Frjáls verslun - 01.09.1973, Blaðsíða 13
Skipaútgerð:
Nýtt tímabil byrjað hjá Hafskip h,f.
Eins og kunnugt er af fréttum
fjölmiðla hefur íslenzka skipa-
félagið Hafskip h.f. átt í rekstr-
arörðugleikum undanfarna
mánuði og meðal annars var eitt
af skipum þess kyrrsett í Ham-
borg í 5 vikur, fyrr á þessu ári.
Nú hefur rofað til hjá skipafé-
laginu með tilkomu nýrrar
stjórnar, nýrra hluthafa, og ráð-
inn hefur verið nýr fram-
kvæmdastjóri, ungur maður,
Magnús Gunnarsson, sem var
áður hjá SÍF.
Hafskip h.f. tapaði 82 millj.
króna á s.l. ári, en nú er búið
að höggva á hnútinn og fram-
undan eru bjartari tímar hjá
skipafélaginu. Meðan verst gekk
undanfarna mánuði þurftu nýju
hluthafarnir og stjórnin að
ganga í miklar persónulegar
ábyrgðir fyrir félagið, en það
var aðeins tímabundin lausn
vandamálsins.
NÝIR SAMNINGAR
VIÐ LÁNASTOFNANIR.
Undanfarið hafa staðið yfir
samningar milli Hafskips h.f.
annars vegar og Útvegsbanka ís-
lands hins vegar, um umfangs-
miklar bankaábyrgðir vegna
stórrar lántöku erlendis. Eftir
langa samninga féllst Útvegs-
bankinn á að ganga í ábyrgð
fyrir hluta lánsins, en aðrir að-
ilar tóku á sig ábyrgð fyrir mis-
muninum. Hin erlenda lántaka
gerir félaginu kleift að hefja
nýtt tímabil starfseminnar og
Hafskipsmenn eru sagðir bjart-
sýnir á framtíðina.
HLUTAFJÁRSÖFNUN
GENGUR VEL.
Hafin er hlutafjársöfnun, og
þegar hefur safnazt milli 45-50
millj. króna viðbótahlutafé við
upphaflegt hlutafé skipafélags-
ins. Söfnunin heldur enn áfram
og er um almenna hlutaf jársöfn-
un að ræða.
Verið er að endurskipuleggja
alla starfsemi Hafskips h. f. og
framundan eru ýmsar breyting-
ar á rekstri og áætlunum út-
gerðarinnar.
FASTAR
ÁÆTLUNARFERÐIR.
Hafskip h.f. á 3 millilanda-
skip og er það fjórða á föstum
leigusamningi. M.s. Langá er í
föstum áætlunarferðum til
Vöruvelta Innkaupastofnun-
ar Reykjavíkurborgar jókst
á s.l. starfsári um 33.15% og
nam alls um 408.0 milljónum
króna, var 306.4 millj. árið
áður og 239.7 millj. 1970.
Eins og undanfarin ár voru
stærstu vöruliðirnir stálpípur,
jarðstrengir og vír, asfalt og ein-
angrunarefni fyrir Hitaveitu
Reykjavíkur. Asfalt var nú í
fyrsta skipti boðið út og keypt
til landsins í „bulk“, þ. e. flutt
til Reykjavíkur með tankskipi
og dælt á geyma þá, sem reistir
voru hjá malbikunarstöðinni við
Ártúnshöfða. Á árinu var boðin
út og keypt til landsins ný mal-
bikunarstöð. Kostnaðarverð
Fredriksstad í Noregi, Gauta-
borgar og Kaupmannahafnar,
tvisvar sinnum í mánuði. Tvö
skip, Selá og Rangá, sigla á 10
daga fresti, til skiptis, til Ham-
borgar og Antwerpen. Fjórða
skipið er í föstum áætlunarsigl-
ingum til Bretlands og Póllands.
Eins og fyrr greindi þá er hinn
nýi framkvæmdastjóri Hafskips
h.f. Magnús Gunnarsson, við-
skiptafræðingur, en stjórnar-
formaður er annar ungur maður
af Suðurnesjum, Magnús Magn-
ússon.
stöðvarinnar, hingað kominnar,
var um 48,8 millj. kr.
VERKSAMNINGAR AÐ
VERÐMÆTI 598 MILLJ. KR.
Á árinu voru pantaðar 10
strætisvagnagrindur af Volvo-
gerð, að undangengnu útboði.
Samið var við h. f. Bílasmiðjuna
um smíði yfirbygginga strætis-
vagna . Heildarsamningsverð
við kaup þessara strætisvagna,
sem afgreiddir verða 1973, mun
verða um 50,6 millj. króna.
Árið 1972 gerði Innkaupa-
stofnunin 47 verksamninga að
heildarverðmæti kr. 598.1 millj.
króna. Árið á undan voru gerðir
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar:
Vöruveltan rúmar 400
milljónir í fyrra
FV 9 1973
13