Frjáls verslun - 01.10.1975, Qupperneq 69
Ólaf svík:
I aðalskipulagi er gert ráð fyrir
1800 manna bygqð
árið 1990
Mögulegt landrými fyrir 5000 manna bæ
Ölafsvík er mjög gamall staður sem útgerðargtaður og einnig er hún einn elsti löggilti versl-
unarstaður landsins, því Kristján 5. Danakonungur, Iöggilti Ölafsvík sem verslunarstað í
mars, 1687, með sérstöku bréfi, sem enn er til. I kjölfar þessa varð Ölafsvík stór staður, á
þeirra tíma mælikvarða. Gamalt verzlunarhús frá 1844 er enn uppistandandi og friðlýst og
er unnið að endurbótum þess.
Frá Ólafsvik. Þar hafa 20—40 íbúðarhús verið í byggingu á ári.
Gamla verzlunarhúsið, sem nú hefur verið friðlýst, er lengst til
hægri á myndinni.
Um aldamótin var Ólafsvík
mjög öflugur útgerðarstaður,
enda stutt á miðin. íbúatala
þá var nálægt 600. f kring
um fyrra stríð varð hnignun
á svæðinu, eða þar til vél-
bátaútgerðin komst af stað.
Um síðasta stríð komst svo
mikill skriður á þróun stað-
arins samfara öflugri útgerð.
Hafnaraðstaða var hinsvegar
í lágmarki. Undir 1960 horfði
það ástand til vandræða og
við bættist að ekki var talið
hægt að byggja góða höfn í
Ólafsvík. Erlendir sérfræð-
ingar komust þó að annari
niðurstöðu og síðan 1962 hef-
ur stöðugt verið unnið að
gerð nýrrar hafnar og hefur
hreppurinn lagt þar til um
40 milljónir króna í óendur-
kræfum framlögúm, enda
stendur Ólafsvík og fellur
með góðri höfn. Þetta og eft-
irfarandi kom fram er FV
ræddi við Alexander Stefáns-
son, sveitarstjóra í Ólafsvík.
ÞRJÁR FISKVINNSLU-
STÖÐVAR
Uppbyggingin í landi hef-
ur fylgt uppbyggingu hafnar-
innar eftir og eru þar nú
þrjár saltfiskvinnslustöðvar,
tvær þeirra í hópi stærstu
þessháttar stöðva, og tvö
frystihús, sem rekin eru und-
ir sömu stjórn og er annað
þeirra ný uppbyggt eftir
ströngustu kröfum. Eins og
Ijóst er af ofantöldu, byggist
atvinnulífið í Ólafsvík nær
eingöngu á sjávarútvegi og
eru 30 til 40 bátar gerðir
þaðan út og þótt staðurinn
telji nú um 1100 manns, þarf
iðulega að fá fjölda aðkomu-
fólks til vinnu, sérstaklega yf-
ir vetrarvertíðina. Staðurinn
sjálfur hefur einnig byggst
jafnhliða upp og nær stöðug
þróun þess aftur til 1943, en
með auknum hraða eftir 1964,
að skriður komst á hafnar-
framkvæmdirnar. Staðurinn
er að mestu leyti byggður
upp að nýju á þessu tímabili
og er mjög lítið um gömul
hús.
SKORTUR A IDNAÖAR-
MÖNNUM
Vegna tilfinnanlegs skorts
á iðnaðarmönnum hefur upp-
byggingin ekki orðið eins ör
og skyldi, og hefur húsnæðis-
ekla lengi verið vandamál.
Vegna þess ákvað hreppur-
inn að nota sér lögin um
leiguíbúðir og verða sex
þessháttar íbúðir væntan-
lega teknar í notkun nú í
desember. Einnig er í bygg-
ingu verkamannabústaðablokk
með sex ibúðum. Hún er
byggð fyrir frumkvæði sveit-
arfélagsins. Annars hafa að
undanförnu verið 20 til 40 í-
búðarhús í byggingu á ári. 27
lóðum var úthlutað í ár.
Nýtt aðalskipulag var sam-
þykkt fyrir Ólafsvík í vor og
gerir það ráð fyrir 1800 manna
byggð og er það miðað við
1990. Hreppurinn á nægilegt
land undir það og gott betur
eða undir fimm til sex þús-
FV 10 1975
69