Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1974, Page 57

Frjáls verslun - 01.06.1974, Page 57
Hótel Edda, Varmalandi, Borgarfirði, sími um Svignaskarð. Gisting: Hótelið hefur yfir að ráða 49 rúm- um í 26 eins og tveggja manna herbergjum. Svefnpokapláss er í herbergjum án handlauga (kojur með dýnum) Hótel Edda, Varmalandi hefur opið frá 27. júní — 31. ágúst. Verð á eins manns herbergi er kr. 990.-, en tveggja manna herbergi kr. 1.325.-. Matsalur hótelsins hefur opið daglega frá kl. 8.00—23.30. Morgunverður- inn er á 325.- kr. en verð á hádegis- og kvöld- verði er samkvæmt matseðli. Dægrastytting: Á hótelinu er setustofa og sjónvarp, og sundlaug á staðnum. Hótelið er miðsvæðis í Borgarfirði. Þaðan er stutt að aka í Norðurárdal til veiða, í Börgarnes, á Mýrar, Reyk'holtsdal og í Húsafellsskóg m. a. Hótelstjóri: Jón Grétar Kjartansson. Sumarhótelið Stykkishólmi, Bók'hlöðiustíg 4, sími 93-8231 Gisting: Á sumarhótelinu á Stykkishólmi eru 18 ’herbergi eins, tveggja og þriggja manna. Verð á eins manns herbergi er kr. 1.225.-, tveggja manna herbergi kr. 1.500,- og verð á þriggja manna herbergjum, sem eru tvö er kr. 1.500.-, og kr. 1.825.-. Svenpokapláss er ekki fyrir hendi. Morgunverðurinn kostar kr. 300,- hádegisverður frá kr. 400,- — 700,- og kvöld- verður frá kr. 540.- —- 850.-. Opið er frá 6. júní — 1. september. Dægrastytting: Setustofa með sjónvarpi er á hótelinu. í bænum er sundlaug. Ferðahópar geta fengið bát á leigu til siglinga um Breiða- fjarðareyjar, en einnig siglir flóabáturinn Baldur nokkra daga vikunnar til Brjánslækjar með viðkomu í Flatey. Hótelstjóri: María Bæringsdóttir. Hóitel Bjarkarlundur, Reykhólasveit, sími um Króksfjarðarnes. Gisting: Hótel Bjarkalundur býður ferða- mönnum 'm. a. gistingu í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum, heitan mat allan daginn, kaffi, smurt brauð og kökur. í verzlun- inni fæst öl og gosdrykkir, tóbak, sælgæti og margs konar smávörur fyrir fei'ðamenn. Ben- zín og smurolíur eru afgreiddar til kl. 22.30. Bjarkalundur er góður áningastaður fyrir þá, sem leggja leið sina um Vestfirði. Opið er frá 1. júní — 1. október. Dægrastytting: Sjónvarp er i setustofunni. Sundlaug er að Reykhólum, í um 15 km fjarlægð frá ihótelinu. Hægt er að fá leigða báta á Berufjarðarvatn. Bjarkalundur er tilval- inn áningarstaður á leiðinni til og frá Reykja- vík. Þar er fallegt landslag fyrir gönguferðir og stuttar ökuferðir m. a. upp á Þorskafjarðar- heiði og að Húnaflóa. Hótelstjóri: Svavar Ármannsson. Hótel Flókalundur, Vatnsfirði, sími um Patreksfjörð. Gisting: Ferðamönnum er boðið upp á gist- ingu í eins, tveggja og þriggja manna her- bergjum. Snyrtiherbergi ásamt baði 'fylgir hverju herbergi. Heitur matur er seldur allan daginn, sömuleiðis kaffi, smurt brauð og kök- ur. Verzlunin selur m. a. öl og gosdrykki, tó- bak, sælgæti og ýmsar smávörur fyrir ferða- menn. Benzín og smurolíur eru afgreiddar til kl. 23.30. Dægrastytting: Setustofa með sjónvarpi er í nýja hótelinu. Sundlaug er að. Birkimel, sem er í um 20 mín. akstur frá Flókalundi. Veiði: Silungsveiði í Vatnsdalsvatni. Frá Flókalundi er hægt að fara í dagsferðir til ýmissa staða á Vestfjörðum s. s. Látrabjargs, í Árnarfjarðar- dali, til Patreksfjarðar og margra annarra staða á Vestfjörðum. Hótelstjóri: Heba A. Ólafsson. Gesta- og sjómannaheimili Hjálpræðishersins, Mánagöru 4, ísafirði, sími 94-3043. Gisting: Hjálpræðisherinn hefur yfir að ráða 16 herbergjum en engum svefnpokaplássum. Opið er allt árið um kring. Á gisti'heimilinu eru 4 eins manns herbergi, en 12 tveggja manna. Verð á tveggja manna herbergjum er: Á fyrstu hæð kr. 990,- en á annarri hæð kr. 800.-. Verð á eins manns herbergi á fyrstu hæð er kr. 500.- en á annarri hæð kr. 450.-. Morg- unverðurinn er á kr. 200.-, síðdegiskaffið á kr. 140.-. Hádegisverður er frá kr. 250., en kvöld- verður frá kr. 300.-. Dægrastytting: Á gisti- og sjómannaheimil- inu er setustofa með^sjónvarpi, útvarpi, góðum bókum og blöðum. Ýmislegt er hægt að gera sér til skemmtunar í bænum t. d. iðka sund í Sund'höll ísafjarðar. Ennfremur er hægt að FV 5-6 1974 57

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.