Frjáls verslun - 01.06.1974, Síða 87
ig að unnt er að nota tjalddúk-
inn sem skyggni. Allt yfirborð
málmhluta er tryggilega ryð-
varið og botn vagnsins er einn-
ig smurður þykku lagi af ryð-
varnarefni.
Inni í vagninum eru 8 sm
þykkir sætispúðar og dýnur í
skærum litum. Kaffi- og eld-
húsborð eru klædd harðplasti.
Eldhúsvaskur með frárennsli
út úr vagninum fylgir og
skápar fyrir eldhúsáhöld og
gaskúta eru m. a. í Paradiso
tjaldvögnunum. Nóg rúm fyrir
fatnað, svefnpoka og aðra þess
háttar hluti er í vagninum.
Þá fylgja einnig gluggatjöld
með.
Svefnrými er fyrir 5 manna
fjölskyldu í tjaldvagninum.
Frammi í vagninum er tvíbreitt
rúm, en afturí er rúmstæði og
pláss fyrir 2 hengirúm fyrir
börn.
Ýmsir aðrir fylgihlutir fylgja
tjaldvagninum svo sem gólf-
dúkur, gaseldavél, 2 burðar-
stangir og stög og bönd fyrir
skyggni. Þá er hægt að sér-
panta ýmsa fylgihluti svo sem
klæðaskáp, gólfhitun og raflýs-
ingu, viðbótarframtjald, litið
aukatjald, sem hagnýta má
sem snyrtingu eða rými fyrir
farangur.
Verð á Paradiso tjaldvögn-
unum er: Gerð I kr. 253.000 og
gerð III kr. 279.000.
Gísli Jónsson & Co,
Klettagörðum 11, sími 86644.
CAVALIER. — Fyrirtækið
flytur inn 6 gerðir af Cavalier
hjólhýstum frá Englandi. Tvö-
falt gler er í öllum rúðum og
er hað vel einangrað. Allir
gluggar eru opnanlegir, og á
þakinu er lúga. Cavalier hjól-
hýsin eru byggð sérstaklega
fyrir íslenzkar aðstæður. M. a.
eru þa(u með hlífum að framan
til verndar fyrir grjótkasti,
sérstakir hjólbarðar eru á
þeim og undirvagninn er
styrktur. Hurðin er tvískipt.
Innréttingar eru sérstaklega
vandaðar. Inni í hýsinu er m. a.
að finna eldhússkáp, fataskáp
og salernisklefa. Tvær gas-
hellur, vatnsdæla og vaskur
fylgja eldhúsinnréttingunni.
Cavalier hjólhýsin eru öll
teppalögð og í loftinu er ljós.
Einnig fylgir mjög góður hita-
ofn. Hægt er að fá ‘kæliskáp
með öllum gerðunum af Cava-
lier hjólhýsum, en hann fylgir
dýrari gerðunum. Dýrari gerð-
irnar eru fullkomnari að því
leyti til, að í þeim er sérstak-
ur eldhúskrókur, en í eldhús-
inu er grill- og steikingarofn.
Sömuleiðis eru 4 gashellur í
eldhúsinu. í dýrari gerðunum
er gas- og rafmagnskerfi.
Cavalier 'hjólhýsin eru
600-700 kíló og kosta frá
385 — 470 þúsund krónum.
CASITA. — Gísli Jónsson &
Co. flytur inn eina stærð af
Casita fellihýsum, en aðalkost-
urinn við þau er, að unnt er
að fella þau saman. Casita
fellihýsin koma frá Hollandi
og kosta um 350 þús. krónur.
Þau eru um 400 kíló að þyngd
og eru hvít að lit. Þeim fylgir
ofn til upphitunar hýsinu.
Inni í fellihýsinu er eldhús-
skápur, fataskápur, 2 eldunar-
hellur, vatnsdæla og vatns-
tankur. Svefnrými er fyrir 4.
Sömuleiðis er i þeim borð.
Inni í Knaus-hjólhýsi.
KNAUS. — Hjólhýsi af þess-
ari gerð eru flutt inn frá V.-
Þýzkalandi, en aðeins 5 inanna.
í Knaus hjólhýsunum er ofn til
upphitunar, rafmagnskerfi, 220
volt og gasljós. Tvöfalt gler er
í öllum gluggum og eru þeir
opnanlegir. Inni í hjólhýsinu
eru tvö borð, eldhússkápar,
vaskur og vatnsdæla, fataskáp-
ar, kæliskápur og snyrtiklefi.
Þá er einnig svefnpláss fyrir
5 í rúmum í hýsinu. Knaus
hjólhýsin vega um 700 kg.
hvert og kosta um 470 þúsund
krónur. Gardínur fylgja öllum
gerðum húsvagna, sem Gísli
Jónsson & Co. flytja inn.
STEURY. — Steury eru
bandarískir tjaldvagnar. Gísli
Jónsson & Co. flytja inn 7
gerðir af þeim, 5-7 manna. All-
ar gerðirnar eru með 3 eldun-
arhellum og kæliskáp. 1-2 borð
fylgja eftir gerðum. Vaskur,
loftlúga og loftljós fylgja öll-
um tjaldvögnunum, sömuleið-
is eldhússkápur. Fataskápur er
í sumum gerðunum. Tjöldin
fást í 3 litum, hvítu og grænu
(röndótt) og brúnu. Verð á
tjaldvögnunum er um 270 þús-
und krónur. Varahjólbarði
fylgir.
Dráttarkúlur og rafmagns-
inntak fylgja öllum gerðum af
hjólhýsum, fellihýsum og tjald-
vögnum, sem fyrirtækið flytur
inn. Gaskútageymsla fylgir
með Knaus hjólhýsunum og
dýrari gerðunum af Cavalier
hjólhýsunum.
Steury-tjaldvagninn.
Gunnar Ásgeirsson hf.,
Suðurlandsbraut 16,
sími 35200.
Gunnar Ásgeirsson h.f. lief-
ur ,um langt árahil flutt inn
lijólhýsi frá Bretlandi. Eru þau
af gerðinni Sprite 400, Sprite
Alpina, Sprite Muscateer,
Sprite 1000, Europa 390L og
Europa 455JC. Hjólhýsi eru
rnikið keypt nú um þessar
mundir og er því ekki úr vegi
að gefa nákvæmar upplýsing-
ar um 'þau.
Sprite 400 er 315 sm að
lengd og vegur um 550 kg,
Sprite Alpina er 376 sm og 670
kg, Sprite Muscateer er 438 sm
að lengd og vegur samtals um
720 kg, Sprite 1000 er 497 sm
að lengd og er um 810 kg. að
þyngd, Europa 390L er 400 sm
að lengd og um 710 kg og
Europa 455JC er 850 kg. og
463 sm.
Allar gerðirnar eru með tvö-
földu gleri, 34 mm einangrun.
FV 5-6 1974
87