Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1975, Page 13

Frjáls verslun - 01.10.1975, Page 13
fjármagnsþörfin er mjög mikil bæði hjá mér og öðrum inn- flytjendum. Við þurfum að kaupa vöru, borga toll af henni og síðan getum við farið að selja hana. Það tekur einn til tvo mánuði að selja vöruna og að fá hana greidda með pen- ingum eða víxli og þetta milli- bil er erfitt að brúa. Við gæt- um selt miklu meira ef við hefðum greiðari aðgang að fjármagni. Kaupmenn á Norð- urlandi þurfa að leita suður í vöruöflun vegna þess að inn- flytjendur hér anna ekki eftir- spurninni og höfum orðið að minnka vöruvalið t. d. hvað viðkemur hreinlætisvörum og kexi. — Er það kostur fyrir kaup- menn á Norðurlandi að versla við ykkur fremur en heildsala í Reykjavík? — Ég tel að okkar vara sé ó- dýrari í innkaupum fyrir þá en vara sem flutt er að sunnan. Þar bætist flutningsgjald ofan á en það mun vera kr. 7.25 á kílóið með bíl. Flutningsgjald með skipum er að mínum dómi ennþá hærra þegar allt er reiknað með þ. e. útskipun, hafnargjald, flutningsgjald, uppskipunargjald og hafnar- gjöld hér og loks heimkeyrsla. Þar bætist svo við meiri og minni skemmdir á vörunni, en slikar skemmdir eru viðburður þegar þær eru fluttar á milli með bíl. VÖRUSKEMMDIR — Þú nefnir vöruskemmdir. Er það ekki fyrirbrigði sem heildsalar úti á landi verða meira fyrir barðinu á en heild- salar í Reykjavík? — Jú tvímælalaust. Þegar varan er flutt beint hingað með skipi megum við vel við una. En þegar vörunni er umskip- að í Reykjavík er annað uppi á teningnum. Verkstjórar hjá skipafélögum í Reykjavík virð- ast ekki hafa tök á því að láta menn sína meðhöndla vöruna nægilega vel. Það kemur fyrir að allt að 20% af vörunni er skemmt eftir umskipun í Reykjavík. — Nú er hafnaraðstaða á Akureyri afar léleg. Kemur það ekki niður á meðferð vör- unnar í uppskipun? — Það er satt að aðstaðan er fyrir neðan allar hellur. En starfsmenn skipafélaganna á Akureyri fara sérstaklega vel með vörur. Þeirra vinnubrögð eru til fyrirmyndar. — Þú nefndir að þú hefðir fækkað vörutegundum. Er það ekki jákvætt fyrir íslenskan iðnað? — Hvað snertir brauðtegund- irnar og kexið, þá tel ég að fólk yrði leitt á að fá eingöngu rúgbrauð, franskbrauð og vín- arbrauð og hér eru ekki til brauðgerðir eða verksmiðjur til að anna fjölbreyttari fram- leiðslu. Auk þess tel ég að of mikið hafi verið fjargviðrast út af einmitt þessum innflutningi og gjaldeyriseyðslu í sambandi við hann, en efni standa til. í beinu framhaldi af þessu vil ég nefna að mig undrar hve ís- lenskir iðnrekendur nota heild- salana lítið. Þeir nota heldur einkaaðila til að dreifa vörum sinum en heildsölurnar. HAGSTÆÐARA AÐ SELJA INNLENDAR VÖRUR — Getur það ekki stafað af því að íslensku framleiðend- urnir óttist samkeppnina við erlcnd’u vörurnar, sem heild- salarnir hafa á boðstólnum? — Ég held að það sé ekki viðunandi skýring, þar sem hagstæðara væri fyrir okkur að selja innlenda vöru en inn- flutta. Innflutta vöru þurfum við að greiða áður en við tök- um við henni, en innlendar vörur fáum við lánaðar í tvo mánuði. Þar að auki fæ ég hærri sölulaun fyrir innlenda vöru en álagningin er á þeirri erlendu. Að lokum spurðum við Valdemar hve umfangsmikill rekstur hans væri í dag og hversu lengi hann hefði starf- rækt heildsöluna. Valdemar svaraði því til að hann væri bú- inn að vera heildsali í 8 ár og að nú væru starfandi 6 manns hjá fyrirtækinu auk hans sjálfs. Fyrirtækið er nú í eigin húsnæði, sem er 470 fermetrar að stærð og er það við Tryggva- braut á Akureyri. Ný Símaskrá Pennans 82311 SKRIFSTOFA SKIPTIBORÐ 83464 BEÍN LÍNA SÖLUDEILDAR 10130 VERZLUNIN HAFNARSTRÆTI 18 10133 VERZLUNIN LAUGAVEGI84 38402 VERZLUNIN LAUGAVEGI 178 FV 10 1975 13

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.