Frjáls verslun - 01.04.1976, Qupperneq 82
Bragakjör
Allt stendur og fellur með
s já va r ú tveg inu m
í Grindavík eru starfræktar
þrjár matvöruvcrzlanir, Braga-
kjör, Kaupfélag Suðurnesja og
síðan er ein í Þórkötluhverfin'u.
Bragi Guðráðsson eigandi verzl-
unarinnar Bragakjör starfaði
sem deildarstjóri hjá Kaupfé-
laginu í 7 ár áður en hann setti
á fót eigin verzlun, en hana hef-
ur hann rekið síðast liðin fjög-
ur og hálft ár. í viðtali sem FV
átti við Braga kom fram, að
milli hans og Kaupfélagsins
væri ekki um neina samkeppni
að ræða, heldur þvert á móti
samvinnu. — Alla veganna hef
ég litið bað þeim augum, sagði
Bragi.
— Ég legg upp úr að gera
mínum viðskiptavinum til hæf-
is svo þeir verzli við mig, en
þeim er auðvitað frjálst að
verzla hvar sem þem líkar bezt.
— Ég kalla það samvinnu,
þegar báðir aðilar hjálpa hver
öðrum með nauðsynjavörur, ef
hún fæst ekki á öðrum hvorum
staðnum og bið er eftir að hún
Bragi G'uðráðsson, kaupmaður.
komi til Grindavíkur. Hér er
líka mikil lánsverzlun í sam-
bandi við útgerðina og við fyr-
irbyggjum að sömu aðilar
hlaupi á milli og skuldi óeðli-
lega mikið á báðum stöðum.
Um ástandið í Grindavík
sagði Bragi, að hann væri ekki
bjartsýnn þessa stundina. —
Hér stendur allt og fellur með
sjávarútveginum sagði hann —
en helmingur verzlunarinnar er
beint við bátana og hinn helm-
ingurinn við einstaklingana,
sem einnig hafa sínar tekjur af
fiskvinnslunni. Nú fara páskar
í hönd og þessir síðustu dagar
eru ekki svipur hjá sjón miðað
við síðustu ár, en það er fyrst
og fremst vegna ógæfta og afla-
leysis.
Mér finnst það vera lág-
markskrafa hjá svona fyrir-
tæki að fylgjast með tímanum,
en þegar illa árar eins og nú,
þykir gott að halda í horfinu.
Það er ekkert gaman að vera
við þetta, ef það verður svona
og enginn árangur sést af því
sem verið er að strita.
Annars er það fyrir mestu
að missa ekki trúna, því það fá
allir sitt mótlæti og þá er það
þolinmæðin sem gildir.
Rammi Hf. Ytri-Njarðvík:
Samkeppni mætt með
vélvæðingu
Glugga- og hurðaverksmiðjan
Rammi hf. er staðsctt í hinum
nýja kaupstað, Ytri-Njarðvík,
að Bakkastíg 16, í nýlegum og
vistlegum húsakynn'um, sem
eru samtals um 1800 m að
stærð. Fyrirtækið var stofnað
árið 1966 og verður því 10 ára
á þessu ári.
FV. leit inn í Ramma hf. og
tók framkvæmdastórann, Egil
Jónsson, tæknifræðing, tali. Eg-
ill hefur verið framkvæmda-
stjóri s.l. 4 ár.
í viðtalinu við Egil kom m.a.
eftirfarandi fram: Framleiðsla
fyrirtækisins eru allar tegundir
glugga- og útihurða í einbýlis-
og fjölbýlishús, skóla, verzlan-
ir, verksmiðjur og aðrar teg-
undir bygginga. Það sem ein-
kennir framleiðsluna er að í
öllum opnanlegum gluggum og
hurðum eru þéttilistar af
norskri gerð, sem þétta gegn
vatni, vindi og ryki. Var Rammi
hf. í fararbroddi með þéttilista
á íslenzka markaðinum.
Það sem einnig einkennir
framleiðsluna er að öll föls eru
58 cm. djúp, en það á að
tryggja enn frekari þéttleika í
fölsun á fögum og hurðum og
78
FV 4 1976