Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1972, Síða 51

Frjáls verslun - 01.11.1972, Síða 51
sem einstakling og útbúa starfs- umhverfi viðkomandi eftir því. Hann hefur hannað þrjár teg- undir af skilrúmum, sem ekki eru full mannhæð á hæð, en tengja má saman eftir þörfum starfsfólksins. Umrædd skil- rúm eru fislétt og breyta má skipulaginu ef starfsfólki fækkar eða fjölgar. Hægt er að raða þeim í lengjur eða láta þau liðast eins og slöngu um skrifstofusalinn, þ. e. a. s. þau geta uppfyllt flest allar kröfur sem um er að ræða á hverjum stað. Skilrúmin eru gerð úr hljóðeinangruðum efnum og litaúrvalið er fjölbreytt og þægilegt fyrir augað. Hljóðeinangruð skilrúm eru ekki ný af nálinni, en þau hafa rutt sér til rúms undan- farið, enda eru þau nú fram- leidd með margs konar nýjung- um. Skilrúmin, sem Hermann Miller hefur hannað, eru þann- ig gerð að allar nauðsynlegar leiðslur eru í þeim, og auk þess má festa við þau skrif- borð, skjalaskápa, teikniborð, sýningarskilti, kortakerfi, síma, skrifstofuvélar af öllum stærð- um og gerðum, og annað eftir því. Öllu þessu má stilla upp eftir þöi’fum og kröfum hvers og eins. DREGIÐ ÚR HÁVAÐA Með tilkomu nýrra og marg- víslegra skrifstofutækja hefur hávaði á vinnustað aukizt verulega. Stöðugt bætast við nýjar ritvélar, götunartæki, telextæki, fjölritunartæki, kall- tæki og margt fleira. Tilkoma umræddra skilrúma 'hefur hjálpað til við að draga úr þessum hvimleiða hávaða, en þau duga samt ekki fullkomn- lega til þess að gleypa hann allan. Of mikill hávaði á vinnu- stað skapar taukaveiklun og minni afköst starfsfólks, en með tilkomu nýrrar hljóðein- angrunar í loftum, gólfteppum, gluggatjöldum og húsgögnum í skrifstofum nútímans, hefur ástandið batnað til muna. Það er ekki langt síðan, að aðeins forstjóraskrifstofan var lögð gólfteppum, en á undanförnum árum hefur kom- ið fjölhreytt úrval af ódýrum og sterkum teppum úr gervi- efnum á markaðinn. Þessi teppi má hreinsa á einfaldan og ódýran máta. Þá hafa teppaflísar einnig rutt sér til rúms í skrifstofum, vegna þess að t. d. er einfalt að taka upp eina og eina teppaflís ef lag- færa þarf eða breyta leiðslum. BÆTTUR LJÓSAÚT- BÚNAÐUR Hinar rúmgóðu og opnu skrifstofur hafa stórbætt birt- una á vinnustað, og 'þar sem skammdegi ríkir hluta úr ár- inu, eins og t. d. hér á landi, er bæði einfaldara og ódýrara að lýsa skrifstofusali en lítil herbergi. Þar til fyrir fáein- um árum þótti það til að mynda gott í evrópskum skrif- stofum að birtan í skrifstof- um væri 4-500 lux, en með bættu skipulagi hefur birtan aukizt í 7-800 lux og víða er hún komin í 1000 lux, en þegar hún er orðin svo mikil er hún jafnframt notuð til hit- unar, eins og t. d. í Norræna bankanum í London. AUKINN VALKOSTUR Hvernig fer framkvæmda- stjórinn að því að velja hin réttu húsgögn nú á dögum? Hvaða aðferð á hann að nota til þess að velja skrifborð og stóla? Hvaða skjalaskápar eru beztir fyrir fyrirtækið? Hvaða skrifstofutæki þarf hann til viðbótar til þess að auka hag- kvæmnina? Þessum spurningum er ekki unnt að svara fyrr en búið er að kanna þarfir viðkomandi starfsmanna. Ekki þurfa t. d. allir forstjórar risastór skrif- borð — sem oft er liður í sýndarmennsku. Oft á tíðum þarf einkaritarinn, sem er með ritvél, nokkra síma, kalltæki, skjalavörzlu o. fl., stærra boi’ð en forstjórinn. Framleiðsla skrifstofuhús- gagna er nú að mestu byggð á þörfum starfsfólks, og sem dæmi má nefna, að nú er á boðstólum skrifborð með löpp- um, sem hækka má og lækka eftir þörfum starfsfólksins og eins ef gólf eru mishá. Innan- húsarkitektar eru loksins farn- ir að staðla skúffur og skápa, sem einfalda geymslu á bréfs- efni og skjölum. Mikil framför hefur orðið í gerð skrifstofu- stóla og segja má að nú séu til stóiar, sem hæfa öllum starfsnxönnum. SKJALAGEYMSLA Enn hefur ekki fundizt við- unandi lausn á skjalageymsl- um, en samt hefur orðið tals- verð framför að því leyti und- anfarin ár. Á boðstólum eru skjalaskápar, sem eru einfld- ari í rneðförum en verið hefur og taka minna rúm en gömlu skáparnir gerðu. Auk þess er auðveldara að raða og finna skjöl í skápnum. Stærri fyrir- tæki kaupa rafknúnar skjala- geymslur, sem hægt er að stjórna með hnöppum. Slíkt geymslukerfi er dýrt, en það þarf færri starfsmenn við skjalavörzlu í staðinn og þess vegna er það hagkvæmt í rekstri. Þar að auki þurfa ekki eins margir að meðhöndla skjöl, sem innihalda leyndar- mál viðkomandi fyrirtækis. HIÐ SKRIFAÐA ORÐ Þrátt fyrir ört vaxandi hlut- verk simakerfisins í viðskipta- lífinu, þá er hið skrifaða orð enn mjög mikilvægt. Þeir sem starfa í viðskiptalífinu kann- ast við setninguna: „Viltu ekki senda mér bréf varðandi þetta atriði“. Það er ekki full- nægjandi að leysa öll mál símleiðis. Tala viðskiptabréfa minnkar ekkert, heldur virðist hún auk- ast jafnt og þétt. Til þess að bréf nái tilhlýðilegum árangri í viðskiptaheiminum, þarf það að veru vel úr garði gert, að sögn sérfræðinga. Það fer dýr- mætur tími í bréfaskriftir í hverju fyrirtæki. sérstaklega þegar viðkomandi þarf að skrifa mörg bréf með sama textanum eða mjög svipuðum texta. Þetta vandamál hafa ski’ifvélaframleiðendur reynt að leysa. Bandaríska fyrirtæk- ið IBM hefur sent frá sér nýtt kerfi „The Magnetic Word Storage“. Hið nýja kerfi gerir vélritunarstúlkum kleift að vélrita viðskiptabréf inn á þar til gerð segulbönd, sem einfalt er að leiðrétta ef þess þarf með, eða breyta uppsetningu bréfanna. Þegar bréfið er komið inn á bandið, þá er það tengt við ritvél, sem getur skrifað viðstöðulaust, eins rnörg eintök af við- komandi bréfi og þörf er fyrir. Þannig verða öll bréfin frum- skrift í útliti. Þessi gerð rit- véla getur prentað 180 ovð á mínútu. Breyta má textan- um, hvenær sem er með lítilli fyrirhöfn. Fleiri gerðir ritvéla má telja hér, en það yrði of langt mál að þessu sinni. Q FV 11 1972 51
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.