Frjáls verslun - 01.09.1973, Blaðsíða 43
Gisfing — Ráðstefna
UPPLYSINGAR FYRIR ÞÁ, ER HYGGJAST FERÐAST UM ISLAND Á KOMANDI VETRI
Frjáls verzlun gerði nýlega könnun á gististöðum þeim, sem starfræktir eru yfir vetrar-
mánuðina á Islandi. Árangur eftirgrennslana blaðsins fer hér á eftir og geta menn þar fræðzt
um flest, ef ekki öll þau atriði, sem vakna í hugum manna, þegar þeir þurfa að kaupa sér
gistingu og fæði í byggðarlögum fjarri heimkynnum sínum.
HÓTEL BORG,
Pósthússtræti 11, Reykjavík.
Hótelið hefur til umráða 47 gistiherbergi.
Tveggja manna herbergi eru 32 og eru öll, nema
9 með baði. Eins manns herbergi eru 15 og hafa
4 herbergi bað.
Á hótelinu er hægt að fá allan mat s.s. veizlu-
mat og margvíslega smárétti á góðu verði. Enn-
fremur hefur hótelið vínveitingaleyfi.
Húsið er staðsett í hjarta bæjarins, nálægt
verzlunum og opinberum byggirigum.
HÓTEL ESJA,
Suðurlandsbraut 2, Reyltjavík.
Hótelið hefur til umráða 134 gistiherbergi og
eru þau öll tveggja manna ásamt baði.
Á boðstólum er allur fáanlegur matur, séréttir
og matseðill dagsins m. a. Á morgnana er hlað-
borð og er verðið 250 krónur. Verð á hádegis-
verði er frá 350 krónum og verð á kvöldverði er
frá 700 krónum. Hótelið hefur vínveitingaleyfi.
Fyrir framan hótelið eru góð bílastæði og enn-
fremur eru þangað tíðar strætisvagnaferðir.
Sjónvarp og barir eru í húsinu.
HÓTEL HOLT,
Bergstaðastræti 37, Reykjavík.
Herbergjafjöldi er alls 53, þar af eru 42 tveggja
manna herbergi, öll með baði og 11 eins manns
herbergi einnig öll með baði.
Á hótelinu fæst allur matur og er morgun-
verðurinn á 260 krónur, hádegisverðurinn frá
krónum 425 og kvöldverðurinn frá 645 krónum.
Hótelið hefur vínveitingaleyfi.
Hótelið er staðsett í miðborg Reykjavíkur, ná-
lægt öllum opinberum skrifstofum.
HÓTEL LOFTLEIÐIR,
Reykjavíkurflugvelli.
217 gistiherbergi eru á hótelinu og er unnt að
nota öll, sem eins manns eða tveggja manna
eftir óskum. Eru þau með sturtu.
Allur matur stendur hótelgestum til boða, bæði
sérréttir og matseðill dagsins. Verð á morgun-
verði er frá 176 krónum, verð á hádegisverði er
frá 396 krónum og kvöldverði frá 660 krónum.
Vínveitingaleyfi er á hótelinu.
Hótelið býður upp á margvíslega dægrastytt-
ingu m. a. sundlaug og gufuböð. Ennfremur
skemmta erlendir skemmtikraftar oft á hótelinu
og þá er starfrækt sumarleikhús að sumarlagi.
HÓTEL SAGA,
Hagatorgi 1, Reykji vík.
Hótelherbergi á Sögu eru 90, þar af eru 57
tveggja manna og 33 eins manns. Eru þau öll
með baði.
Hægt er að kaupa allan algengan mat svo og
ýmsa sérrétti. Verð á morgunverði er frá 250
krónum. Hádegisverður er frá 335 krónum og
kvöldveiður frá 795 krónum. Auk þess hefur
hótelið vínveitingaleyfi.
Hótelið er á góðum stað, og góð bílastæði eru
við húsið og margt er hægt að gera sér til dægra-
styttingar.
HÓTEL MÁNAKAFFI,
Mánagötu 1, ísafirði.
8 gistiherbergi eru á hótelinu, 2 þriggja manna,
2 eins manns og 4 tveggja manna.
Allar algengar máltíðir eru fáanlegar og er
verð á morgunverði um 200 krónur, hádegisverði
frá 210-450 og loks er verð á kvöldverði frá 210-
450 krónur.
Hótelið er á góðum stað í bænum, stutt er í
verzlanir og auk þess er sundlaug nálægt hótel-
inu svo og byggðasafn. Á hótelinu er sjónvarp.
HÓTEL MÆLIFELL,
Aðalgötu 7, Sauðarkróki.
Fjöldi gistiherbergja á hótelinu er 7 og eru
þau öll tveggja manna.
Allur algengur matur er fáanlegur á hótelinu
og er verð á morgunverði 210 krónur, en það er
hlaðborð. Verð á hádegisverði er frá 300 krón-
um og verð á kvöldverði frá 300 krónum. Vín-
veitingaleyfi er á hótelinu.
Ymislegt er hægt að gera sér til dægrastytting-
ar og er hægt að fá leigða bíla m. a.
HÓTEL KEA,
Hafnarstræti 89, Akureyri.
Fjöldi gistiherbergja á hótelinu er 28 og eru
15 tveggja manna. 5 þeirra eru með baði. 8 eins
manns herbergi eru á hótelinu.
Á boðstólum eru 40-50 sérréttir ásamt matseðli
dagsins. Morgunverðurinn er hlaðborð og er verð-
ið 220 krónur. Hádegisverðurinn er frá 415 krón-
um og kvöldverður frá 600 krónum. Á hótelinu
er vínveitingaleyfi.
Hótelið er staðsett í hjarta bæjarins með öllum
þeim möguleikum, sem því tilheyrir. Ennfremur
er í húsinu kaffitería, fyrir þá, sem vilja fljóta af-
greiðslu og ódýran mat.
FV 9 1973
43