Frjáls verslun - 01.06.1974, Page 91
Verzlunin Sport,
Laugavegi 13, sími 13508.
í Sport fæst úrval tjalda,
sem framleidd eru hjá Belgja-
gerðinni, Tjaldborg og Magna.
Ennfremur eru til sölu sænsk
Mansart tjöld. Stærðirnar eru
2ja, 3ja, 4ra, 5 og 6 manna,
tvílit, gul og blá og appelsínu-
gul og blá. Hægt er að' fá yfir-
segl (tjaldhimin) fyrir flestar
stærðir tjalda. Verðið er frá
8.900-14.980 kr.
Svefnpokunum má breyta í
teppi og eru þeir framleiddir
í Belgjagerðinni, Magna h.f.,
Bláfeldi og Gefjun, en einnig
eru til svefnpokar frá Frakk-
landi. Litaval er fjölbreytt og
er hægt að velja um græna,
brúna, rauða, bláa og rósótta
liti á svefnpokana, en þeir
eru fóðraðir að innan með ull,
draloni eða dún. Stærð svefn-
pokanna er venjulega 75x190,
en þyngdin er 1,5-3,5 kg. Verð-
ið er frá kr. 2.558-6.900.
í Sport fást tvær stærðir af
vindsængum. Minni gerðin er
60x180 sm og kostar kr. 1.280,
en stærri gerðin er 75x190 sm
og kostar kr. 1.373.
Til eru margar gerðir af
einnar og tveggja hellu eldun-
artækjum bæði fyrir fyllingu
og gaskúta. Sömuleiðis hefur
Sport á boðstólum útigrill fyr-
ir viðarkol, en þau njóta mik-
illa vinsælda nú. Verð á þeim
er kr. 1.081. Þá eru til sölu
skemmtileg pottasett á kr.
1.200.
Verzlunin IJtilíf,
Glæsibæ, Álfheimum 74, sími
30755.
Verzlunin Útilíf er tiltölu-
lega ný verzlun, sem þegar
hefur getið sér góðan orðstý.
Þar eru seldar allar hugsanleg-
ar vörur til íþróttaiðkana og
útilífs, þ. á m. ýmis viðlegu-
útbúnaður.
Tjöldin, sem seld eru í verzl-
uninni, eru frá íslenzkum
framleiðendum, — Tjaldborg,
Magna og Belgjagerðinni. Til
eru eins og tveggja manna
tjöld, svokölluð göngutjöld, og
vega þau aðeins um 2.2 kg. Þá
eru einnig til 2ja, 3ja, 4ra, 5
og 6 manna tjöld. Tjöldin eru
venjulega gul eða appelsínu-
gul að lit, með bláum tjald-
himni. Verð er frá kr. 10.415-
25.550. 5 og 6 manna tjöldin
eru fáanleg með tjaldhimni,
sem nær einn meter fram fyrir
tjaldið og myndar eins konar
forstofu. Þar er tilvalinn stað-
ur til matartilbúnings.
Alls selur Útilíf um 9 teg-
undir af svefnpokum frá Gefj-
un, Magna, Bláfeldi og ensk-
um framleiðendum. Þeir eru
yfirleitt um 2 m að lengd. Fást
pokarnir í litum eins og rauð-
um, gulum, grænum, bláum,
svörtum og brúnum. Svefnpok-
arnir eru fóðraðir að innan
með ull, diolin eða dún, en að
utan eru þeir úr bómull eða
flóneli. Verð á ullarpokum er
frá kr. 2.760, diolin svefnpok-
um kr. 3.260, 3.860 og 4.775, en
á dúnpokum er verðið 6.900 og
7.700 kr.
Vindsængurnar koma frá
Tékkóslóvakíu og fást bæði
ein- og tvíbreiðar. Verðið á
þeim er kr. 1.350 og 2.500._Enn-
fremur fást í Útilífi
dýnur, sem þegar hafa tekið
við af vindsængum og eru vin-
sælli. Kosta tjalddýnurnar
frá kr. 1.235-1.810.
Picnic fötur með diskum,
pottum, pönnu og glösum eru
afar hentugar til ferðalaga og
kosta þær kr. 2.250 og kr.
3.150. Matartöskur með hnífa-
pörum, kæliboxi og diskum
kosta kr. 2.375.
Útilíf selur ýmislegt annað,
sem gott er að hafa með í
ferðalagið, þ. á m. gastæki, hit-
unartæki og Ijós frá Primus,
kælitöskur í tveimur stærðum
á kr. 870-1.435, diska, hnífa-
parasett og ýmislegt fleira í
lausu.
Ódýr tjaldborð og stólar með
örmum, sem má leggja saman,
fást í verzluninni og kosta
tjaldborðin kr. 1.250, en stól-
arnir kosta kr. 1.045 og kr.
1.670 (stoppaðir).
Tómstundahúsið,
Laugavegi 164, sími 21801.
Tómstundahúsið liefur á boð-
stólum fjölbreyttan viðlegu-
útbúnað. Fyrirtækið selur
margar gerðir af tjöldum 2ja,
3ja, 4ra, 5, 6 og 7 manna
frá Magna h.f., Tjaldborg,
Belgjagerðinni og erlcndum
framleiðanda frá Pól-
landi. Tómstundahúsið liefur
ennfremur á boðstólum liús-
tjöld. Litir tjaldanna eru: Gul-
ur, appelsínugiulur, rauður,
blár og grænn. Hægt er að fá
ýmsan sérútbúnað með tjöld-
unum svo sem yfirsegl með 1
meters framlengingu, sem liald-
ið er uppi af aukasúlu. Verð
tjaldanna er frá 9.255-32.050
kr.
Þessi tjaldtegund hefur
reynzt mjög vinsæl.
Svefnpokarnir eru frá Blá-
feldi, Magna h.f., Gefjun og
Marcelis, belgískum framleið-
anda. Svefnpokarnir fást í
stærðunum 180x60 sm, 190x70
sm og 200x85 sm. Eru þeir
fóðraðir að innan með diolin,
draloni, polyester, dagron eða
ull. Verð á svefnpokum er frá
kr. 2.400-4.400. Einnig eru í
Tómstundahúsinu seldar pólsk-
ar vindsængur 2ja eða 3ja
hólfa. 3ja hólfa sængurnar er
hægt að spenna upp og nota
sem sæti. Verð á vindsængum
er frá kr. 995-1.350.
Þá er til sölu ýmis annar við-
leguútbúnaður fyrir ferða-
menn svo sem tjalddýnur úr
listadúnsvampi, klæddar með
vynildúk á kr. 1.390, tjaldborð
með fjórum stólum á kr. 3.150
og eldunar- og hitunartæki í
tjöld og matarílát. T. d. eru
til slík tæki með einni eða
tveimur hellum frá Primus,
Tulley og Camping gaz. Verð
er frá kr. 1.050-3.600.
Vesturröst hf.,
Laugavegi 178, sími 16770.
Nýlega opnaði Vesturröst
h.f. verzlun með íþróttavörur
og viðleguútbúnað að Lauga-
vegi 178. Eru þar m. a. seld
tjöld, aðallega ristjöld frá
tveggja manna til 6-7 manna
fjölskyldutjalda. Fást þau í
appelsínugulum og bláum lit
(tvílit). Verð tjaldanna er frá
9.780 kr. og allt að kr. 27.000.
Með þeim er fáanlegur ýmis
sérútbúnaður svo sem yfirsegl,
sem nær alveg nið,ur að jörðu,
og einnig fást tjaldhimnar með
svokallaðri forstofu, sem til-
FV 5-6 1974
91