Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 39

Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 39
Bergþór Konráðsson, viðskiptafræðingur, skrifar: Atvinnulyðræði — en Bandaríkjamenn sýna því lítinn áhuga Það eflist í Evrópu Hugmyndir manna um at- vinnulýðræði má orðið rekja meir en hundrað ár aftur í tímann, og gerðar hafa verið tilraunir með það í einni eða annarri mynd í rúm fimmtíu ár. Merking hugtaksins er þó enn nokkuð á reiki, en al- mennt mun vera um að ræða, að hinn almenni starfsmaður fái aukin áhrif á stjórn fyrir- tækisins. Starfsmennirnir vonast þannig eftir að fá meiri völd yfir eigin starfi og lífi, en stjórnendur reikna hins vegar með að starfsmenn þeirra fái aukinn áhuga á starfi sínu og fyrirtæki, og að það rnuni sýna sig í því að þeir leggi sig betur fram og skili auknum afköstum. Árangur af tilraunum með at- vinnulýðræði hefur verið mis- jafn. Oft hafa þær gefizt vel, en það hefur ósjaldan spillt fyrir, að menn hafa fyrirfram bundið of miklar vonir við, að hér væri um að ræða nokkuð, sem væri allra meina bót. Reynslan hefur hins vegar sýnt að venjulega er ekki um að ræða róttæka breyt- ingu á stjórn fyrirtækisins held- ur hefur nýjum þætti verið bætt við, sem ætti að geta haft já- kvæð áhrif á samstarf og upp- lýsingaskipti í fyrirtækinu, en hefur ákaflega lítil áhrif á dag- leg störf hins almenna starfs- manns. Nú virðist hafa vaknað nýr áhugi á þessu máli í Evrópu og á þessu ári hafa mörg Evrópu- lönd sett löggjöf um atvinnu- lýðræði, er gerir yfirleitt ráð fyrir, að starfsmenn hljóti meiri áhrif en áður hefur verið. Að vísu mun þorandi að full- yrða. að löggjöf er ekki árang- ursrík til að koma á atvinnulýð- ræði og verður í flestum tilvik- um lítið annað en dauður bók- Bergþór Konráðsson. stafur. Löggiöf um atvinnulýð- ræði hefur þó gefizt allvel í V- Þýzkalandi og áhrif frá henni eru greinileg á þau lög. sem sett hafa verið í öðrum Evrópulönd- um undanfarið. Evrópubúar hafa á undan- förnum árum fengið flestar nýj- ungar, í sambandi við stiórnun fyrirtækja. frá Bandaríkjunum. Þótt að ýmsu leyti sé í lög- giöf um atvinnulýðræði farið eftir hefðbundnum leiðum, má þó segia að hér sé um að ræða tilraunir til að koma á nýjum stjórnunaraðferðum í stórurn stíl og verður athyglisvert að fylgjast með hvort þær muni hafa raunverulegar breytingar í för með sér — og þá hverjar. SAMSTARFSFORM. Samstarfsform það sem notað er getur að sjálfsögðu verið með ýmsu móti. Samstarfsnefndir, þar sem starfsmenn fyrirtækja kjósa fulltrúa til að sitia í nefnd ásamt fulltrúum stjórnenda eða eig- enda, er eitt algengasta form at- vinnuiýðræðis. Nefndum þess- um er ætlað að koma saman reglulega og miðla upplýsingum milli stjórnenda og annarra starfsmanna og fjalla um starfs- mannamál og oft á tíðum hvern- ig auka megi framleiðni og hag- ræðingu í fyrirtækinu. Hlutverk þessara nefnda er þannig að vera ráðgefandi í ákveðnum málum. Samstarfsmáti sá, sem nú virðist vera að vinna mest á í Evrópu er hins vegar með þeim hætti, að starfsmenn kjósa full- trúa í stjórn fyrirtækisins, er sitja þar sem fullgildir stjórnar- menn og taka þátt í öllum stjórn- arstörfum og hafa fullan at- kvæðisrétt. Þetta samstarfsform hefur verið allútbreitt í V-Þýzkalandi (Mitbesimmung). í kola- og stáliðnaðinum hafa starfsmenn- irnir t. d. kosið helming stjórn- armanna, en stjórnin hefur síð- an komið sér saman um odda- mann. Venjulega hafa starfs- menn þó ekki svo mikil áhrif í stjórn fyrirtækjanna heldur minnihluta aðstöðu. í Austur-Evrópu eru þess hins vegar dæmi t. d. í Júgóslavíu, að starfsmenn hafa meirihluta í stjórn fyrirtækja, og verður stjórn fyrirtækisins þannig ábyrg gagnvart starfsmönnun- um, en ekki eigendum eins og við eigum að venjast. Rannsóknir í fyrirtækjum, þar sem gerðar hafa verið til- raunir með atvinnulýðræði i þeirri mynd, að starfsmenn kjósi úr sínum hópi hluta af stjórn fyrirtækisins, hafa bent til að stjórnarmenn þessir fjarlægist yfirleitt hinn almenna starfs- mann og upplýsingamiðlun verði með tímanum lítil frá þeirra hendi. Þessi aðferð hefur hins vegar þann kost, að hún er mjög auðveld í framkvæmd og er það líklegasta skýringin á vaxandi útbreiðslu hennar. ATVINNULÝÐRÐI í BANDARÍKJUNUM. Fyrirtækjanefndir eru alls ekki með öllu óþekkt fyrirbrigði í bandarískum fyrirtækjum. Nokkuð var um samstarfsnefnd- ir í fyrirtækjum þar á öðrum tug aldarinnar og í seinni heims- styrjöldinni var komið á fót í nokkrum mæli samstarfsnefnd- um, sem var ætlað fyrst og fremst að stuðla að aukinni framleiðslu og hagræðingu. í lok stríðsins voru yfir 5.000 slík- ar nefndir starfandi í bandarísk- um fyrirtækjum. Eftir stríðið lognuðust allar þessar nefndir út af. Þær sam- starfsnefndir, sem nú eru í FV 9 1973 39

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.