Frjáls verslun - 01.10.1975, Page 17
IMýja vöruhöfnin veldur gjörbyltingu
í vöruflutningum til og frá
Akureyri
Um 100 þús. tonn af vöru flutt um höfnina á ári
Akureyrarhöf n:
Unnið við að reka niður stálþilið í nýju vöruhöfninni á Akureyri.
Nú er verulegur skriður
kominn á framkvæmdir við
vöruhöfnina á Akureyri eftir
að 80 milljón króna erlent lán
fékkst til verksins, en eins og
k'unnugt er þá hafa ýmsir
tæknilegir gallar valdið margra
ára töfum á eðlilegum fram-
kvæmdahraða við vöruhöfnina.
Hafa þessar tafir valdið bæn-
um og íbúum hans verulegu
tjóni og óþægindum. En nú
virðast þessar tafir vera að
baki, sem betur fer, og ef allt
fer samkvæmt áætlun ætti að
vera hægt að taka 1. áfanga
vöruhafnarinnar í notkun
seinni hluta næsta árs.
LOKIÐ NÆSTA SUMAR
Pétur Bjarnason, hafnar-
stjóri á Akureyri, sagði í við-
tali við Frjálsa verslun, að um
þessar mundir væri verið að
ljúka við rekstur stálþilsins í
vöruhöfninni og strax að því
loknu verður hafist handa við
að ganga frá festingum þess.
Er vonast til að því verði lok-
ið um áramót, en í byrjun
næsta árs verður dýpkað fyrir
framan þilið og austan við það
og steyptur bryggjukantur. Er
gert ráð fyrir að búið verði að
ganga frá lögnum og þekju
næsta sumar og þá er ekkert
því til fyrirstöðu að kanturinn
verði tekinn í notkun. Sam-
kvæmt áformum verður síðan
ráðist í næsta áfanga, sem er
gerð austurkants á Oddeyrinni.
Verður Eimskipafélagi íslands
ætluð forgangsstaða við fyrsta
áfanga hafnarinnar, en KEA
og Ríkisskip fá forgangsaðstöðu
við annan áfangann.
GJÖRBYLTING í VÖRU-
FLUTNINGUM
—- Það hlýtur öllum að vera
ljóst, sagði Pétur, að tilkoma
vöruhafnarinnar og þeirra
vöruskemma, sem Eimskip og
aðrir aðilar ætla að koma sér
upp þar, hefur í för með sér
gjörbyltingu, en öll aðstaða til
vöruflutninga til og frá Akur-
eyri er í dag hlutfallslega
miklu verri en hún var um
aldamótin. Mér finnst það í
raun og veru mjög undarlegt
að vöruskemmdir vegna lélegr-
ar aðstöðu við gömlu bryggj-
una skuli ekki vera miklu
meiri en raun ber vitni um. En
það gefur auga leið að eftir að
nýja höfnin verður komin í
gagnið verður hægt að vinna á
miklu hagkvæmari hátt að af-
greiðslu skipa og vörumeðferð
hlýtur að verða öll önnur en
hún er í dag.
Síðan vék Pétur að því að
samkvæmt hafnargerðaráætl-
un, sem var lögð fram á Al-
þingi sl. vetur er gert ráð fyrir
að annar áfangi vöruhafnar-
innar verði hannaður á þessu
ári, en að ráðist verði í fram-
kvæmdina sjálfa árið 1977 og
vonandi gæti orðið af því. Hins
vegar kvaðst hann ekki þora
að spá um það hvenær höfnin
yrði komin í það form sem
henni er endanlega ætlað.
— En eitt er víst, sagði Pét-
ur, að drátturinn er orðinn
meiri en nógur, og margir að-
ilar orðnir langeygðir eftir því
að sjá vöruhöfnina verða að
veruleika.
100 ÞÚS. TONN Á ÁRI
Loks kom hafnarstjórinn inn
á skipakomur til Akureyrar og
gat þess í því sambandi að
vörumagn sem færi um höfn-
ina á einu ári væri um 100
þúsund tonn, en þar af er ná-
lega helmingur bensín og olía.
FV 10 1975
17