Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1976, Síða 57

Frjáls verslun - 01.04.1976, Síða 57
Hjá Kockums er mikið lagt upp úr góðum aðbúnaði fyrir starfs- menn. Þetta er sundlaugin í félagsmiðstöð starfsfólks. sig. Sagði Ólafur, að ástandið hefði mjög mikið batnað eftir breytingarnar, sem eru víðtæk- ar. Kockums væri stór og ó- persónulegur vinnustaður, en það gæfi vinnunni mjög aukið gildi, ef starfsmennirnir gætu tekið þátt í ráðagerðum um fjárfestingar og allt, sem varð- aði starfsaðstöðuna. Hópar starfsmanna ræða um endur- nýjun véla og tilboð, sem ber- ast í því sambandi. Hagræðing- armál eru rædd ítarlega og kvað Ólafur starfsmennina hafa sýnt mjög jákvæða afstöðu til allrar nýbreytni, sem horfði til aukinnar hagræðingar. Að vísu er ekki hægt að segja upp starfsmönnum úr fyrirtækinu samkvæmt lögum, en hins veg- ar er t. d. núna ráðgert að fækka starfsmönnum um 350 og verður það gert með því að endurráða ekki í stöður, þegar þær losna. Þetta hefur líka í för með sér flutning manna milli starfa og endurþjálfun af þeim sökum. Fulltrúar starfs- manna eru aðilar að öllum þess- um ráðagerðum. Fyrirtækið borgar þeim laun fyrir að starfa þannig að málum félaga sinna og veitir þeim skrifstofuað- stöðu. Launin eru þau sömu og mennirnir hefðu fyrir iðn sína í smíðaskálunum. • TRÚNAÐUR RÍKIR Á fyrirtækinu hvílir meira að segja kvöð um að mennta fulltrúa starfsmanna að því marki, að þeir geti fylgzt með öllum rekstrarþáttum, þar á meðal bókhaldi. Ólafur kvað fullan trúnað ríkja í þessurn þrönga hópi forstjóra og for- ystumanna starfsfólks og enn- fremur í hinni svokölluðu fyrit'- tækisnefnd, sem hittist fimm sinnum á ári, en þar eiga sæti sex fulltrúar fyrirtækisins og sex frá starfsmönnum. Þar er gefin skýrsla um rekstur fyrir- tækisins og einstök atriði henn- ar rædd frá ýmsum hiiðum. Á þessum fundum hafa verið rædd vandamál, sem hlytust af því að pantanir bærust ekki og forstjórarnir hafa skýrt fjár- hagsafkomu og fjárfestingar. Þetta fyrirtæki veltir 1500 millj- ónum sænskra króna og bróð- urparturinn af 9 milljón króna hagnaði í fyrra var notaður til aukinnar uppbyggingar. „Með atvinnulýðræði af þessu tagi hefur með samráði við starfsmennina verið komið í veg fyrir mörg vandamál, sem voru gríðarlega erfið viðfangs áður,“ sagði Ólafur Sigurðsson. ,,Það er ljóst að með betri ai- mennri menntun vill fólk njóta annars hlutskiptis en að selja bara 8 stunda vinnu á dag. Það vill hafa áhrif á gang fyrirtæk- isins og finna einhverja mein- ingu með starfinu. Allir geta spurt og eiga kröfu á að fá svar. En skerist í odda gera all- ir aðilar sér ljóst, að ábyrgðin hvílir á okkur forstjórunum." • KRÖFUR UM AÐ GENGIÐ SKULI LENGRA Það eru uppi háværar kröfur í Svíþjóð, að gengið verði enn lengra á braut atvinnulýðræðis en þarna er um að ræða. Starfs- mennirnir vilja taka ábyrgðina á sig líka. Sérfræðingar sænska alþýðusambandsins hafa sett fram áætlanir sínar um að viss hluti af arði fyrirtækja renni í sjóð í eigu starfsmanna, sem notaður verði til kaupa á hluta- bréfum. Þannig muni starfs- mennirnir eiga fyrirtækin og ráða þeim eftir 20-30 ár, en í sumum þegar eftir 5-10 ár. Þess- ar hugmyndir eru mikið rædd- ar í Svíþjóð um þessar mund- ir. Þjónusta við starfsmennina hefur verið aukin og það má segja að fá vandamál geti kom- ið upp hjá starfsmanni á vinnu- stað eða í einkalífi hans, að þjónustumiðstöð starfsmanna- haldsins sé ekki boðin og búin að kafa til botns í kjarna vand- ans, hvort sem hann er heilsu- farslegur eða félagslegur og reyna að uppræta hann. Lækn- isþjónusta er í skipasmíðastöð- inni, félagsráðgjöf, fræðslunám- skeið eru haldin, ferðaþjónusta stunduð og útvegun húsnæðis og túlkunaraðstoð er í boði fyr- ir erlenda starfsmenn. Þannig mætti enn lengi telja. Um 1200 útlendingar starfa hjá Kockums-skipasmíðastöð- inni, flestir frá Júgóslavíu, Finnlandi, Portúgal og Dan- mörku. Alls eru starfsmenn- irnir af 30 þjóðernum og nú munu um 30 íslendingar vinna í skipasmíðastöðinni. Á atvinnuleysisárunum 1967- 1968 voru um 200 íslendingar ráðnir til Kockums, aðalleg'a trésmiðir vegna þess að þá voru í smíðum tvö stórskip ætluð til flutninga á fljótandi gasi. Það þurfti að einangra geyma þessa með tréverki og trésmiðir fengust ekki til þeirrar vinnu í Svíþjóð. Þá var leitað til Finna og Norðmanna, en þar var held- FV 4 1976 53
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.