Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1973, Blaðsíða 73

Frjáls verslun - 01.09.1973, Blaðsíða 73
SAMVINNA VIÐ ESKIFJÖRÐ. í haust er væntanlegur til landsins um 500 tonna spánsk- ur skuttogari, sem útgerðarfélag á Eskifirði hefur fest kaup á í félagi við Kaupfélag Héraðsbúa á Reyðarfirði. Verður hann gerð- ur út frá Eskifirði en aka á með hluta af afla til vinnslu á Reyð- arfirði. Hjalti Gunnarsson sagði, að Reyðfirðingar hefðu vel get- að staðið einir að útgerð á skut- togara en sá möguleiki hefði ekki verið athugaður nógu snemma. Á Reyðarfirði búa nú um 600 manns. Fólksfjölgun varð nokk- ur á síldarárunum og þar reisti þá ríkið síldarverksmiðju. Sögðu þeir Hjalti og Hallgrím- ur að þessi opinberu fyrirtæki, síldarverksmiðjan og Vegagerð- in, hefðu óneitanlega reynzt lyftistöng fyrir atvinnulífið í kauptúninu þó að þau séu und- anþegin opinberum gjöldum til sveitarfélagsins. Þá var líka Halgrímur Jónasson, framkvæmdastjóri útgerðar Gunnars og Snæfugls á Reyð- arfirði. áberandi, er loðnan fór að veið- ast í miklu magni fyrir Aust- fjörðum, að ríkisrekna verk- smiðjan stóð fyrst í stað verk- efnalaus meðan fyrirtæki í ann- arra eigu voru að keppast um að fá loðnu til bræðslu í ná- grannabyggðarlögunum. Þannig var ríkið dragbítur á raunhæfar aðgerðir. Um hugsanlega dreifingu stofnana hins opinbera út um byggðir landsins sögðu þeir Hjalti og Hallgrímur, að í Reykjavík hlyti að verða þunga- miðja stjórnsýslunnar og flutn- ingur stofnana ríkisins gæti ekki farið fram nema að vandlega at- huguðu máli. Þannig hefði það verið sýndarmennska að flytja aðsetur Síldarútvegsnefndar á sínum tíma til Siglufjarðar og hefðu Austfirðingar verið verr settir með nefndina þar heldur en í Reykjavík. í þessi mál þyrfti því að ráðast með mikilli gætni. Eskifjörður: IViyndarlegt átak í varanlegri gatnagerð Samvinna sveitarfélaganna á Austurlandi um lagningu olíumalar á götur Það vekur að vonum mikla athygli hverjum stakkaskipt- um sum kauptúnin á Aust- fjörðum hafa tekið eftir að farið var að bera olíumöl á götur þar. Einn þeirra staða, þar sem einna mestar breyt- ingar hafa orðið í þessu tilliti. er Eskif jörður. Allt yfirbragð staðarins hefur gjörbreytzt og þar sem enn hefur ekki verið hægt að setja varanlegt slitlag á götur er þegar fyrir hendi sterk áeggjan íbúa um að framkvæmdum verði hrað- að. Jóhann Klausen sveitarstjóri, skýrði okkur svo frá, að olíu- malarlagningin á Eskifirði væri liður í stórframkvæmdum 11 svokallaðra þéttbýlissveitar- félaga á Austurlandi á þessu sviði. í þriggja ára áætlun er gert ráð fyrir að samtals verði varið 120 milljónum króna á þessum stöðum til að ganga frá götum og hefur verið samið við norskt fyrirtæki um kaup á olíu- möl, sem flutt er til Austfjarða með skipum beint frá Noregi. Samningur við norskt fyrirtæki, sem gildir til eins árs gerir líka ráð fyrir að það leggi út mölina með eigin tækjum, sem notuð hafa verið austnlands í sum- ar. Framkvæmdirnar hófust á Reyðarfirði í júnílok, en síðan var farið um Eskifjörð til Nes- kaupstaðar, Seyðisfjarðar og Vopnafjarðar. Þaðan verður svo haldið suður eftir, til Fáskrúðs- fjarðar, Breiðdalsvíkur, Stöðv- arfjarðar og Djúpavogs. Þá er ákveðið að Egilsstaðir og Höfn í Hornafirði verði með í áætlun- inni þó að framkvæmdir þar verði ekki hafnar á þessu ári. VILJA AÐ VÉLARNAR VERDI UM KYRRT. Norska fyrirtækið, sem að þessu stendur, heitir Rödsand Gruber, og hefur aðalstöðvar rétt hjá Kristjánssundi. Hefur verið samið um kaup á 12-13 þús- und tonnum af olíumöl af því, en Jóhann sveitarstjóri kvaðst vona, að einhver aðili í kjör- dæminu sæi sér fært að kaupa vélar Norðmannanna eða aðrar ámóta, svo hægt væri að dreifa framkvæmdunum meira á milli ára en miða ekki við stærri áfanga eins og nú er gert. Ein- hverjar athuganir hafa farið fram á hvort verktakafyrirtæk- ið Átak á Seyðisfirði muni hugs- anlega annast rekstur vélakosts til olíumalarlagnar en um það er ekkert endanlega ákveðið. Jóhann sagði, að í fyrsta á- fanga á Eskifirði hefðu verið 18 þús. fermetrar, en þar með eru talin bílastæði og nokkur fleiri svæði, sem ekki heyra gatnakerfinu til. Samtals mun þessi áfangi á öllum stöðunum verða um 75 þús. fermetrar en fermetrinn kostar 300 krónur. Á Eskifirði verður unnið á næsta ári að undirbúningi þeirra gatna, sem eftir eru en talið er að gatnakerfið allt eigi að verða fullbúið eftir tvö ár. Verkefnið er tæplega hálfnað núna, en Jó- FV 9 1973 73
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.