Frjáls verslun - 01.06.1974, Side 33
hlíð og svo er tilvalið að enda
daginn með því að baða sig í
Grjótagjá, í 40 stiga heitu
vatni. Á næsta ári vonumst
við svo til að geta opnað sund-
laug, sem lengi hefur verið á
framkvæmdaáætlun en nú
liggur ríkisframlagið loksins
fyrir.
F.V.: — Þú minntist á
Grjótagjá. Hafa ekki heilbrigð-
isyfirvöld ákveðið að loka
henni?
Arnþór: — Það stóð til
vegna þess að umgengni við
hana var óþverraleg. Aðal-
vandinn var sá, að þarna
lögðu íslendingar leið sína eft-
ir böll og fleyttu brennivíns-
flöskum á milli sín í gjánni.
Eftirlitsmaður Náttúruverndar-
ráðs, sem er hér að sumarlagi,
fylgist nú með umgengni við
gjána og þar hefur verið kom-
ið upp snyrtingu, sem breytti
aðstöðunni mjög til bóta.
F. V.: — Óttast menn spill-
ingu náttúruverðmæta Mý-
vatnssvæðisins af völdum
ferðamanna og er hér áber-
andi andstaða meðal íbúa
gegn ferðamönnum og þjón-
ustu við þá?
Arnþór: — Það er mikill og
vaxandi áhugi meðal Mývetn-
inga á uppbyggingu ferða-
mannamiðstöðvar hér, þannig
að komið verði með skipulagi,
í veg fyrir tjón af völdum
ferðamanna. Menn voru á
móti þessu fyrst í stað, en
skilja nú, að fólkið mun halda
áfram að koma hingað, hvað
sem hver segir. Við höfum
skipulagt tjaldstæði hér við
Reynihlíð og höldum áfram
uppbyggingu þess. Sömuleiðis
er nú tjaldstæði hjá Skútu-
stöðum. Óneitanlega hafa
bændur stundum orðið fyrir ó-
næði af ferðamönnum, sér-
staklega í varplöndum. Að
öðru leyti er ekki undan
ferðafólki að kvarta vegna
slæmrar umgengni. Þeir, sem
farnir voru að óttast átroðn-
ing ferðamanna, hafa skipt um
skoðun, því að þeir sjá hversu
miklar sveiflur eru í ferða-
mennsku hérlendis. Þeir átta
sig líka á því, hverjar tekjur
við höfum af ferðamennsku.
Á sumrin er haldið uppi dag-
legum áætlunarferðum hingað
frá Akureyri en á veturna er
enginn grundvöllur fyrir slíku,
þannig að ferðir liggja alveg
niðri frá október fram í júní.
Hér í sýslu skortir enn á
skipulag oe samstarf í ferða-
málunum, þannig að farnar
væru t. d. reglulegar áætlun-
arferðir milli Húsavíkur og
Mývatnssveitar, sem ekki eru
fyrir hendi nú.
F. V.: — Heldurðu að verð-
lagsþróun á íslandi sé að
gera okkur með öllu ókleift
að taka á móti ferðafólki
þannig að erlendir túristar
verði hér alls ekki á ferðinni
nema kannski milljónerar,
sem koma með einkaþotum til
að renna fyrir lax £ ánum
sínum?
Arnþór: — í öllum verðlags-
málum höfum við enga hug-
mynd um, hvað við raunveru-
lega erum að gera. Ætlazt er
til þess, að verð séu ákveðin á
næstu mánuðum fyrir næsta
sumar. Ferðaskrifstofurnar
bíða eftir upplýsingum frá
okkur en til þess að fóta sig
á verðlagningu fyrir næsta
sumar þarf hreinræktaða spá-
menn. Þegar til kastanna kem-
ur er verðið hjá okkur sjaldn-
ast í nokkru samræmi við
raunveruleikann. Við gerum
okkur grein fyrir, að það er
ekki hægt að krefjast enn 30-
40% hækkunar á þjónustu
okkar í haust. Ef ekki verður
gerð leiðrétting á skráningu
erlends gjaldmiðils í haust er-
um við hreinlega að spila
okkur út úr túrismanum, sem
var farinn að gefa okkur um
10% alla gjaldeyristekna þjóð-
arinnar.
NOTIÐ AUGLYSINGAR TIL ÞESS AÐ NÁ ÁRANGRI —
Auglýsingar eru notaðar af fyrirtækjum, sem vita að þær
skila árangri.
Til bess að árangur náist þurfa þær að vera rétt gerðar, vel
gerðar og birtast á réttum stað.
•
Kynnið yður sérritin og notið auglýsingar til þess að ná
árangri.
Frjáls Verzlun
LAUGAVEGI 178, REYKJAVÍK. SÍMAR 82300 OG 82302.
FV 5-6 1974
33