litríku blómskrúði
Árið skiptist í regntíð og
þurrktíð, og varir þurrktima-
bilið frá desember fram í apríl.
Landið var fyrst undir yfirráð-
um Portúgala og síðar Frakka,
en öðlaðist sjálfstæði með lýð-
veldisstjórn árið 1960. Frönsk
áhrif eru áberandi og franska
aðaltungumálið, þótt enska sé
einnig allútbreidd í höfuðborg-
inni Abidjan. Fílabeinsströnd-
in er talið eitt auðugasta ríki
Afríku, enda hefur landið búið
við stöðugt stjórnarfar og frið-
ur ríkt þar um langt skeið.
Hitastig á Fílabeinsströnd-
inni er nokkuð jafnt árið um
kring, meðalhiti 25—27,5° C
og loftslag ákaflega gott um
þurrkatímann með sólskin dag
hvern.
Fjöldi staða veitir mönnum dcegrastyttingu — og jafnvel ágóða-
von.
Hótel Ivoire, nýtízkulegt hótel, sem rúmar 1500 dvalargesti.
FV 11 1972
15