Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1975, Page 37

Frjáls verslun - 01.10.1975, Page 37
sektum eða varðhaldi, ef ekki er ákveðin sérstök refsing við brotinu í öðrum lögum.“ KÚGAÐIR NEYTENDUR EÐA NAUT? Bíleigendur eru án efa þeir neytendur á íslandi, sem greiða mest í ríkissjóð í formi neyslu- skatta. Bíleigendur verða að þola sífelldar hækkanir á rekstrarvörum og þjónustu. Auk þess þurfa þeir að þola síaukin gjöld og skatta til rík- issjóðs, án þess að fá nokkuð í staðinn. Gjöld sem ríkið legg- ur á rekstrarvörur undir því yfirskyni að fjármagna endur- bætur á vegakerfi landsins, eru iðulega notuð til annarra þarfa ríkisins, án þess aS bileigendur séu spurðir. Tryggingafélög komast upp með það ár eftir ár að hækka iðgjöld, án þess að bíleigendur mögli. Bíleigendur láta bjóða sér það að tryggingafélögin starfi eftir úreltum reglum ár- um saman, þannig að iðgjöld eru miskunnarlaust hækkuð á bíleigendum, sem ekki hafa bakað félögunum nokkurt tjón í áratugi. Og láta þeir hafa sig í, að greiða hluta af þeirri hækkun sem tiltölulega fá- mennur hópur bíleigenda skap- ar með kunnáttuleysi, glanna- skap og vítaverðu gáleysi. Þetta eru menn sem vaida hvei’ju tjóninu á fætur öðru, og í stað þess að þeir beri iðgjöld í samræmi við áhættu, komast tryggingafélögin upp með það, að jafna þessum tjónum yfir á meirihlutann, sem ekkert hef- ur til saka unnið, annað en keyra gætilega. Varahlutaþjónusta er einn af höfuðverkjum bíleigandans. Dæmi eru um það að nýr bíll hafi staðið í 8 mánuði vegna skorts á varahlutum, og um- boðsmenn logið hverri sögunni á fætur annarri: þetta sé kom- ið í toll, eigi einungis eftir að leysa út o. s. frv. Og víst er, að þetta er ekkert einsdæmi, enda láta bíleigendur bjóðá sér allt. Bifreiðaeftirlit ríkisins er gott dæmi um þá þjónustu, sem ríkið býður þessum kúg- aða hluta þegna sinna, sem endurgjald fyrir þá rányrkju sem þeir mega þola. Það er ekki nóg með að að- staða þessarar stofnunar sé til háborinnar skammar, heldur er þetta aðstöðuleysi þess vald- andi, að skoðun bifreiða er engin trygging fyrir öryggi þeirra, og alls ekki hægt að ætlast til þess að starfsmenn þessarar stofnunar geti rækt starf sitt til nokkurrar hlítar. Fyrir bragðið eru slysavaldar og rúllandi líkkistur á ferð og flugi um götur og þjóðvegi. Langlundargeð bíleigenda er slíkt, að ár eftir ár komast ráð- herrar upp með að lýsa því yf- ir hundapurkulegir, að fjár- veiting til bifreiðaeftirlits hafi verið skorin niður við trog, eða alls ekki komist inn á fjárlög. Bíleigendur eiga heimtingu á því, að árlega sé framkvæmd ströng skoðun á öryggisbúnaði bíla og þannig tryggt að slysa- valdar séu tafarlaust teknir úr umferð. Til þess þarf aðstöðu undir þaki og fullkomin próf- unartæki, eins og gerist á öll- um öðrum Norðurlöndum. Slík stofnun væri um leið fær um að meta og benda á illa unna verkstæðisvinnu og vera þannig bíleigendum aðstoð í að ná rétti sínum. EITTHVAÐ VERÐUR AÐ GERA Það er alveg makalaust hvernig hægt er að pretta og kúga bíleigendur, án þess að jafnvel félagasamtök geti þar rönd við reist. F.Í.B. er meira og minna máttlaust, bæði gagn- vart ríkinu og öðrum þjónustu- okrurum. Neytendasamtökin eru nú einu sinni spegilmynd af hin- um réttlausa íslenska neyt- anda, og mega ekkert róttækt gera, fyrr en lögum hefur ver- ið breytt, hvenær sem það verður nú. Bílgreinasambandið er mátt- laust apparat á þessum vett- vangi og svarar kvörtunum jafnvel á þá leið, að viðkom- andi verkstæði hafi verið vikið úr sambandinu og því ekkert hægt að gera. Enda virðist það engu breyta fyrir verkstæði, hvort það er í Bílgreinasam- bandinu eða ekki. Nei, bíleigendur eiga að taka sig saman og stofna stétt- arfélag, sem byrjaði á því að standa upp í hárinu á ríkis- valdinu með kröftugum mót- mælaaðgerðum. Síðan þarf að taka verkstæðismafíuna fyrir með skinulöeðum aðgerðum. Það þarf að byrja á því að safna og skrá sem flest vafa- söm viðskinti, sem fólk telur sig hafa átt við þjónustufyrir- tæki, þannig að einhver heild- armynd fáist. Sú mynd verður ekki fögur. en hún gæti senni- lega fengið fólk til að rumska og vakna upp af neytenda- svefninum. IÞRÓTT ABLAÐIÐ Sérrit um íþróttir og útilíf Góð lesning í góða veðrinu Áskriftarsími 82300 FV 10 1975 37

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.