Frjáls verslun - 01.09.1973, Blaðsíða 11
Meðan Joseph Luns, aðal-
framkvæmdasijóri At-
landshafsbandalagsins
var hér í boði ríkisstjórn-
arinnar á dögunum,
gengu þrír alvörukomm-
ar á hans fund og af-
hentu mótmælabréf
vegna heimsóknarinnar.
Fulltrúar kommanna
voru þau Adda Bára, að-
stoðarráðherra, Jón
Snorri Þorleifsson og
Ragnar Arnalds yfirmað-
Stofnunarinnar. Þau
lieilsuðu Luns að íslenzk-
um sið með handabandi,
en Luns, sem er sannur
evrópskur heiðursmaður
kyssti tvisvar á hönd
Öddu Báru, með þeim
afleiðingum að hún sagði
ekki meira þann daginn.
Ragnar Arnalds afhenti
mótmælabréfið og er
sagður hafa tekdð skýrt
fram að þetta væri: „Not-
hing personal, Mr. Luns.“
— ★ —
Vinir Sovétríkjanna,
sem sæti eiga í ríkis-
stjórninni, létu þau fyrir-
mæli berast til rannsókn-
arlögregluirnar í Hafnar-
firði að hún skyldi hætta
öllum rannsóknum við-
víkjandi njósnatækjunum
sem fundust í Kleifar-
vatni. Ástæðan: Sannleik-
urinn í málinu er óþægi-
Jegur fyrir samskipti
fslands og Sovétríkjanna.
— ★—
Verkalýðsfélögin eru
nú í óða önn að undirbúa
kröfugerðir sínar. Heyrzt
hefur, að félag í prent-
iðnaði ætli að koma
með nýjung í kröfugerð
fyrir utan þær hefbundnu
kröfur um hækkun á
skala og fleiru. Er þessi
nýja krafa um, að fyrir
tækin greiði auk orlofs
sérstaka grciðslu kr. 45
þús. á hvern mann sem
eyðslueyri. Rökstuðning-
ur við þessa kröfugerð er
að það kosti pendnga að
fara í frí.
Forráðamenn Flugleiða
h.f. hafa undanfarið verið
að skoða Hótel Esju með
kaup í huga. Sennilega
verður af þessum kaup-
um innan skamms en for-
ráðamönnum félagsins
finnst þó vera gert ráð
fyrir of hárri útborgun
af hálfu eigenda, því að
þar er víst um að ræða
einar 60 milljónir. Aðrir
hóteleigendur líta þetta
skref mjög alvarlegum
augum og tala um hótel-
einokun flugféJaganna.
— ★ —
Þeir, sem til þekkja
telja það víst ekki nein
óvænt tíðindi, að
starfsmenn rússneska
sendiráðsins smygli hér
inn senddtækjum til að
koma frá sér leynilegum
upplýsingum eða hlust-
isnartækjum. Annað slag-
ið kemur rússneskur
sendimaður frá Kaup-
mannahöfn í flugvél
hingað til lands og kaup-
ir þá venjulega upp tvö
sæti við hliðdna á sér
fyrir hlaða af pinklum
sem vandlega er breitt
yfir. Til Kaupmannahafn-
ar koma aðrir sendimenn
með þessa pakka frá
Moskvu. Þegar komið er
til Keflavíkurflugvallar,
renndr bíll frá rússneska
sendiráðinu sér upp að
flugvélinni og þá er góss-
ið borið um borð í hann
um leið og farþegar og
áhöfn hafa horfið af
flugvélastæðinu.
★ —
Auglýsingastofur standa
i stríði við Sjónvarpið um
þessar mundir og er haft
fyrir satt, að þær ætli að
beita sér fyrir því að
auglýsendur sniðgangi
Sjónvarpið eftir áramót.
Ástæðurnar eru sagðar
þær, að auglýsendur fái
ekki þá tæknilegu þjón-
ustu hjá Sjónvarpinu,
sem þeir óska, og enn-
fremur að sjónvarpsdag-
skráin þyki heldur leið-
inleg orðin og því álita-
mál, hvort peningar, sem
varið er í auglýsingar
hjá því, skili sér nokkurn
tima aftur.
— ¥
Frá Washington hafa
borizt mjög áreiðanlegar
iréttir um, að hinn nýi
ntanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, Hcnry Kissing-
er, hafi verulegan áhuga
á að vinna að lausn á
deilum Breta og íslend-
inga. Auk þess vill hann
leysa varnarsamningsmál-
ið á þann hátt að menn
getd vel við unað. Dipló-
matar þakka heimsókn
Kissingers til íslands í
júnf s.l. þennan áhuga
ráðherrans, en hér sat
hann fund Pompidous og
Nixons.
— ★ —
Einar Ágústsson, utan-
ríkisráðherra, er á förum
til Moskvu í opinbera
heimsókn og verður fyrir-
komulag hennar eitt
helzta umræðuefni hans
og Gromykos, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna,
er þeir hittast á þingi
Sameinuðu þjóðanna.
FV 9 1973
11