Frjáls verslun - 01.10.1975, Side 53
Framleidslu-
stjóri
Einar Guðmundsson, verk-
fræðingur gegnir starfi fram-
leiðslustjóra hjá fsal. Hann
varð stúdent frá Menntaskól-
anum á Akureyri 1953 og starf-
aði síðan á teiknistofunni hjá
Landssmiðjunni í tvö ár til að
„safna peningum“ eins og hann
orðaði það. Einar hóf síðan
nám í verkfræði í Þýzkalandi
og lauk fyrrihlutaprófi 1957.
Það ár lá leið hans upp á
Keflavíkurflugvöll, þar sem
hann vann um skeið en síðan
hélt hann náminu áfram við
tækniháskólann í Darmstadt og
lauk þar prófi árið 1961.
Þegar Einar sneri heim til
íslands á nýjan lerk réði hann
sig í vinnu á teiknistofu SÍS
og var þar í tvö ár en fór siðan
til Landssmiðjunnar aftur og
var þar til ársins 1969 er leiðin
lá til ísals.
Undir embætti framleiðslu-
stjóra heyrir yfirstjórn fram-
leiðslunnar umsjón með að
framleiðslan gangi snurðulaust,
að framleitt sé ákveðið magn á
ári á sem hagkvæmastan hátt
með sem minnstum tilkostnaði.
þegar talað væri um viðhalds-
aðgerðir ISALS mætti ekki
gleyma hinum stóra þætti
starfsmannanna í því.
— Ég tel að við i rekstrar-
deildinni höfum yfirleitt alltaf
verið mjög heppnir með starfs-
menn. íslenskir iðnaðarmenn
eru á heimsmælikvarða þegar
þeir vilja það við hafa. Vegna
staðhátta hér á íslandi verður
menntun þeirra og þjálfun
fjölbreytt og þeir eiga auðvelt
með að vinna saman. Mér hef-
ur þótt gott að vinna með þess-
um mönnum. Þeir eru opnir
fyrir þvi að finna bestu lausn
vandamálanna hverju sinni,
sagði Bragi.
Starfsmennirnir á verkstæð-
inu vinna venjulega dagvinnu
með tilíallandi eftirvinnu, en
þegar fyrirtækið byi-jaði var
mönnunum skipt niður á tvær
vaktir. Þessu var fljótlega hætt
og virðast starfsmennirnir
kunna vel við núverandi vinnu-
tilhögun þar sem flestir þeirra
hafa unnið hjá fyrirtækinu
lengi. Nefndi Bragi sem dæmi,
að af 42 starfsmönnum sem
byrjuðu á vélaverkstæðinu ár-
ið 1969 og ’70 væru 30 enn
starfandi þar.
Bragi Erlendsson er raf-
magnsverkfræðingur að mennt-
un. Hann lauk fyrrihluta-
prófi við Háskóla íslands, en
síðari hlutann tók hann í
Kaupmannahöfn. Áður en hann
hóf störf hjá ISAL hafði hann
unnið m. a. sjálfstætt á verk-
fræðistofunni Traust hf. en
lengst af hafði hann verið hjá
íslenskum aðalverktökum.
Bragi er 45 ára, fæddur og
uppalinn á Siglufirði.
Framleiðsluáætlanir eru gerð-
ar hér heima og var til dæmis
upphaflega gert ráð fyrir full-
um afköstum í framleiðslu á
þessu ári, eða um 70 þúsund
tonnum, en þær áætlanir voru
endurskoðaðar síðar.
Um 250 manns starfa undir
stjórn framleiðslustjóra, í ker-
skálum, steypuskála og birgða-
skemmum. Framleiðslustjór-
inn hefur stöðugt eftirlit með
því að á þessum stöðum sé fyr-
ir hendi það magn af efni, sem
upp er gefið, og er haldið sér-
stakt málmbókhald í IBM-
tölvu, sem ísal hefur á leigu.
Einar sagði, að reynslan af
starfsmönnum verksmiðjunnar
hefði almennt verið góð. Þó að
um ný vinnubrögð hefði verið
að ræða, sem íslendingar hefðu
ekki áður vanizt, hefði þeim
tekizt að komast fljótt upp á
lag með að venjast samfelldn-
inni, sem er í öllum vinnu-
brögðum í álverinu. Þá hefði
komið í ijós, að starfsmennirn-
ir væru reiðubúnir til að leggja
mjög hart að sér, þegar erfið-
leika hefur borið að höndum
vegna rafmagnstruflana og
efni og tæki verið í bráðri
hættu af þeim sökum. Þá hefðu
allir lagt sig fram um að hjálpa
til. Aðgerðirnar í álverinu
undir slikum kringumstæðum
hafa verið ræddar á fundum
erlendis, og má segja að við-
brögðin við rafmagnsskortin-
um hér, þegar rafgreiningar-
kerin lágu undir skemmdum,
og voru að frjósa föst, og þær
aðferðir, sem þá var beitt, hafi
vakið heimsathygli hjá álfram-
leiðendum.
FV 10 1975
53