Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1973, Síða 41

Frjáls verslun - 01.09.1973, Síða 41
bandarískum fyrirtækjum eru flestar hluti af svonefndu Scan- lon-kerfi, er miðast við að vinna með starfsmönnunum að auk- inni framleiðni og tengja ár- angur þess samstarfs bónus- kerfi, sem veitir starfsmönnun- um hluta ágóðans. Áhugi fyrir atvinnulýðræði, að evrópskri fyrirmynd, virðist hins vegar vera lítill. Stjórnend- ur fyrirtækjanna reyna að efla áhuga starfsmannanna sem ein- staklinga með því að gera störf- in fjölbreytilegri, veita starfs- mönnunum meiri ábyrgð (en valddreifing er þar meiri en al- mennt gerist í evrópskum fyr- irtækjum) — og auk þess er al- gengt að starfsfólkið fái bónus af ágóða eða forkaupsrétt að hlutabréfum í viðkomandi fyr- irtækjum. Verkalýðsleiðtogar í Banda- ríkjunum virðast sýna atvinnu- lýðræði jafnvel enn minni áhuga en stjórnendur fyrirtækja og litla samúð. Þar sem atvinnu- lýðræði hefur verið tekið upp (venjulega eftir Scanlon-kerf- inu) hafa það yfirleitt verið stjórnendur fyrirtækjanna. sem hafa haft forgöngu um að inn- leiða það. Er þessi mál voru tii umræðu fyrir skömmu lýsti einn banda- rískur verkalýðsleiðtogi þeirri skoðun sinni, að ,,ef stjórnendur fyrirtækja vildu gera starfið ánægjulegra, ættu þeir að gera launin ánægjulegri.“ Annar verkalýðsforingi lýsti því áliti sínu. að forkólfar þeir, sem þætt- ust vilja bæta hag launþega með atvinnulýðræði, væru ekkert annað en ..vinnuhagræðingar í sauðagæru“. AÐRAR AÐSTÆÐUR. Þótt verkalýðshreyfingin í Bandaríkjunum sé að sjálfsögðu mjög áhrifamikil býr hún við aðrar aðstæður og ólíkar því, sem er víðast hvar í Evrópu. Að- eins 25% launbega í Bandaríkj- unum eru meðlimir í verkalýðs- félögum og þau hafa reynt að hafa tiltölulega lítil bein afskipti af stjórnmálum og farið varlega í að nota ríkisvaldið til að koma sínum málum fram. Stærð landsins og fólksfjöldi gerir það einnig að verkum, að erfitt er að skipuleggja sterk miðstýrð landssamtök, auk þess sem hin ýmsu fylki hafa nokk- uð misjafna verkalýðslöggjöf, sem gerir það að verkum að verkalvðsfélögin eru frekar skipulögð og há fremur sína bar- áttu eftir fylkjum. Þetta hefur það í för með sér, að jafnvel þó svo að verkalýðs- félög þar hefðu áhuga á að koma á allsherjar löggjöf um atvinnu- lýðræði, líkt og gert hefur ver- ið í ýmsum Evrópulöndum nú undanfarið, þá stríðir slikt á móti skipulagi og baráttuaðferð- um bandarískrar verkalýðs- hreyfingar. Atvinnulýðræði hefur misst mikið af þeim stjórnmálalegu og tilfinningalegu blæbrigðum, sem áður voru tengd því hug- taki, og má segja að nú sé frem- ur litið á það sem ákveðið sam- starfsform stjórnenda og laun- þega, heldur en vopn sósíalista til að umbylta þjóðfélaginu. Sósíalistisk hugmyndafræði á hins vegar lítt upp á pallborðið hjá bandarískum verkalýð, og meðan einhvern slíkan keim er að finna, mun bandaríska verka- lýðshreyfingin vart hafa áhuga á að feta í fótspor þeirrar ev- rópsku og berjast fyrir atvinnu- lýðræði. Neskjör hf. MIÐSTRÆTI 4, NESKAUPSTAÐ. SlMI 97-7465. • MATVÖRUR. • NÝLENDU- VÖRUR. • LEIKFÖNG. • GJAFAVÖRUR. • SNYRTIVÖRUR. Alhliða húsgagna- verzlun -K l/f *e. I / •• Kjorhusgogn Eyrarvegi 20, Selfossi. Sími: 99-1540. FV 9 1973 41
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.