Frjáls verslun - 01.10.1975, Blaðsíða 41
Á lagernum hjá Rönning. Fyrirtækið hefur annast margbreytileg
störf í þágu rafvæðingar í Iandinu.
er staðið að slíkum málum hér-
lendis, t. d. hjá opinberum að-
ilum, sem leita tilboða í raf-
magnsbúnað?
J.M.: — Jú, mikill hluti við-
skiptanna eru tilboð samkv. út-
boði, bæði fyrir einkaaðila og
opinber fyrirtæki og það verð-
ur að segjast eins og er, að
mjög misjafnlega er staðið að
þessum útboðum hjá hinu op-
inbera. Því miður virðist eng-
inn staðall vera til um e.rlend
útboð, meira farið eftir reglum
og hefð, sem hinir ýmsu opin-
beru aðilar hafa sjálfir sett
sér gegnum árin.
Ég tel mjög brýna nauðsyn
að láta gera staðal um þessi út-
boð og eftir því er ég best veit,
þá er unnið að rannsókn þessa
máls hjá Iðnaðarmálaráðuneyt-
inu.
Til er íslenskur staðall frá
1969 „IST 30“ um almenna út-
boðs- og samningsskilmála um
verkframkvæmdir en hann er
eingöngu ætlaður innlendum
útboðum, sem sagt útboð fyrir
nokkur hundruð þúsund krón-
ur, er hægt að gera hér sam-
kvæmt „IST 30“ en þegar
um hundruð milljóna er að
ræða vegna erlendra útboða þá
er enginn löggiltur staðall til
að fara eftir. Vonandi verður
ekki langt að bíða, þar til
þetta verður lagfært.
F.V.: — Johan Rönning hf.
hefur aðsetur í liúsakynnum
Heildar í Sundaborg. Hver
hefur reynslan verið af rekstri
þessarar heildverslanamiðstöðv-
ar? Hafa nokkur sérstök
vandamál gert vart við sig í
þessari sambúð?
J. M.: — Reynslan af veru
okkar hér í húsakynnum Heild-
ar hefur gefið mjög góða raun.
Húsnæði, það er við áður höfð-
um, var eiginlega á 3ju hæð og
aðstaða öll erfið fyrir þann
.rekstur, sem við erum með.
Hér getum við beitt nútíma-
tækni við vörumóttöku og af-
hendingu. Með því að hafa okk-
ar eigin rafmagnslyftara og
rétt hannað birgðarými tekur
nú aðeins % klst. að taka við
sama vörumagni og tók okkur
1-2 daga í fyrra húsnæði.
Það var vegna frumkvæðis
Félags ísl. stórkaupmanna að
20 meðlimafyrirtæki stofnuðu
húsfélag, er síðar hlaut nafn-
ið Heild hf. Tilgangurinn var
að byggja sameiginlegt skrif-
stofu- og vörugeymsluhús á
lóð þeirri við Sundahöfn, er
Reykjavíkurborg hafði úthlut-
að þessum fyrirtækjum.
Þessar byggingar sem hann-
aðar eru af arkitektunum Guð-
mundi Kr. Guðmundssyni og
Ólafi Sigurðssyni, eru 5 hús
samtengd með stigahúsum,
þannig að innangengt er í
hvert fyrirtæki úr 250 metra
löngum gangi á 2. hæð, er ligg-
ur í miðju eftir endilangri
húsaröðinni. Það þarf því ekki
að fara út til að komast milli
fyrirtækja. Húsin heita Sunda-
borg.
Stofnun Heildar var stórt
skref í hagræðingarátt, enda
var tilgangur okkar með skipu-
lagi húsanna að skapa sem
besta aðstöðu til innbyrðis
samstarfs, þar sem öll starf-
semi fy.rirtækjanna er á ein-
um stað þ. e. vörugeymslur og
skrifstofur. Húsin eru staðsett
á því svæði borgarinnar, sem
sérstaklega er skipulagt fyrir
slíka starfsemi þ. e. vörudreif-
ingu og við framtíðarhöfn borg-
arinnar.
F. V.: — Hvað sparast með
þessu fyrirkomulagi i sameig-
inlegri þjónustu?
J.M.: — Heild hf. rekur sína
eigin skrifstofu, er annast allan
rekstur Heildar og er það hlut-
verk hennar að koma á sem
mestu samstarfi milli fyrir-
tækjanna. Skrifstofunni veitir
forstöðu Sigurður Jónsson,
framkvæmdastjóri Heildar hf.
Þegar höfum við sameinast
um akstur, nætur- og hús-
vörslu, telex, ljós.ritun, póst-
þjónustu, frágang banka- og
tollskjala. Enn sem komið er
þá er það akstur á vörum, sem
sparað hefur fyrirtækjunum
langmest og má ætla að þau
14 fyrirtæki, sem í honum taka
þátt spari um 8 milljónir kr. á
ári eða um 600 þús. á hvert
fyrirtæki að meðaltali. Þau
fyrirtæki, er þátt taka í telex-
þjónustu spara í fastagjaldi
300 þús. árlega.
Um póstþjónustuna er það að
segja, að ef gert er ráð fyrir
að fyrirtæki hafi, áður en
Heild tók að sér þessa starf-
semi, haft pósthólf á aðalpóst-
húsinu og því þurft að senda
eftir honum, má ætla, að kostn-
aður á hvert fyrirtæki hafi
numið kr. 145 þús. á ári og
samtals fyrir 20 fyrirtæki kr.
2.9 millj. króna. (Er hér miðað
við 1 klst. á dag á 600 kr. x 20
fyrirtæki - 240 vinnudagar).
Það sem Heild tekur fyrir
þessa þjónustu er um kr. 500
þús. þannig að netto-sparnað-
ur er um 2,4 milljónir á ári.
Frágangur banka- og toll-
skjala er það nýbyrjaður, að
ekki er komin full reynsla á
hvað þjónusta þessi getur spar-
FV 10 1975
41