Frjáls verslun - 01.10.1975, Síða 65
Meshreppur
Fólksflótti orðinn óþekkt
fyrirbæri þar
AFLASKIP FRÁ RIFI
Skarðsvíkin er frægust báta
frá Rifi en annars eru um tíu
bátar fyrir utan trillur, gerðir
út og auk þess koma nokkrir
aðkomubátar yfir vertíðina og
leggja þar upp afla sinn. Iðn-
aður er nánast enginn nema
fiskiðnaður og byggingariðn-
aður. Atvinnumálanefnd
hreppsins þingaði nýlega um
aðgerðir til atvinnujöfnunar á
þessum stöðum allt árið og var
niðurstaðan sú að heppilegast
yrði að kaupa skuttogara og
voru menn áhugasamir um það.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Á vegum hreppsfélagsins eru
skólamálin hvað brýnust enda
býr skólinn við þröngan kost.
Búið er að teikna 1200 fermetra
skóla sem líklega verður byrjað
á í vor. Sundlaug var og er á
Hellissandi en nú er búið að
byggja yfir hana og er hún
notuð sem íþróttahús á vetrum
þar sem gólf er lagt yfir laug-
ina, en síðan er þar sundlaug
á sumrum. Búið er að leggja
varanlegt slitlag á eina götu og
næsta sumar verður væntan-
EINGÖNGU FISKVEIÐAR
Fyrir utan atvinnu við lóran-
stöðina á Gufuskálum, byggist
atvinnulífið nær eingöngu á
Varanlegt slitlag er komið á eina götu á Hellissandi.
í Neshreppi, utan Ennis, búa um 650 manns á Rifi, Hellissandi og
Gufuskálum. Tæplega 100 manns búa nú á Gufuskálum og álíka
margir á Rifi. Á næstunni verður tækjabúnaður fjarskiptastöðv-
arinnar á Guf'uskálum endurnýjaður og krefst hann þá minni um-
sjónar bannig að á næsta ári mun íbúum á Gufuskálum fækka
verulega eða jafnvel upp undir helming. Þetta kom fram er FV
ræddi við Sigþór Sigurðsson, oddvita Neshrepps.
Sigþór Sigurðsson, oddviti
Neshrepps.
Byggðin á Gufuskálum
stendur einungis í sambandi
við lóranstöðina þar, Hellis-
sandur er útgerðarstaður frá
fornu fari en Rif ungur staður
og hefur aðallega byggst upp
síðari ár í tengslum við höfnina
þar, sem er landshöfn og þykir
góð. Höfnin á Hellissandi,
Krossavík, er hinsvegar ekki
nema fyrir smábáta. Á síðustu
tveim til þrem árum hefur
nokkuð verið byggt upp í Rifi,
um tíu hús, og eitthvað á Hell-
issandi, en uppbygging er hæg-
ari í ár, sennilega vegna al-
menns fjárskorts fólks, að sögn
Sigþórs.
fiskveiðum og er vertíðin yfir-
leitt mjög góð á þessum slóð-
um og mikil vinna. Síðan hef-
ur atvinna dregist nokkuð sam-
an en síðasta sumar fjölgaði
trillum verulega og það skap-
aði töluverða atvinnu, bæði við
róðra og í landi við fiskverkun.
Á Hellissandi er frystihús og
saltfiskverkun og á Rifi eru
tvær saltfiskverkunarstöðvar
og er fiskur þurrkaður í ann-
arri þeirra og skapar það nokk-
urn jöfnuð í atvinnu. Þar er
einnig rækjuvinnsla og nú
stendur til að reisa þar frysti-
hús. Fyrirtæki Sigurðar Ágústs-
sonar í Stykkishólmi á rækju-
vinnsluna, aðra saltfiskverkun-
arstöðina, ætlar að byggja
frystihúsið og hefur hug á að
koma með skuttogara til Rifs.
Lifrarbræðsla er einnig á staðn-
um og smá frystihús.
FV 10 1975
65