Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1975, Page 81

Frjáls verslun - 01.10.1975, Page 81
Decca-fyrirtækið liefur fram- leitt nýjan radar fyrir smærri skip og báta, sem hefur 66 kílómetra svið. Þessi radar er einkanlega hannaður með þarf- ir sjómanna í huga. Sviðið er sex-skipt, úr 66 km niður í 920 metra. Sagt er að þessi gerð af radar, Decca 110, komi að sérstaklega góðum notum fyrir sjómenn, sem oft þarfn- ast mesta mögule^a radar- sviðs til að ná endurkasti frá landi i siæmu skyggni. Sprungur, göt og misgengi í efnum öðrum en málmum er nú hægt að uppgötva með hand- hægu og fyrirferðarlitlu tæki, sem nefnist Materials Sounder MS 1. Það mælir tímalengd- ina sem það tekur hljóðbylgjur eð komast í gegnum viðkom- andi efni. Tækið má nota t. d. á steypu, stein, timbur, kera- rr.ik, trefjaplast eða flest efni, sem ekki innihalda málma, Tækið er líka notað til að rannsaka efni í „blautu“ formi eins eg t. d. óharðnaða steypu. Framleiðandi cr Inspection In- struments, London. Mikrc-EIektronikk í Horten í Noregi hefur sent frá sér nýja tegund af fjarskiptatækjum, sem norski herinn hefur m. a. keypt í þúsundatali. Þetta er móttöku- og senditæki og má nota fyrir talsíma, ritsíma og „data“-sendingar á sviði frá 1,5 til 30 megaherz. Með venjulegum Ioftnetsbúnaði, sem tækinu fylgir er dragið um 40 km. Þyngd tækisins er 4,9 kíló en að auki er rafhlaða upp á 3,8 kíló, sem gerir kleift að nota stöðina samfellt í 12 klukkustundir. FV 10 1975 81

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.