Frjáls verslun - 01.10.1975, Page 39
Samtiðarmaður
Jón Magnússon, form. Félags ísl. stórkaupmanna:
„Rekstrarfjárþörf heildverzl-
unarinnar hefur aukist um 60%
á einu ári44
Samtíðarmaðurinn, sem Frjáls verslun kynnir að þessu sinni er Jón Magnússon, formaður Fé-
lags ísl. stórkaupmanna og framkvæmdastjóri hjó Johan Rönning hf. Jón Magnússon hóf störf
hjá því fyrirtæki aðeins sautján ára gamall, að loknu Verzlunarskólaprófi. Síðan hefur hann
unnið samfellt hjá sama fyrirtækinu og var um tíma við nám hjá umboðsaðilum þess í Svíþjóð.
Frjáls verslun ræddi við Jón um fyrirtæki hans, hag heildverzlunar í landinu, og starfsemi
Heildar hf., sem Johan Rönning hf. er aðili að.
J. M. — Ég hóf verslunar-
störf hjá Johan Rönning, raf-
virkjameistara, árið 1939, en
hann stofnaði raftækjavinnu-
stofu sína 1933. 1941 var fyrir-
tækinu breytt í hlutafélag og
gerðist ég þá hluthafi. Rekstur
slíks fyrirtækis, er í dag kall-
aður rafverktakar. Sem raf-
verktaki annaðist fyrirtækið
margb.reytileg störf í þágu
rafvæðingar og var starfsfólk
að jafnaði um 50 manns. Með-
al annarra verkefna má nefna
uppsetningu rafstöðva víða um
land, lagningu raflína, upp-
setningu rafvéla og búnaðar í
síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
ur, frystihús og verksmiðjur
jafnt í Reykjavík, sem úti á
landi. Einnig nýlagnir og við-
gerðir í íbúðarhúsum, bátum og
skipum ásamt viðgerðarþjón-
ustu fyrir rafvélar og heimilis-
tæki, svo hér var um margvís-
leg verkefni að ræða.
Árið 1961 seldi Johan Rönn-
ing hf. rafverkastarfsemi sína
og breytti rekstrinum í um-
boðs- og heildverslun, eingöngu
með rafmagnsvörur. Johan
Rönning hf. hefur nær öll sín
viðskipti við Svíþjóð og erum
við umboðsmenn ASEA-sam-
steypunnar sem e,r vel þekkt
hér fyrir framleiðslu sína á
rafmagnstækjum og búnaði, en
sem kunnugt er, þá eru raf-
stöðvarnar og tengivirki frá
ASEA við Ljósafoss og Stein-
grímsstöð við Sog og við Lax-
árvirkjun. Einnig hefur ASEA
afgreitt mikið af há- og lág-
spennuvirkjum, spennistöðvum
og öðrum rafbúnaði til hinna
ýmsu rafveitna víðsvegar um
landið. Dótturfyrirtæki ASEA
eru einnig vel þekkt hér fyrir
vörur sínar t. d. Liljeholmens
Kabelverk fyrir sæ- og jarð-
strengi, Kabeldon í tengibún-
aði, Járnkost fyrir rafmagns-
ofna og Thrige- Titan í Dan-
mörku fyrir .rafmótorana.
Auk þess höfum við viðskipti
við England, Þýskaland og
Sviss.
Viðskiptavinir okkar hér eru
m. a. rafverktakar, rafveitur,
innkaupastofnanir, frystihús
og verksmiðjur.
F.V.: — Fer ekki mikill hluti
af þessum viðskiptum fram
samkvæmt útboði og hvernig
Jón Magnússon: Reynslan af veru okkar í húsakynnum Heildar,
húsfélagi 20 fyrirtækja, hef'ur verið mjög góð.
FV 10 1975
39