Frjáls verslun - 01.04.1976, Síða 31
nauðsynlegt að halda sérein-
kennum sínum til að geta við-
haldið áhrifum sínum í sænsk-
um stjórnmálum. Hefur flokk-
urinn fremur sýnt tilburði í þá
átt að vingast við jafnaðar-
menn og hefur verið sammála
þeim um mikilvægustu þætti
efnahagsstefnunnar.
# Kratar ánægðir
Sven Dahlin, starfsmaður
þingflokks jafnaðarmanna, var
bjartsýnn á útkomu þingkosn-
inganna fyrir flokk sinn og
benti á að dágott ástand í efna-
hagsmálum yrði til að styrkja
stöðu flokksins í kosningunum.
Hægt væri að benda á almenn-
ar kjarabætur, sem numið
hefðu 7% árið 1974 og aftur 6%
í fyrra þegar skattar væru frá-
dregnir. Væri þetta athyglis-
verður árangur á tímum olíu-
kreppu og annarra efnahags-
örðugleika, sem hrjáð hafa
hinn vestræna heim. Atvinnu-
leysi er nú 2% í Svíþjóð en síð-
an kosningar fóru síðast fram
hafa 200 þús. manns tekið upp
störf að nýju eftir að hafa ver-
ið atvinnulausir um sinn. Um
100 þús. skólanemendur undir
25 ára aldri eru árlega atvinnu-
lausir þegar skólagöngu lýkur.
Sérstök áherzla er lögð á mál-
efni þeirra í stefnuskrá jafnað-
armanna og er gert ráð fyrir
sérstökum opinberum styrkjum
til sveitarfélaga og fyrirtækja
er ráða unga fólkið í vinnu í
stað starfskrafta, sem látnir
verða gangast undir viðbótar-
þjálfun í starfi sínu. Þá er auk-
in þátttaka starfsmanna í stjórn
fyrirtækja og fimm vikna al-
mennt orlof meðal helztu bar-
áttumál þeirra. Sven Dahlin
sagði, að stjórn jafnaðarmanna-
flokksins hefði sætt gagnrýni
fyrir spillingu vegna langrar
stjórnarsetu, sem þó væri ekki
á rökum reist, því að flokks-
samtökin í bæjum og héruðum
veittu ríkulegt aðhald, sem
næði alla leið upp í ríkisstjórn-
ina og mönnum liðist ek'ki að
leika neinar brellur og skara
eld að sinni köku í skjóli pólit-
ískrar aðstöðu sinnar. Var í
þessu sambandi rifjuð upp saga
af Tage Erlander, fyrrverandi
forsætisráðherra, sem átti að
hafa haft frímerki fyrir eigin
rei'kning í skrifborðsskúffunni í
forsætisráðuneytinu, og sleikt
sjálfur utan á bréf, sem hann
var að senda trúnaðarmönnum
sínum í flokknum í stað þess að
senda þennan póst á reikning
ráðuneytisins.
Sven Dahlin sagði, að skipan
framboðslista í kosningunum
yrði senn ákveðin. Nokkrir
gamalkunnir þingmenn eins og
Gunnar Lange og Torsten Nils-
son, fyrrverandi utanríkisráð-
herra, myndu hætta þing-
mennsku og ný andlit bætast í
Per Olaf Sundman. Verður að
heiman í kosningabaráttunni.
hópinn, væntanlega allmargar
konur en þær eru 30 nú í þing-
liði jafnaðarmanna af 156 þing-
mönnum.
# Hloderatar í mestri
sókn
Um úrslit kosninganna vildi
talsmaður jafnaðarmanna ekki
spá, en taldi, að borgaraflokk-
arnir myndu leggja mikla á-
herzlu á að ná málamyndasam-
stöðu um einhver mál fyrir
kosningar. Hann taldi, að Mode-
rata samlingspartiet væri í
mestri sókn af flokkunum en
stjórn borgaraflokkanna yrði
aldrei starfhæf nema um
skamma hríð, ef svo færi að
þeir kæmust í þá aðstöðu að
mynda nýja ríkisstjórn að kosn-
ingum loknum.
Per Olof Sundman, rithöf-
undur, situr á þingi fyrir Cent-
erpartiet. Hann sagði, að full-
yrðingar jafnaðarmanna um
vöxt Moderata samlingspartiet
væru blekking, því að jafnað-
armenn vildu gjarnan nota
hægri stefnu þeirra, sem eins
konar grýlu á sænska kjósend-
ur. Per Olof ætlar að gefa kost
á sér til þingframboðs á nýjan
leik en hefur líka ákveðið að
verða ekki heima meðan kosn-
ingabaráttan stendur yfir.
Þægilegt hlutskipti það. f stað
þess að halda framboðsræður á
fundum ætlar hann að vinna að
gerð ‘kvikmyndar norður á
Svalbarða en hún verður byggð
á sögu hans „Loftsiglingin",
sem á sínum tíma hlaut bók-
menntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs. — En um hvað munu
kosningarnar snúast, Per Olof?
# Skattpíningin í
Svíþjóö
„Fyrst og fremst um skatt-
píndnguna í Svíþjóð. Hér er
fólk öllum stundum að reikna
út skattana sína, — 50, 60, 80
eða meir en 100% af tekjunum
eins og dæmið hennar Astrid
Lindgren sannar“, sagði rithöf-
undurinn og þingmaðurinn.
Sænska „velferðarríkið“ er
dýrt í rekstri. Fjárlögin eru
upp á 110,2 milljarða sænskra
króna. Þar af renna 31 milljarð-
ur til heilbrigðis- og félagsmála,
14,8 til menntamála og 10,6 til
varnarmála.
Hluta af skattpíningunni
vildi Per Olof rekja til breyt-
inganna 1968—1969, þegar sölu-
skatti var breytt í virðisauka-
skatt í Svíþjóð. Þá var komið á
1 % launaskatti vegna taps í
skattheimtu það árið. Skattur-
inn átti að gilda í eitt ár en var
framlengdur og hækkaður í
2% í staðinn. Launaskattar og
alls konar aukaálögur eru mjög
íþyngjandi fyrir fólk, sem starf-
ar sjálfstætt og þiggur ekki
laun hjá öðrum. Svo er til
dæmis um rithöfunda, sem
samkvæmt sænskri skilgrein-
ingu eru atvinnurekendur. Per
Olof sagðist ekki geta gert
FV 4 1976
31