Frjáls verslun - 01.06.1974, Page 71
T álknaf jörður:
Megin verkefni sveitarfé-
lagsins hafa beinzt að skipu-
lagsmálum og undirbúningi
nýs byggðahverfis, með til-
heyrandi gatnagerð og veitu-
kerfum, og hafa nú þegar ver-
ið byggð nokkur myndarleg_ í-
búðarhús í því hverfi. Undir-
búningur í hverfinu er miðað-
ur við að aðgengilegt verði að
leggja malbik á götur. Mal-
bikun aðalgötunnar gegn um
kauptúnið heyrir undir ríkis-
framkvæmdir og mun eigi að
síðiur falla inn í heildaráætlun
vestfirzku sveitarfélaganna.
Hafizt var handa um flug-
vallargerð í Tálknafirði á sl.
ári og er talsvert fjármagn
veitt til þeirra framkvæmda á
fjárlögum ríkisins á þessu ári.
Vonir standa til, að unnt verði
að taka nokkurn hluta vallar-
ins í notkun á þessu ári.
Mikill áhugi er fyrir hús-
byggingum á Táiknafirði, og
hefir byggingaverktaki í R-vík
sýnt áhuga fyrir að reisa
nokkurn fjölda íbúðarhúsa, ef
eðlileg fyrirgreiðsla fæst.
Hraðfrystihús staðarins er
tiltölulega nýtt og hráefnis-
öflun til þesá að megin hluta
bundin við stór vélskip.
Bíldudalur:
Verulegar sveiflur hafa ver-
ið í atvinnulífi Bílddælinga á
undanförnum árum. Aukinnar
bjartsýni gætir nú aftur um
afkomu og velgengni íbúanna,
sem lýsir sér bezt í því, að þar
varð hlutfallslega mest fólks-
fjölgun á Vestfjörðum árið
1972, eða nálega 11%. Nú er
unnið að sameiningu atvinnu-
fyrirtækja á staðnum til að
treysta fjárhagsstöðu þeirra og
framkvæmdamátt við upp-
byggingu atvinnulífsins og til
að tryggja sem bezt samfellda
atvinnu.
Samfara fólksfjölgun í kaup-
túninu hefir vaknað mikill á-
hugi fyrir íbúðarhúsabygging-
um, og eru horfur á að hafizt
verði handa um byggingu
fleiri íbúðanhúsa á þessu ári
en dæmi eru til áður í sögu
kauptúnsins. Verða einstak-
lingar þar mikilvirkir, auk
Byggingarfélags verkamanna,
og byggðar verða leiguíbúðir
á vegum sveitarfélagsins.
Rækjuveiði er mikill þáttur
í útgerðinni og skapar rækju-
aflinn mikla vinnu í landi
þann tíma árs, sem rækju-
veiði er stunduð. Auk minni
bátanna er gert út stórt vél-
skip en nýtt og glæsilegt fiski-
skip mun bætast í flota Bíld-
dælinga á komandi vori.
Aðalverkefni sveitarfélags-
ins er að skipuleggja og ganga
fbá götum og veitukerfi í nýju
byggðahverfi, þar sem hin
nýju íbúðarhús verða reist.
Talsverðar framkvæmdir eru
ráðgerðar við höfnina á næsta
ári. Undirbúningur er hafinn
að byggingu íþróttáhúss. Þá
verður unnið að því að, skipta
um veitukerfi í eldri götum
og búa þær undir malbikun.
Síðastliðið sumar var hafin
stækkun flugvallar í nágrenni
Bíldudals og verður talsverðu
fjármagni varið til þeirrar
framkvæmdar á þessu ári.
FV 5-6 1974
71