Frjáls verslun - 01.09.1973, Blaðsíða 59
Scrcfni
Seyðisf jörður:
Stórkostleg framför í atvinnumálum á
fáeinum árum eftir síldarævintýrið
„Hér hafa jafnan verið
miklar sveiflur í atvinnumál-
um,“ sagði Matthías Guð-
mundsson, bankastjóri lít-
vegsbankans á Seyðisfirði í
viðtali við FV. „Þetta var
mikill athafnabær um alda-
mótin,“ hélt Matthías áfram,
„en hrakaði svo mjög á
kreppuárunum eins og ann-
ars staðar. Vinna var mikil á
stríðsárunum fyrir Bretana
og Bandaríkjamenn enda hér
mikilvæg herstöð en svo virð-
ist, sem hún hafi borið ann-
an atvinnurekstur ofurliði.“
Matthías fluttist til Seyðis-
fjarðar árið 1967 en hafði áður
starfað sem deildarstjóri í inn-
heimtudeild Útvegsbankans í
Reykjavík. Þá hafði síldarævin-
týrið staðið, en var senn á enda.
Skipin fóru að sækja langt norð-
ur í höf og söltunarstöðvarnar
fóru að fá lán til að byggja yfir
sig vegna vetrarvinnu. Pening-
arnir stöðvuðust ekki á Seyðis-
firði og þar hlóðust upp skuld-
ir. Atvinnuleysi var framundan
og fyrir bankayfirvöldum lá sú
spurning, hvort hætta skyldi að
lána fjármagn til atvinnutækj-
anna, því að lítil veð voru fyrir
hendi. Bolfiskur veiddist eng-
inn og var það tíðkað að panta
fisk í soðið frá Höfn í Horna-
firði, eða annars staðar að.
Frystihúsarekstur var því ekki
teljandi fyrr en tekið var til
starfa í nýju húsi, sem Valtýr
Þorsteinsson lét reisa fyrir síld-
arfrystingu á síldarárunum. Nú
gengur rekstur þess eins og hjá
beztu húsunum fyrir sunnan og
alls munu starfa á Seyðisfirði
Séð af Fjarðarheiði niður til Seyðisfjarðar.
FV 9 1973
51)