Frjáls verslun - 01.06.1974, Side 50
Vilhjálmur Guðm,undsson, nýskipaður forstjóri Flugleiða í Kaupmannahöfn, hefur ,um árabil
fylgzt náið með framvindu ferðamála á Islandi.
íslenzk ferðamál:
Hætta á ofríki erlendra ferðaskrifstofa,
ef við veljum okkur þröng sölusvæði
Samtal við Vilhjálm Cuðmundsson, forstjóra Flugleiða í Kaupmannahöfn
Forystumenn í íslenzkum ferðamálum hafa að undanförnu Iátið í ljós ugg vegna þeirra á-
hrifa, sem óðaverðbólga innanlands og hækkuð fargjöld landa í milli gætu haft á heim-
sóknir erlendra ferðamanna til landsins og þá drjúgu tekjulind, sem ferðamennska er orðin Is-
lendingum. Þegar harðnar í ári peningalega eins og nú hefur gerzt hjá flestum vestræn'um þjóð-
um er ekki nema von að fólk, sem hafði ferðaáætlanirnar tilbúnar, hugsi sig um tvisvar og sitji
ef til vill að lokum heima. Og hvað verður þá um allt gullið, sem túristarnir áttu að færa okk-
ur í ár? Munu óvenjumiklar verðlagssveiflur innanlands algjörlega útiloka Island frá ferða-
mannamarkaði? Eða kalla ferðamennirnir kannski ekki allt ömmu sína í þessum efnum?
Við leituðum svara við þess-
um spurningum hjá manni,
sem um árabil hefur starfað
að því að sannfæra nágranna
okkar í Skandinavíu um, að
ísland sé einmitt staðurinn,
sem þeir megi sízt missa af
og bjóði upp á slika gnægð
ævintýra, að ekkert land ikom-
ist þar í hálfkvisti. Og þetta
er erfitt stríð, því að ótal sölu-
menn frá mörgum löndum
vilja klófesta ferðamanninn og
fá sinn skerf af ráðstöfunar-
fé hans.
En Vilhjálmur Guðmunds-
son, forstjóri Flugleiða hf. í
Kaupmannahöfn, lætur sér ei
allt fyrir brjósti brenna, enda
orðinn fullharðnaður í að
selja íslandsferðir eftir margra
ára dvöl í Osló og síðan í
Kaupmannahöfn, sem er brott-
fararstaður flestra EvrÓDubúa,
er leggja leið sína til íslands.
Hann er þeirrar skoðunar, að
á sínu markaðssvæði sé ekki
ástæða til að óttast, að ferða-
mannalandið ísland verði und-
ir í samkeppni vegna hækk-
aðs eldsneytiskostnaðar og
verðbólgu, innfluttrar eða
heimatilbúinnar.
V. G.: — Þó að stórkostleg-
ar verðhækkanir frá ári til
árs hafi valdið okkur sölu-
mönnum áhyggjum, er þess
þó að gæta, að ísland er ekki
eina landið, sem svo er ástatt
um. Verðbólga er líka til í
Danmörku og hér má reikna
með að almennar launahækk-
anir nemi 20% á þessu ári en
voru um 15% í fyrra. Að
sama skapi hækkar verðlagið
50
FV 5-6 1974