Frjáls verslun - 01.09.1973, Blaðsíða 61
Matthías Guðmundsson bankastjóri á tröppum Útvegsbankans á
Seyðisfirði.
um 150 manns í frystihúsavinnu
nú.
Það gjörbreytti allri hráefnis-
öflun, þegar skuttogarinn Gull-
ver var keyptur til Seyðisfjarð-
ar í fyrra. Hann er um 320 lest-
ir og fenginn notaður frá Dan-
mörku. Berst hráefnið nú jafnt
að landi, og standa vonir manna
til, að frystihúsareksturinn geti
borið uppi tapið af útgerð, sem
gengur erfiðlega vegna mikils
kostnaðar.
Nú eru rúmlega 900 manns á
Seyðisfirði og hefur fjölgað um
40-50 á síðasta ári. Það er greini-
lega mikill sóknarhugur í íbú-
um bæjarins og menn almennt
miklu bjartsýnni en á erfið-
leikaárunum, þegar ástand í at-
vinnumálum var reyndar slæmt
um alla Austfirði. Allur at-
vinnurekstur á Seyðisfirði er í
höndum einkaaðila og bæjarfé-
lagið kemur þar lítið við sögu.
Auk vaxandi vinnslu sjávarafla
hafa þar risið upp og dafnað
skipasmíðastöðvar og þjónustu-
fyrirtæki við báta og skip. Vinna
í smiðjunum um 70-80 manns.
Þessi velmegun hefur vissulega
sagt til sín í bankastarfseminni
og nefndi Matthías sem dæmi,
að þegar hann fluttist til Seyð-
isfjarðar hefði árleg aukning
sparifjár verið minna en 30
millj. en er nú yfir 130 millj.
Samkvæmt uppiýsingum frá
sambandi sveitarstjórna á Aust-
urlandi hefur tekjuaukning ein-
staklinga á Seyðisfirði líka ver-
ið 27% á síðasta ári og er það
mjög góð afkoma miðað við það
sem gerist annars staðar í lands-
fjórðungnum.
Vélsmiðjan Stál á Seyðisfirði,
sem Pétur Blöndal er forstjóri
fyrir, var stofnuð 1948. Fyrst
framan af var mest stunduð
ýmis konar vélsmíði, svo sem á
olíutönkum fyrir Austurland og
að sjálfsögðu tók smiðjan virk-
an þátt í uppbyggingu síldar-
verksmiðjanna og söltunar-
stöðva eystra. Stálgrindahús
hafa verið smíðuð og notuð fyr-
ir verbúðir og sem díeselstöðva-
hús fyrir rafmagnsveiturnar.
Frá fyrstu tíð hafa líka farið
fram bila- og búvinnuvélavið-
gerðir hjá Stáli.
Ýmis konar tilboðsverk hafa
líka verið unnin. Smiðjan vann
við framkvæmdir vegna Gríms-
árvirkjunar á sínum tíma og tek-
ið var tilboði hennar í gerð loku-
búnaðar fyrir Laxárvirkjun og
hljóðaði sá samningur upp á 10-
12 milljónir. Á árinu 1971 hóf
vélsmiðjan Stál svo að smíða
báta og er nú unnið við þann
fjórða. Það er 25-26 tonna bátur,
sem verður gerður út frá Seyðis-
firði en hinir hafa farið til
Stöðvarf jarðar, Vopnaf jarðar og
Djúpavogs.
Að jafnaði vinna 25 menn í
Þegar við inntum Matthías
eftir því, hver væri helzti mun-
ur á að starfa í banka í Reykja-
vík og í bæjarfélagi sem Seyð-
isfirði sagði hann, að reginmun-
urinn væri fólginn í ákvarðana-
tökunni, sem hvíldi nú á honum
sjálfum. Helztu erfiðleikana í
bankarekstrinum eystra sagði
hann vera seinagang í afgreiðslu
á lánum úr fiskveiðasjóði, en
bankinn lánar til skipasmíðanna
út á lán sjóðsins, sem kæmu svo
ekki aftur fyrr en seint og síðar
meir. Sagði Matthías, að útibú
Útvegsbankans og Landsbank-
ans á Austfjörðum lánuðu þang-
að mikið fjármagn og það væri
síður en svo reynt að draga
peninga úr útibúunum til
Reykjavíkur.
Nú eru atvinnutæki fyrir
hendi á Seyðisfirði, sem nægja
myndu 1500 manna bæjarfélagi.
Sagði Matthías, að tryggja þyrfti
undirstöðurnar betur og koma í
kring endurnýjun og gera rekst-
urinn hagkvæmari, en það væri
alltaf erfiðleikum bundið, þeg-
ar treysta ætti á eigið fjármagn.
smiðjunni en mjögerfiðlega hef-
ur gengið að fá mannskap upp
á síðkastið.
Á nýrri viðbyggingu sem hýs-
ir skrifstofur og verzlun þessa
sama fyrirtækis má sjá tákn, er
túlka mætti á þann veg, að
fyrsta skrefið til sameiningar
flugfélaganna hafi farið fram á
Seyðisfirði. í húsakynnum vél-
smiðjunnar Stáls er nefnilega
umboð fyrir bæði félögin. Nokk-
uð er selt af f armiðum með Loft-
leiðum, einkum til skólafólks,
er heldur til útlanda, en sala
með Flugfélagi íslands er mikil
og í sambandi við flug þess tíl
Egilsstaða, heldur umboðið uppi
sérleyfisferðum þangað frá
Seyðisfirði. Eru ferðir nú farn-
ar yfir Fjarðarheiði alla daga
vikunnar nema sunnudaga. Þeg-
ar heiðin verður ófær er snjó-
bíll hafður í förum, en í október
fer vegurinn venjulegast að
teppast og er þá reynt að opna
hann tvisvar í viku fram að
áramótum, en þá tekur snjó-
bíllinn við. Alls varð ferða-
fjöldinn í fyrra 275 ferðir yfir
árið milli Seyðisfjarðar og Eg-
ilsstaða. Nú er ákveðið að festa
IVIilli 300 og 400 manns Kafa
framfæri af iðnaði
FV 9 1973
61