Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1976, Page 25

Frjáls verslun - 01.04.1976, Page 25
Dýr velferð. Svíar greiða mikið fyrir samneyzluna. Enn skal geng- ið lengra í þá átt. Dagheimilisvist fyrir öll börn er stefnumarkið nú. ar væru greiddir. Þrátt fyrir áralangar umræður á þingi og öðrum opinberum vettvangi virðist þó skattasaga Astrid Lindgren hafa haft meiri áhrif en nokkuð annað á stjómvöld. sem hafa heitið lagfæringum á skattakerfinu. Þó að skattar skáldkonunnar séu langt frá því að vera dæmigerðir vonast hinn almenni Svíi, sem borgar 45-50% af launum sínum í opin- ber gjöld, til þess að minna verði framvegis tekið af hon- um. # Búið í leiguhúsnæði Lágmarkslaun iðnverka- manna í Svíþjóð eru nú 42 þús- und krónur yfir árið. Opin- berir embættismenn í hærri stöðum og kennarar við æðri menntastofnanir hafa laun á bilinu 75 þús. til 85 þús. á ári og nú geta menn margfaldað með 40 ef þeir ætla að reikna út upphæðir í íslenzkum krón- um. Þeir sjá þó aldrei nema helminginn af þessum upphæð- um eða heldur minna. Almennt búa Svíar í leiguhúsnæði og fyrir 4-5 herbergja íbúð spöl- korn fyrir utan Stokkhólm eru greiddar 1050 kr. á mánuði í húsaleigu. Að auki borga leigj- endur 100 kr. í Ijós og hita yfir mánuðinn. Það er ennfremur hægt að kaupa sér eignarrétt að vissu marki yfir húsnæði, þannig að nánustu erfingjar geti haldið íbúðum. Slíkur rétt- ur kostar 170 þús. krónur fyr- ir 90 fermetra íbúð en síðan borga menn 350 kr. á mánuði í rekstur. Möguleikar eru á lánum til 15 ára vegna slíkra kaupa. Vilji menn eignast ein- býlishús eru þau vissulega fáan- leg en kosta frá 300 þús. krón- um og upp úr eftir stærð og umhverfi. Utborgun gæti hugs- anlega verið 50 þús. krónur en afgangurinn á 40 ára láni með jöfnum afborgunum og 8V2 til 9 V2 % vöxtum, sem eru fastir í 10 ár en síðan endurskoðaðir. # Verðbólguþróun Þótt efnahagsástandið í Sví- þjóð sé sýnu betra en víðast annars staðar í iðnríkjum heimsins kvartar almenningur þar undan verðhækkunum og verðbólguþróun, sem rýrir verð- gildi sparifjárins. Þannig segja fjármálasérfræðingar að verð- lag hafi frá marzmánuði 1975 til marz í ár almennt hækkað í Svíþjóð um 11% — verð á nauðsynjavörum þó enn meira eða um 13,5%. Nordiska Kompagniet í Stokkhólmi er eitt glæsilegasta vöruhús á Norðurlöndum. Þar fæst allur hugsanlegur varn- ingur undir einu þaki, og af því öllu skína efnisgæði og vönduð vinnubrögð, sem Svíar virðast öðru fremur leggja höfuðáherzlu á í sambandi við innkaup sín. Við gengum þarna um nokkra stund og tókum niður fáein verð til fróðleiks. í húsgagnadeildinni var þriggja sæta sófi með tauáklæði á 2886 kr., borðstofuborð á 2080 kr., borðstofustóll á 640 kr., hús- bóndastóll með leðuráklæði á 2750 kr. 0 g standlampi án skermis á 430 kr. í heimilis- tækjadeild voru litsjónvarps- tækin, 26 tomma, á rúmar 4000 kr., en tæki fyrir svart/hvíta mynd á tæpar 1300 kr. Sjálf- virk þvottavél fyrir 3-4 kg. kostar rúmar 2000 kr. í fata- deildinni voru svo karlmanna- föt fyrir 700-800 kr. og herra- skór á 200 kr. Og til þess að gera þetta yfir- lit enn ítarlegra má nefna að kílóið af kjötfarsi í sænsk- um matvöruverzlunum kostar 24,15, mjólkurlítrinn 1,47, sex egg 3,30, djúpfrystur þorskur, 400 gr., 6,60, og 500 gr. af smjöri 6,68. Séu menn í þeim hugeiðingum að kaupa sér nýj- an sænskan bíl kostar t. d. Volvo 244 DL kr. 35,900. # Fólkið í landinu En víkjum nú aðeins frá lífs- ins gæðum og hugum eilítið að fólkinu, sem í Svíþjóð býr. Frá 1750 til 1974 fjölgaði Svíum að meðaltali um 7%0 á ári. A hverjum hundrað árum tvöfaldaðist íbúafjöldinn eða því sem næst, úr 1,8 millj. 1750 í 3,5 millj. 1850 og 7 millj. 1950. í janúar 1975 voru íbúar í Svíþjóð 8,2 milljónir talsins. Konur eru fleiri í Svíþjóð en karlar, 1002 á hverja 1000 karl- menn. Þetta ræðzt af lengri lif- endalíkum kvenna, sem verða að meðaltali 77 ára en karlarn- ir 72. Að 39 ára aldursmark- inu eru karlarnir fleiri en kon- FV 4 1976 25
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.