Frjáls verslun - 01.09.1973, Blaðsíða 27
Unnið að framleiðslu á Reykjalundi.
stjórn samtakanna um langt ára-
bil og situr í henni í dag.
Árni kann frá mörgu að segja
varðandi mál berklaveikra og
baráttu þeirra til að koma
vinnuheimilinu að Reykjalundi
á fót. Hann leggur mikla áherzlu
á þakkir og viðurkenningu til
þeirra manna, sem stóðu að
stofnun S.Í.B.S. fyrir geysimik-
ið og óeigingjarnt starf sem þeir
undantekningarlaust unnu í
þágu málefnisins, og eru það
margir sem mætti nefna í því
sambandi, en kannski helzt þá
Andrés Straumland, Ásberg Jó-
hannesson, Herbert Jónsson og
Jón Rafnsson, en þeir áttu allir
sæti í fyrstu stjórn S.Í.B.S. Meg-
inmarkmiðið með stofnun S.I.
B.S. var að aðstoða heilbrigðis-
yfirvöld við að hefta útbreiðslu
berklanna og að „Styðja sjúka
til sjálfsbjargar“, en þau orð
hafa ávallt verið einkunnarorð
sambandsins.
Ári eftir að sambandið var
stofnað eða 1939, var haldinn
fyrsti fjáröflunardagurinn,
berklavarnardagurinn, sem enn
er haldinn fyrsta sunnudaginn í
október. Þá, eins og nú, var f jár-
ins aflað með sölu blaðs og
merkja og þennan fyrsta berkla-
varnardag söfnuðust 5 þúsund
krónur, mun meira en menn
höfðu þorað að vona. Leitaði
stjórn S.Í.B.S. þá álits hjá félög-
um um allt land um hvað gera
skyldi við þetta mikla fé. Var
ákveðið að stofna sjóð í þeim
tilgangi að koma upp vinnu-
heimili fyrir berklasjúklinga,
sem og varð.
RÁÐIZT í KAUP Á LANDI
OG ÞAÐ SKIPULAGT.
Það var svo árið 1942 að sam-
þykkt var á þingi S.Í.B.S. að
fela stjórn samtakanna að hefj-
ast handa um undirbúning að
byggingu vinnuheimilis og sjá
um útvegun á meira fé til þess
verks. Var þá leitað til Alþingis
og farið fram á að gjafir, sem
S.Í.B.S. kynnu að berast yrðu
undanþegnar skatti hjá gefanda.
Var Þórður Benediktsson einn
helzti hvatamaður að þessu, en
hann sat þá á þingi, og má þakka
honum, öðrum fremur, það, að
þetta fékkst samþykkt.
Á næsta þingi sambandsins,
árið 1944, var svo draumurinn
orðinn að veruleika. Stjórnin
hafði fest kaup á 30 hekturum
lands úr landi Suður-Reykja í
Mosfellssveit og ráðið Gunnlaug
Halldórsson arkitekt til að
teikna og skipuleggja svæðið.
Vann Bárður ísleifsson að því
verki með honum fyrstu árin, en
Gunnlaugur er enn í dag arki-
tekt Reykjalundar. Var verkið
unnið með slíkum ágætum, að
sögn Árna, að engar teljandi
breytingar hefur þurft að gera
á því á þessum tæpum þremur
áratugum.
Ástæðurnar fyrir því að þetta
landsvæði var valið fyrir vinnu-
heimili voru rnargar, nálægðin
við Reykjavík og jarðhiti, en
það sem kannske var þyngst á
metunum var það, að á landinu
stóð mikið af bröggum, sem
Bandaríkjamenn höfðu skilið
eftir þar, en þeir starfræktu
þarna hersjúkrahús og fleira.
Þessir braggar voru ómetanleg
hjálp fyrstu árin því þeir voru
notaðir sem vinnustofur, lækna-
stofur og fleira og fleira og var
sá síðasti þeirra rifinn árið 1963.
Til viðbótar þessu voru í land-
inu skolplagnir og vatnslagnir,
sem hermennirnir höfðu lagt og
einnig borholur, sem úr fékkst
heitt vatn og voru þær notaðar
þar til fyrir tveimur árum en
þá hvarf úr þeim heita vatnið
þegar hafizt var handa við djúp-
boranir á vegum Reykjavíkur-
borgar þarna skammt frá. Allt
þetta kom náttúrulega að góðu
gagni og gerði að verkum að
hægt var að hefja starfsemi mun
fyrr en annars hefði verið.
Þegar þessir atburðir áttu sér
stað var Andrés Straumland for-
maður stjórnar S.Í.B.S. en aðr-
ir í stjórninni voru Sæmundur
Einarsson, Oddur Ólafsson, Ól-
afur Björnsson, Maríus Helga-
son, Eiríkur Albertsson og Árni
Einarsson.
B Y GGIN GAFRMKV ÆMDIR
HEFJAST.
HAPPDRÆTTI STOFNAÐ.
Fyrstu byggingaframkvæmd-
irnar hófust svo 3. júní 1944 og
voru í fyrstu reist 10 hús, litlu
húsin svokölluðu, vistmanna-
FV 9 1973
27