Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 75

Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 75
Jóhann Klausen, sveitarstjóri á Eskifirði, við eina af götunum, sem olíumöl hefur verið lögð á nú í sumar. hann taldi, að úr því tókst að ráða fram úr fyrsta áfanga iá þessu ári ætti sveitarfélagið að geta lokið öllu verkinu á til- settum tíma. Kostnaðaráætlun sveitarfé- lagsins vegna gatnagerðarinnar hljóðar upp á 9,1 milljón og verður sveitarfélagið að leggja fram að minnsta kosti 25% en lánasjóður sveitarfélaga hefur heimild til að lána 75%. NÝTT SKÓLAHÚS. Á Eskifirði eru nú um 950 íbú- ar og gjaldendur um 400 talsins. Á þessu ári nema gjöld til sveit- arfélagsins rúmri 21 milljón króna. Fyrir utan gatnagerðina eru holræsagerð og vatnsveitu- framkvæmdir efst á verkefna- lista hreppsins. Áætlað er að verja 6 milljónum króna á tveimur árum í stofnæð vatns- veitu, sem sótt er 550 metra vegalengd. Þar fæst ágætt vatn í nægum mæli. Þá stendur og fyrir dyrum að byggja nýjan barna- og gagn- fræðaskóla, en verið er að ganga frá teikningum að honum. Barnaskólinn, sem nú er kennt í, var byggður 1907. Þegar hefur verið reist íþróttahús og sund- laug, sem eiga að vera í tengsl- um við nýja skólahúsið. Skóla- húsið er efst á blaði yfir bygg- ingaframkvæmdir en líka er ætlunin að reisa verkamanna- bústaði strax þegar færi gefst og hefur fjármagn til þeirra ver- ið lagt fyrir síðustu tvö árin. Talsvert hefur verið byggt af íbúðarhúsnæði á Eskifirði síðast- liðin tvö ár, en samt er þar hús- næðisskortur. iMorðfjörður: Atvinnurekstur í höndum kommúnista- auðvaldsins Gylfi Gunnarsson heitir ungur framkvæmdamaður í Neskaupstað. Um þessar mundir er hann meðal annars að vinna að byggingu átta liúsa á vegum Viðlagasjóðs í kaupstaðnum. Hann var að keyra steypubílinn sinn upp að grunni eins þessara húsa og var það með herkjum að okkur tókst að tefja hann stundarkorn frá vinnunni til að inna hann frétta úr bæjar- lífinu á Norðfirði. Gylfi á sæti í bæjarstiórn Neskaupstaðar og í bæjarráði. — Hér er mjög mikið að gera, sagði Gylfi. Það má segja að allt sé í topoi. Við erum að vinna við þessi Viðlagahús af fullum kraftti og við það starfa um 10 staðarmenn. Þetta eru timb- urhús frá Noregi sem 10 manna hópur Norðmanna setur saman, þegar við höfum lokið undirbún- ingsframkvæmdunum. Fólk úr Eyjum er löngu búið að skrá sig í þessi hús en satt að segja erum við efins um að þau þoli álagið af misjöfnum veðrum eins og þau gerast hér um slóð- ir. — Hvers konar starfsemó er það scm þú rekur, nánar til tekið? — Ég er með steypustöð og þungavinnuvélar og smíða svo hús. Núna er ég með fimm íbúð- ir í smíðum. Hér er yfirdrifið nóg atvinna og fólk vill flytj- ast hingað en bað er ekki hægt að taka á móti því, vegna þess að stefnan í stiórn bæjarmál- anna hefur verið alröng. Núna er þó búið að ganga frá skipu- lagi 1000 manna byggðar hér úti á Bakkabökkum. Þar eiga að rísa einbýlishús og raðhús og fjölbýlishús efst í byggðinni. — En hvað er að sesia af helztu verkefnum hæjarfélags- ins? — Framundan er stækkun sjúkrahússins, meira en helm- ingsstækkun og mun ég vinna að því verki ásamt tveimur að- ilum öðrum. Þetta verður 9000 rúmmetra bygging, tvær hæðir og kiallari. Þá verður viðbótar- bygging við barnaskólann fok- held í haust og stækkun gagn- fræðaskólans er fyrirhuguð næsta sumar. Vatnsveitan er eitt helzta vandamál okkar því að við bú- um við lítið og lélegt vatn. Fyr- ir liggur áætlun um að leggia vatnsæð innan úr sveit hingað í bæinn og er kostnaður við það áætlaður 32 milliónir. í sam- bandi við þær framkvæmdir þarf svo að reisa tvo 600 lítra FV 9 1973 75

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.