Frjáls verslun - 01.11.1972, Blaðsíða 66
OSRAM
ttitttt** ttt**?*
Þotur Flugfélagsins eru útbúnar samhliða til farþega- og frakt-
flutninga. Hér er verið að hlaða vörum um borð í F.I. þotu á
Heathrowf lugvelli.
aura, sem þeim eru fengnir i
hendur. Ég tel hins vegar
að það sé brýn nauðsyn fyrir
okkur að vinna að ferðamálurn
skv. langtíma áætlunum og
Sameinuðu þjóða-áætlunin, sem
nú er verið að gera, mun án
efa verða okkur til mikils
gagns.
Það er eitt mál, sem ég hef
mjög mikinn áhuga á og það
er að við nýtum félagsheimilin
okkar miklum mun betur sem
gistihús, en við höfum gert. í
mörgum tilfellum gætu sveit-
arfélögin, með því að leggja
fram nokkurt fjármagn, skapað
góða og viðunandi gistiaðstöðu.
Hér á ég við að byggja svefn-
skála nokkuð frá félagsheim-
ilinu, til að sveitungar geti eft-
ir sem áður nýtt félagsheim-
ilin til eigin þarfa. Þetta yrði
kallað félagsheimili—mótel. Ég
er þess fullviss að slík fjár-
festing myndi fljótt skila arði.
Hringvegurinn umhverfis land-
ið kemur til með að valda bylt-
ingu í ferðamálum á íslandi og
jafnframt tilkomu hans þyrftu
að vera félagsheimili—mótel
með reglulegu millibili á leið-
inni.
Það eina sem ég gæti
kannski sagt að væri neikvætt,
er að allir vilja allt fyrir alla
gera og stundum lofa menn
of miklu og geta ekki staðið
við loforðin. Én þetta lagast
ásamt öðru, er við öðlumst
meiri reynslu á sviði ferða-
mála.
BJARTIR TÍMAR
FRAMUNDAN
FV: Þú ert bjartsýnn mað-
ur og hefur greinilega mikla
trú á flugfélaginu þínu og
fósturjörðinni.
Jóhann: Er ástæða til ann-
ars? Við hér í London höfum
á afbragðsstarfskröftum að
skipa svo og F.í. í heild. Við
höfum öll trú á landinu og
því sem við erum að selja og
undirtektirnar og árangurinn
sannfæra okkur um að sú trú
sé fyllilega réttlætanleg. Ég tel
að bjartir tímar séu framund-
an hjá Flugfélagi íslands og
íslenzkum ferðamálum.
En ég vil að lokum segja
að ef við íslendingar ætlum
okkur að gera landið okkar að
ferðamannalandi, megum við
aldrei gleyma að tryggja það
að ferðafólkið fái peninga
sinna virði á íslandi.
• a
BILA-
PERUR
Heildsölubirgðir
ávallt fyrirliggjandi
Jóh.Ólafsson&Co.,hf.
Hverfisgötu 18, sími 26630
OSRAM
VÍN SKAL
TIL VINAR
DREKKA
Fróðleikur um vín
og vínnotkun.
Fæst í næstu
bókahúð.
66
FV 11 1972