Frjáls verslun - 01.09.1973, Blaðsíða 44
HÓTEL AKUREYRI,
Hafnarstræti 98, Akureyri.
19 gistiherbergi eru á hótelinu. Þrjú þriggja
manna, átta tveggja manna og þrjú eins manns.
Morgunverður er eina máltíðin, sem fáanleg
er á hótelinu og er verðið um 200 krónur.
Hótelið er staðsett í miðbæ Akureyrar og er
stutt að fara í verzlanir. Þá er bílaleiga á staðn-
um. Loks má geta þess að sjónvarp er á hótelinu.
HÓTEL VARÐBORG,
Geislagötu 7, Akureyri.
28 gistiherbergi eru á hótelinu og eru þau öll
tveggja manna. 8 herbergi eru með baði, einnig.
eru herbergin leigð sem eins manns herbergi.
Allur algengur matur er fáanlegur á hótelinu
og kostar morgunverðurinn 210 krónur, hádegis-
verðurinn er frá 390 krónum og kvöldverðurinn
er frá 565 krónum, og er það matur, súpa, eftir-
réttur og kaffi.
Sjónvarp er á hótelinu og ennfremur er kvik-
myndahús við hliðina á því.
HÓTEL HÚSAVÍK,
Garðarsbraut 10, Húsavík.
Fjöldi gistiherbergja eru 34 og eru öll 2ja
manna. 24 herbergi eru með baði, en 10 án
baðs.
Allur matur er fáanlegur á hótelinu og er verð
á morgunverði frá krónum 210-275. Verð á há-
degisverði er frá krónum 300-700.
Stutt frá hótelinu eða 2-300 metra frá því
er mjög gott skíðaland. Þá er ennfremur sjón-
varp á hótelinu og hægt er að fá bíla til leigu.
Sundlaug með gufubaði er á staðnum.
HÓTEL VALASKJÁLF,
Egilsstöðum.
Hótelið hefur til umráða 20 gistiherbergi, þar
af eru 17 tveggja manna og þrjú stærri, svokölluð
fjölskylduherbergi.
Á hótelinu er seldur allur matur. Morgunverð-
ur er hlaðborð og kostar 210 krónur. Hádegis-
verður er frá krónum 250, en auk þess er hægt
að fá ýmsa ódýra grillrétti, sem eru á boðstólum
allan daginn. Kvöldverður er frá krónum 300.
í húsinu er bæði sjónvarp og kvikmyndahús.
HÓTEL ASKJA,
Eskáfirði.
Herbergjafjöldi á hótelinu er 6 og eru þau öll
tveggja manna með sturtum og handlaugum.
Allur íslenzkur matur er fáanlegur á hótelinu
og er morgunverður frá 140 krónum, hádegis-
verður frá 240 krónum, (fiskur ásamt súpu) og
frá 290 krónum (kjötmáltíð).
HÓTEL HÖFN,
í Hornafirði.
40 gistiherbergi eru á hótelinu og 68 rúm. 28
tveggja manna herbergi og 12 eins manns. 10
herbergi eru með sturtu og baði.
Allur venjulegur matur fæst á hótelinu og er
verðið á morgunverðinum 250 krónur, hádegis-
verðurinn frá 350 krónum og kvöldverður frá
550 krónum. Hótelið hefur vínveitingaleyfi 4
mánuði ársins. Gufubaðstofa er á hótelinu.
Sjónvarp er á hótelinu, og ennfremur er bíla-
leiga á staðnum.
Nesprent
NESGÖTU 7, N ESKAU PSTAÐ
PÓSTHÓLF 65 SÍMI 97-7189
Framkvæmdastjóri: Guðmundur Haraldsson.
Prentum blíið, bækur, timarit og hvers konar
smáprent, svo sem eyðublöð íyrir banka, verzl-
anir, skrifstofur, viðskipta- og framleiðslufyrir-
tæki.
44
FV 9 1973