Frjáls verslun - 01.04.1976, Page 37
1974 var þetta hlutfall 3,6%.
Fyrir fjárhagsárið 1975—76
voru framlög til hersins áaetluð
9574 milljónir sænskra króna.
# Eftirsótt vara
Háþróuð tækniþekking heima
heima fyrir hefur gert Svíum
mögulegt að smíða mikinn
hluta af vopnum og brynvögn-
um, skipum og flugvélum í eig-
in verksmiðjum. Fjöldi pant-
ana á þessum varningi frá rík-
isstjórnum annars staðar í
heiminum er kannski mikils-
verðasti vottur um gæðin.
Herinn í Svíþjóð tekur því
ríflega úr pyngju skattgreiðend-
anna en almennt eru Svíar
h'lynntir stefnunni og aðgerð-
um í varnarmálum. Vígbúnað-
urinn er nefnilega hvetjandi
fyrir sænskt efnahagslíf og af
honum skapast ótal atvinnu-
fyrirtæki enda ver þessi vel
búni her um 80% af öllum út-
gjöldum sínum til kaupa á
tækjum og búnaði, sem fram-
leiddur er heima í Svíþjóð.
# Víðtækar varnar-
áætlanir
Varnaráætlanir sænskra yfir-
valda eru mjög víðtækar. Ef til
hernaðarátæka kemur verður
sænsku þjóðfélagi á augabragði
breytt í eitt heljarmikið virki.
Auk almennrar herkvaðningar
á að fara fram samræming
læknisþjónustu, lögreglu, síma-
stjórnar og annarra opinberra
þjónustustofnana, sem allar
eiga sinn ákveðna bás í hernað-
aráætlununum. Sálfræðiherm-
aður og almannavarnir eru
rækilega skipulagðar og í átök-
um myndu um tvær milljónir
manna stunda svokallaðar
,,efnahagsvarnir“ með því að
byrgja þjóðina upp af nauð-
synjum. Þessi þáttur varnar-
starfsins á líka að verða virkur,
ef til efnahagslegra refsiað-
gerða gegn Svíþjóð drægi á
friðartímum. Olían er mikil-
væg í þessu sambandi enda
nota Svíar olíu til að framleiða
meir en 70% af orkuþörf sinni.
Olíubirgðir, sem eiga að end-
ast þjóðinni í fimm ár í hafn-
banni hernaðarátaka, eru fald-
ar á víð og dreif um landið og
matur og aðrar nauðsynjar eru
líka fyrirliggjandi til fimm
ára, ef Svíþjóð yrði algjörlega
einangruð frá umheiminum
vegna stríðsátaka. Mikilvæg-
ustu verksmiðjur, sem Svíar
þyrftu að byggja verulega á í
stríði, eru starfræktar neðan-
jarðar jafnvel á friðartímum.
Ýmislegt hefur verið rætt og
ritað um sænska herinn og
leyndardómsfullar furðusögur
af honum farið. Minna er þó
um hann vitað en heri sumra
annarra landa vegna ihlutleysis-
stefnu Svía, og þeir hafa líka
af reynslunni lært að gæta
hernaðarleyndarmála sinna
mjög vel. Vitað er, að kafbáta-
lægi fyrirfinnast grafin langt
inn í fjöl'l meðfram ströndinni,
hraðbrautir um landið eru
hannaðar líka sem flugbrautir
fyrir herflugvélar og óvíða í
stórborgum eru jafn rammgerð
neðanijarðarbyrgi fyrir almenn-
ing ætluð til að standast kjarn-
orkuárás.
# 750 þús. í hernum
Sænski herinn hefur á að
skipa meir en 750 þús. mönn-
um samanlagt ef þörf krefur.
Landinu er skipt í sex hernaðar-
umdæmi, sem hvert heyrir und-
ir sinn hershöfðingjann. Allir
karlmenn á aldrinum 18-47 eru
skyldir til að gegna herþjónustu
en þjálfunartími er misjafnlega
langur og ræðst af verkefnum,
sem hverjum og einum eru ætl-
uð bæði á friðartímum og í
hugsanlegum hernaði. Svíar
státa af góðu þjálfunarkerfi og
segja, að því sé svo fyrir að
þakka, að herþjónustutíminn sé
stuttur. Nýliðar verða að fá
undirstöðuþjálfun í 7J/2 til 9
mámuði en á síðari árum þurfa
þeir að vera fimm tímabil á æf-
ingum, vanalega 18 daga í senn.
Ef menn eru þjálfaðir til sér-
stakra verkefna verður her-
þjónustutíminn upphaflega 15
til 21 mánuður og heræfingar
síðar. Um 50 þús. nýliðar eru
kvaddir í herinn á ári hverju.
NÓTAVIÐGERÐIR
YFIRFÖRUM 0G
GERUM VIÐ
HVERS KYNS
NÆTUR OG
TR0LL.
TÖKUM AÐ
OKKUR
SKYNDIVIÐGERÐIR
Á BRYGGJU.
TÖKUM NÆTUR
í HÚS.
FELLUM
ÞORSKANET.
NETAGERÐIN
MÖSKVI
HAFNARGÖTU 28,
GRINDAVÍK.
SÍMI: 92-8358.
FV 4 1976
37