Frjáls verslun - 01.10.1975, Qupperneq 50
nokkrar klukkustundir, storkn-
ar í kerjum verksmiðjunnar og
það getur þýtt hundruð milljón
króna tap fyrir fyrirtækið. Af
þessu má sjá hve mikilvægt
Nýbygginga-
tæknideild
Pálmi Stefánsson, forstöðu-
maður nýbyggingatæknideild-
ar ísal, er fæddur í Hafnarfirði
1938. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1958 en tók síðan próf í for-
spjallsvísindum frá Háskóla ís-
lands og jafnframt hið minna
fiskimannapróf við Stýri-
mannaskólann og var stýrimað-
ur á bátum í nokkur ár. Árið
1966 útskrifaðist hann síðan
sem efnaverkfræðingur frá há-
skólanum í Þrándheimi með
sérstöku tilliti til matvæla-
framleiðslu. Pálmi hóf síðan
starf hjá Fiskimjölsverksmiðj-
unni hf. í Vestmannaeyjum
1967 og annaðist þar eftirlit
með framleiðslu, en þegar
bannað var að veiða Suður-
landssíldina var fyrirsjáanleg-
ur verkefnaskortur hjá verk-
smiðjunni. Um það leyti aug-
lýsti Alusuisse eftir starfs-
mönnum fyrir hina nýju verk-
smiðju sína á íslandi og sótti
það er að mennirnir kunni sitt
fag hér.
Sigurður sjálfur sem er raf-
magnsverkfræðingur að mennt-
un lauk prófi í Stokkhólmi ár-
ið 1962. Hann vann eitt ár hjá
háskólanum þar áður en hann
hóf störf hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur. Eftir þriggja ára
starf þar fór hann til Alusuisse
þar sem hann vann að undir-
búningi á uppsetningu rafbún-
aðar verksmiðjunnar í
Straumsvík. Einnig vann hann
að útboðum og úrvinnslu
þeirra. Þegar heim var komið
tók Sigurður við umsjón og
rekstri á rafbúnaði verksmiðj-
unnar. Þar til um síðustu ára-
mót stjórnaði Sigurður ásamt
Braga Erlendssyni teiknistofu
fyrirtækisins og verkáætlunar-
deild, en þá var gerð skipu-
lagsbreyting þannig að Bragi
sér um tedknistofuna en Sigurð-
ur um rafmagns- og verkáætl-
unardeildina.
Sigurður er Reykvíkingur og
er 38 ára gamall.
Pálmi um. Hann var ráðinn til
þjálfunar erlendis í marz 1968
og var fyrst í Austurríki, þar
sem rekin er lítil álverksmiðja,
sem segja má að sé eins konar
háskóli fyrirtækisins, þar sem
fram fer alhliða kynning á þvi.
Þar næst tók Pálmi við starfi
á verkfræðistofu Alusuisse í
Zúrich en var síðan beðinn að
koma heim og taka að sér
starf í byggingardeild í apríl
1969. Byggingadeildin hafði
með höndum umsjón með upp-
byggingu verksmiðjunnar í
Straumsvík, niðursetningu
tækja og síðar lengingu skála
no. 1 og frágangi á honum og
siðar meir skála no. 2. Bygg-
ingadeildin var lögð niður 1972
og þá nók ný deild til starfa,
nýbyggingatæknideild, sem
Pálmi hefur vedtt forstöðu síð-
an 1973.
Um launakjörin hjá Alusu-
isse sagði Pálmi, að þegar hann
fór utan hefði hann fengið þar
þriðjungi lægri laun, en hann
hafði í fiskimjölsverksmiðjunni
í Eyjum. Gengisfellingar hefðu
hins vegar breytt dæminu en
launin lækkuðu síðan þegar
hann kom heim aftur. Voru
þau þá álíka mikil og byrjun-
arlaunin, sem Pálmi hafði feng-
ið í Eyjum. Annars fara launa-
greiðslur Alusuisse eftir að-
stæðum í hverju landi.
Pálmi Stefánsson sagði, að
eins og nú áraði væri áherzla
lögð á að hafa sem fæsta menn
i deild sinni en kaupa fremur
þjónustu af verkfræðingum og
vinnu verktaka.
Meðal þeirra mála, sem und-
ir deildina heyra eru mengun-
arvarnir. Nú er í undirbúningi
að setja upp tæki til að hreinsa
kergufurnar og bæta þar með
loftið í skálunum og draga úr
mengun umhverfisins. Þetta
verkefni mun kosta um tvo
milljarða og taka þrjú ár.
Um stækkun verksmiðjunn-
ar sagði Pálmi, að til stæði að
lengja skála no. 2 og fjölga
kerjunum þar um 40. Síðan
myndi þróun orkumála úti í
heimi ráða því, hvort eftirsókn-
arvert þætti að byggja fleiri
kerskála, en verksmiðjan á
möguleika á meira landrými
handan Reykjanesbrautarinn-
ar.
Þá eru uppi áform um að
byggja nýtt mötuneyti og skrif-
stofuhúsnæði. Mun hið nýja
mötuneyti byggt til að þjóna
1200 manns, en það sem nú er
fyrir hendi er miðað við 640
manns.
50
FV 10 1975