Frjáls verslun - 01.09.1973, Blaðsíða 29
Plaströrin 48% af framleiðsfunni
— segir Jón Þórðarson, framleiðslustjóri
á Reykjalundi
Á árunum 1953-60 voru
teknir í notkun vinnuskálar
að Reykjalundi og hófst þá
rekstur plastgerðar, sem
starfrækt hefur verið með
miklum blóma síðan. 1 plast-
gerðinni eru gerð plaströrin
kunnu, svo og leikföng, um-
búðaplast og margt fleira. FV
ræddi stuttlega við Jón Þórð-
arson, framleiðslustjóra á
Reykjalundi á dögunum og
spurði hann m. a. um fram-
leiðsluna í plastgerðinni.
Sagði hann, að langmest væri
nú framleitt af vatnsrörum,
sem framleidd eru í stærðunum
frá V2 tommu upp í 12 tommur.
Rör þessi eru seld út um allt
land og eru mjög vinsæl. Næst
stærsta framleiðslugreinin er
umbúðaplast eða polyfilm eins
og það er nefnt á fagmáli. 700-
750 tonn eru framleidd af rör-
unum á ári, en um 500 tonn af
umbúðaplasti.
Einnig eru framleidd á
Reykjalundi búsáhöld ýmis kon-
ar, ílát og vatnsfötur. Reykja-
lundur hefur einkaumboð fyrir
Lego System hér á landi. Hluti
Lego kubbanna er framleiddur á
Reykjalundi, en hitt er flutt inn
tilbúið.
Þá eru á Reykjalundi einnig
gerðir trébílar og skápar fyrir
smáhluti s.s. skrúfur. Ekki má
gleyma garðslöngunum og lyfja-
umbúðunum, sem einnig er virk-
ur þáttur í framleiðslunni. Ekki
hefur verið bætt við neinni
framleiðslugrein nýlega.
Á Reykjalundi er einnig starf-
andi saumastofa, sem m.a. saum-
ar sloppa fyrir sjúkrahús og
einnig er starfrækt trésmíða-
verkstæði, sem sér um viðhald
á byggingum og nýsmíði fyrir
byggingar t. d. á gluggum og
hurðum.
Á síðasta ári var söluverð-
mæti framleiðslunnar 117 millj-
ónir króna og voru rörin 48%
af framleiðslunni og plast-
filman (polyfilm 24%.
Innan plastgerðarinnar eru
starfandi fjórar deildir að sögn
Jóns og eru það' samsetningar-
deild, þar sem gengið er frá vör-
unni, hún sett saman og pökkuð.
Þar vinna um 50 vistmenn auk
verkstjóra.
Steypideild var næsta deild,
sem Jón nefndi, en þar vinna
8 vistmenn á vöktum ásamt
verkstjóra. I steypudeild
eru búsáhöldin og leikföngin
steypt og matvælaumbúðir og
lyfjaumbúðir gerðar. Þar eru
einnig framleidd raftengi (6
víra tengi), og eru þetta klemm-
ur til að tengja saman rafvíra í
dósum.
I röradeild vinna 9 vélamenn
og aðstoðarmenn, 4-5 vistmenn
og verkstjóri. Þar eru rörin
framleidd svo og umbúðarplast-
ið og garðslöngurnar. í þessari
deild fer fram stærsti hluti fram-
leiðslunnar.
Á mótaverkstæðinu, sem er
seinasta deildin, sem heyrir
undir plastgerðina vinna þrír
lærðir smiðir, þar af einn verk-
stjóri og auk þess starfa þar
3-4 vistmenn. Á verkstæðinu er
séð um nýsmíði á mótum og
tækjum, viðgerðir og viðhald
véla og tækja. Á mótaverkstæð-
inu eru einnig framleiddir
skrúfuskáparnir fyrrnefndu.
Á Reykjalundi er í byggingu
nýtt verksmiðjuhús og er það
Jón Þórðarson.
800 m2 að stærð, og sagði Jón
að það yrði tekið í notkun um
áramót. í þessari nýbyggingu
verða plaströrin og plastumbúð-
irnar framleiddar.
Sagði Jón, að orðið hefði að
byggja nýtt verksmiðjuhús
vegna þrengsla og tæplega hefði
verið hægt að anna eftirspurn
eftir vörum í tvö ár, vegna þess
að ekki hefur verið unnt að bæta
við vélasamstæðum vegna pláss-
leysis. Þegar starfsemi hefst í
nýja húsinu verður keypt ein ný
vélasamstæða fyrir plastfilm-
una, en 3 vélasamstæður eru
fyrir. Einnig væru 3 vélasam-
stæður fyrir rörin, en ekki hefði
verið ákveðið hvort keypt yrði
ný samstæða til viðbótar með
tilkomu nýju verksmiðjunnar.
Að lokum sagði Jón, að nýja
verksmiðjuhúsið yki mikið hag-
ræðingu vegna þess að það væri
ekki langt frá lagernum og færu
rörin beint þangað úr verksmiðj-
unni.
Unnið í plastgerðinni.
FV 9 1973
29