Frjáls verslun - 01.10.1975, Qupperneq 88
P. Stefánsson hf.
IMýr fólksbíll frá BMC-
ALSTIIV ALLEGRO, kominn á markað
P. Síefánsson hf., Hverfisgötu 103 er nú að hefja innflutning á nýjum fólksbil frá BMC og
nefnist hann Austin Allegro. Hann er rúnigóður fjögurra manna bíll, tveggja- eða fjögurra
dyra, fimm gíra, framhjóladrifinn og með vél frammí. Fjöðrunin byggist upp á lokuðu vökva-
kerfi (Hydragas) en það gerir fjöðrunina mjög mjúka á vondum vegum og hentar því vel hér.
Einnig er unnt að bæta vökva inn á kerfið og hækkar bíllinn þá, en fyrir er hann vel ímeð-
allagi hár frá jörðu. Vélin er 74 liestafla DIN.
Framleiðsla Austin Allegro
hófst í Bretlandi fyrir ári síð-
an en fyrirtækið P. Stefánsson
hóf ekki innflutning fyrr en
nú, til að ganga úr skugga um
hvernig bíllinn reyndist er-
lendis. Einnig fékK fy.rirtækið
einn bíl hingað til reynslu fyr-
ir rösku hálfu ári og hefur
hann gefið mjög góða raun.
Hingað verða fluttir bílar af
1500 gerðinni, en frágangur
þeir.rar gerðar er allur hinn
vandaðasti.
MINÍINN ALLTAF JAFN
VINSÆLL
En fyrirtækið flytur einnig
inn fleiri bíla og selur mest af
Austin Mini, sem flestir
þekkja. Vinsældir þess bíls
fara ekki dvínandi. I nýjustu
bílum hafa verið gerðar smá
lagfæringar í frágangi og út-
liti og rúllubelti eru nú kom-
in í sætin. Clumman er mjög
skyldur bíll, lengri og með
hurðum að aftan. Auk þess að
vera fjögurra manna fólks-
bíll hentar hann fyrirtækjum
vel til útkey.rslu léttari varn-
ings og sendiferða. Hann er á
mjög hagstæðu verði eins og
Miniinn.
AFTUR ORÐINN BIÐLISTI
EFTIR RANGE ROVER
Aftur er nú orðinn biðlisti
eftir Range Rover bílunum og
eignast þeir stöðugt fleiri að-
dáendur. Range Rover kom
fyrstur með svonefndan quatra
track drifbúnað og sjálfvirkan
hleðslujafnara, en auk þeirra
kosta má nefna gormafjöðrun á
öllum hjólum o. fl. Litlar
breytingar hafa orðið á bíln-
um frá upphafi nema nú eru
sætin orðin enn betri og eru
rúllubelti við þau, og nokkrir
smámunir hafa verið lagfærð-
ir til hagræðis.
VERKSMIÐJURNAR HAFA
EKKI UNDAN VIÐ FRAM-
LEIÐSLU LAND ROVERS
Loks má svo nefna Land-
Roverinn, sem selst jafnt og
þétt og er í yfirgnæfandi meiri-
hluta jeppabíla úti á lands-
byggðinni. Litlar breytingar
hafa verið gerðar á honum að
undanförnu nema smávegis til
hagræðis, og ekki er stórvægi-
legra breytinga heldu.r að
vænta, a. m. k. ekki á meðan
að verksmiðjurnar anna ekki
eftirspurn.
88
FV 10 1975