Frjáls verslun - 01.06.1974, Page 89
í þeim er svefnrými fyrir mis-
munandi marga allt eftir gerð-
um hjólhýsanna. Inni er eld-
hússkápur, vaskur, fataskápur,
borð og gashellur svo að eitt-
hvað sé nefnt og með Sprite
Muscateer, Sprite 1000 og
Europa 390 og 455 er Electro-
lux ísskápur.
Ýmsir aukahlutir fylgja, sem
eru innifaldir í verðinu og eru
það m. a. kemisk salerni með
snyrtingu, dráttarkúla og ljósa-
tengi fyrir bifreið, gaskúta-
geymsla framan á beizli með
festingum.
Verð á hjólhýsunum er sem
hér segir: Sprite 400, kr.
292.000, Alpina, kr. 345.000,
Muscateer, kr. 418.000, Sprite
1000, kr. 460.000, Europa 390L,
kr. 440.000 og Europa 455JC,
kr. 490.000.
Kaupfélag Hafnfirðinga,
Strandgötu 28, Hafnarfirði,
símar 50200 og 50224.
Kaupfélagið í Hafnarfirði
heíur meðal annars á boðstól-
um í verzlun sinni ýmsan við-
leguútbúnað fyrir ferðamenn.
Tjöldin eru af gerðinni Pollux
og eru tveggja, briggja, fjögra
og fimm manna í gulum og blá-
um lituan. Verð tjaldanna er
frá kr. 3.500.- — 15.035.-. Enn-
fremur er hægt að fá allar
stærðir af tjaldhimnum.
— OTHCR WORLD-FAMOUí
T “1 PRIMUS PRODUCTÍ
'Ý2150
885001
2397
Fyrirtækið selur einnig svefn-
poka í 6 mismunandi litum.
Eru þeir frá Gefjun og Belgja-
gerðinni. Pokarnir frá Gefjun
eru úr dralon og ull, en pok-
arnir frá Belgjagerðinni eru úr
ull. Verð á svefnpokunum er
frá 2.560-3.745 kr.
Vindsængurnar eru af gerð-
inni Barum og kosta kr. 1.193
og kr. 1.430. Ýmis annar við-
leguútbúnaður er seldur í
Kaupfélagi Hafnfirðinga, þ. á
m. eldunar- og hitunartæki í
tjöld, svo og matarílát. Eldun-
artækin eru m. a. af gerðinni
Primus Sievert. Verð á eld-
unartækjum er mjög breyti-
legt allt frá kr. 119-2.350. Sól-
stólar og legubekkir, bæði til
notkunar heima fyrir og á
ferðalögum fást í Kaupfélagi
Hafnfirðinga.
Samband íslenzkra
samvinnufélaga,
búsáhaldadeild, Tryggvagötu,
sími 28200.
Arjon-tjald.
Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga flytur inn og sel-
ur innlendan og erlendan við-
leguútbúnað m. a. tjöld. Til
ei-u fjölmargar gerðir af tjöld-
um, allt frá 2ja manna nælon-
tjaldi með tjaldbimni. Flutt
eru inn 4ra, 5 og 6 manna tjöld
frá Arjon í Svíþjóð og er stærð
þeirra 250x200 sm. 3ja til 4ra
manna tjöld frá sama fyrir-
tæki eru einnig til í stærðun-
um 200x80. Verð á stærri tjöld-
unum er frá kr. 8.800, en á
minni tjöldunum um 6.900 kr.
Einnig eru til tjöld frá fyrir-
tæki, sem nefnist Wrigstad, og
eru þau til í stærðunum 250x
200 og 200x180 sm. Verðið er
frá 5.175.- — 6.595.- krónur.
Einnig eru til tvær stærð-
ir af tjaldhimnum og kostar
minni gerðin kr. 1.594, en
stætrri gerðin kr. 2.002,10 Þá
selur Sambandið allt annað,
sem tjaldbúar og ferðalangar
þarfnast til útilegu, svo sem
kælibox, pottasett frá kr.
1.386, stakar pönnur á kr. 210,
staka katla á kr. 279, tjald-
öskubakka, tjaldspegla, fram-
grindur á kr. 428, Y súlur og
mæniása. Einnig eru til tjald-
fatakrókar, tjaldhamrar, tjald-
Primus-eldunartæki
teygjur o'g tjaldhælar úr stáli
og vír.
Sveínpokarnir eru frá inn-
lendum framleiðanda, Gefjun,
og eru þeir fóðraðir að innan
með ullar- eða dralonkembu.
Stærðirnar eru: 195 sm lang-
ur svefnpoki með hettu úr
dralon á kr. 3.814, 160 sm lang-
ur án hettu úr dralonkembu á
kr. 2.662 og 195 sm langur án
hettu með ullarkembu sem
fóður á kr. 2.652.-.
Vindsængurnar eru fluttar
inn frá Tékkóslóvakíu og eru
bæði til köílóttar á kr. 1.683
og einlitar á kr. 1.345 (stól-
Útigrill frá Þýzkalandi.
sængur). Til eru fleiri gerðir
af vindsængum bæði einfaldar
og tvöfaldar. Tvöföldu vind-
sængurnar kosta kr. 3.259.
Fjölbreytt úrval af eldunar-
og hitunartækjum til ferðalaga
eru seld hjá Sambandinu m. a.
frásænska fyrirtækinu Primus.
Seld eru útigrill á kr. 1.098,
grill luxus 7111 á kr. 1.526,
grill eldunarsett á kr. 581 og
annað það er þarf til, þegar
grillað er, m. a. uppkveikilög-
ur, grilltengur, viðarkol o. fl.
Þá má geta þess að til er
úrval af stökum tjaldborðum
og barnaborðum í tjöld.
FV 5-6 1974
89