Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 71

Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 71
Reyðarfjörður: Þjónusfa og sjávarútvegur undirstaða atvinnulífsins Vegagerð ríkisins hefur að- setur á Reyðarfirði fyrir Aust- urlandsmiðstöð sína og hafa 20-30 menn á staðnum at- vinnu af þeirri þjónustu, sem Vegagerðin stendur fyrir eystra. Má rekja sögu þessa fyrirkomulags allt til ársins 1932, þegar snjóbíll var fyrst staðsettur á Reyðarfirði til að halda uppi samgöngum um nærliggjandi héruð á vetrum. Fyrir nokkru kom til tals, að flytja starfsemi Vegagerðarinn- ar frá Reyðarfirði til Egilsstaða en því mótmæltu Reyðfirðingar kröftuglega og varð ekkert af þeirri breytingu. Bentu þeir á, að hún myndi hafa í för með sér álíka ástand í atvinnumálum og ef 2800 heimilisfeður í Reykjavík yrðu allt í einu at- vinnulausir. MIÐIN 150 MÍLUR í BURTU. Að öðru leyti er það sjávar- útvegurinn, sem fólk á Reyðar- firði byggir afkomu sína á. Við hittum þar að máli þá Hjalta Gunnarsson og Hallgrím Jónas- son, sem stunda bátaútgerð og fiskverkun. Hallgrímur er fram- kvæmdastjóri útgerðarinnar, sem á tvo 250 tonna báta, Gunn- ar og Snæfugl, en Hjalti sér um rekstur saltfiskvinnslustöðvar- innar. Síldveiðarnar voru í há- marki fyrir Austurland, þegar bátarnir komu austur, en þeir eru nú að verða úreltir vegna þess hve óhagkvæmir þeir eru í rekstri. Á vetrarvertíðinni þurfa þeir að sækja 100 til 150 mílur á miðin þannig að veiðiferðir taka allt að sex dögum, þegar veitt er suður við Ingólfshöfða eða jafnvei vestur undir Dyr- hólaey. Þetta gerir erfiðara að fá sjómenn á bátana og eins tek- ur lengri tíma að afgreiða bát- ana milli veiðiferða en ella auk þess sem löng sigling gerir út- gerðina óarðbærari. Samanlagt veiddu þeir Gunnar og Snæfugl 1300 tonn á síðustu vetrarvertíð. Auk Gunnars og Snæfugls eru gerðir út tveir 11 tonna bátar frá Reyðarfirði og nokkrar trill- ur. SÍLDIN SKAPAÐI UNDIRSTÖÐUNA. Nokkur hluti aflans fer til vinnslu í frystihúsi kaupfélags- ins en langmest þó í saltfiskverk- un. Fiskverkunarhúsið var reist fyrir fjórum árum og er þegar búið að vélvæða það að nokkru marki, en enn frekara átak er framundan í þeim efnum. Þar voru fullverkuð 250 tonn af salt- fiski í fyrra, en rekstrarleg út- koma var fremur neikvæð. Binda menn nú vonir við batn- andi verðlag á þessum afurðum. Útflutningsverðmætið fyrri- hluta þessa árs er um 20 millj- ónir. Að sögn þeirra Hjalta og Hallgríms er það aðstaðan síð- an á síldarárunum, sem gerir það að verkum, að þeir gera enn út frá Reyðarfirði, þó að bátarn- ir séu óhentugir. Þá var fjárfest mikið í landi og kjölfesta sköp- uð. Nú, þegar síldin er horfin verður þess vegna að reyna aðr- ar leiðir. Alls eru það milli 40 og 50 manns, sem stunda atvinnu hjá fyrirtækjunum, bæði á sjó og í landi, á vetrarvertíðinni. Vinnu- laun námu í fyrra tæpum 23 milljónum. Hefur afli borizt jafnt og stöðugt á land og at- vinnuöryggi því verið fyrir hendi. VILJA SKUTTOGARA. Á síðustu loðnuvertíð bárust á land um 16000 tonn til bræðslu á Reyðarfirði og var það fyrst og fremst fyrir tilverknað nefnd- arinnar, sem jafnaði niður flutn- ingum til löndunarstöðvanna. Bátarnir Gunnar og Snæfugl eru fyrst og fremst síldveiðiskip og hefur ekki þótt ráðlegt að búa þá út til loðnuveiða fyrir það hversu litlir þeir eru. Nú er hins vegar til íhugunar að fá skut- togara, er setja megi á loðnu- veiðar, um 500 tonn að stærð. Iljalti Gunnarsson á Reyðarfirði fyrir framan fiskvinnslustöð Gunnars og Snæfugls í þorpinu. FV 9 1973 71 L

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.