Frjáls verslun - 01.10.1975, Blaðsíða 80
IMýtt
að
utan
Úr plasthúðuðum stálrörum er
hægt að setja saman margs-
konar útileikgrindur fyrir
börn. Þessi búnaður sem kall-
aður er „Kidstuff“ kemur í
ýmsum stærðum og er auð-
veldur í samsetningu. Fram-
leiðandi er WCB Containers,
Ltd., Stalybridge, Cheshire,
Englandi.
Kvernelands-verksmiðjurnar í
Noregi, sem frægar eru fyrir
landhúnaðartæki sín, hafa
smíðað tæki til að hreinsa
grjót af landi, sem hentar vel
við nýræktaiframkvæmdir. I
sameiningu geta Kverneland-
herfi os grjótmokstursvélin af-
kastað 50 tonnum á klukku-
tíma eða farið yfir 1000-4000
fermetra á klukkustund. Rak-
ar vélin grjótinu í garða, áð-
ur en því er lyft á vagn.
Margs konar „elektrónísk“
lciktæki hafa náð vinsældum
upp á síðkastið, þ. e. tæki,
scm búin eru sjónvarpsskermi
og bjóða upp á keppni tveggja
eða fleiri í ýmis konar kapp-
leikjum. Nú geta menn keypt
útbúnað, sem gerir þeim kleift
að framkalla fctbolta- eða
tennisspil á sjónvarpstækinu i
stofu sinni og heyja þar
skemmtilega keppni. Framleið-
andi er The Sales Team,
119/120 Chancery, London
WC2A ÍQU.
80
FV 10 1975