Frjáls verslun - 01.04.1976, Blaðsíða 85
Grindavík
Með beztu fiskimið í heimi
fyrir utan
Okkar bátafloti fullfær um að ná í fisk inn á Selvogsbanka
í Grindavík er eitt af stærri
fiskvinnsluhúsunum, Fiskanes
hf. Það er í eigu fjögurra
manna, Dagbjarts Einarssonar,
Björgvins Gunnarssonar,
Kristjáns Finnbogasonar og
Williards Ólasonar. Hjó þeim
leggja upp tveir bátar af minni
gerðinni og þrír stórir. Sjálfir
gera þeir út Geirf'uglinn og
Grindvíking, en fiskinn verka
þeir í salt og skreið. — Þetta
er sjötta árið, sem við verkum
fisk sagði Dagbjartur Einarsson
framkvæmdastjóri Fiskaness
hf. í spjalli við blaðamann FV,
þegar hann var á ferðinni í
Grindavík fyrir stuttu.
Dagbjartur sagði, að afla-
brögðin væru búin að vera með
eindæmum léleg í vetur og
gætu ekki verri verið. Inn í
húsið væru komin 1000 tonn,
en um 1500 tonn á sama tíma í
fyrra. — Þetta er svona yfir
alla línuna hér í Grindavík.
Segja má að hjá okkur sé um
30% minni afli en var í fyrra.
— Ég held að það verði ekki
langt í hrun hér í Grindavík
bæði í útgerð og fiskvinnslu,
þar sem þetta er þriðja vertíðin
í röð sem kemur svona léleg og
ef þessi vertíð er spegilmynd
af framtíðinni er Ijóst að ein-
hvers staðar fer að kreppa að
og menn heltast úr lestinni fyrr
en seinna.
Hér er alveg það sama á ferð-
inni og síldarævintýrið forðum.
Fiskurinn er búinn. Menn trúa
því ekki. Vona alltaf að ein-
hvers staðar leynist eitthvað,
en það er bara óskhyggja.
Ég álít, að fi’amundan sé
mesta fátækt sem við höfum
komist í kynni við á þessari
öld. Við lifðum af, að síldin
kláraðist, því þá var farið í
Norðursjóinn. Nú er það þorsk-
urinn sem einnig er búinn og
þá höfum við ekki í önnur hús
að venda. „Svarta skýrslan“ er
örugglega eins svört og sagt er.
— Hefur verið reynt að fá
einhverja fyrirgreiðslu hjá hinu
opinbera til að forða hruni?
— Já, það hefur verið reynt,
en ég held að það gangi seint og
að ráðamenn hafi ekki gert sér
grein fyrir hvernig ástandið er.
Við erum álitnir 2. flokiks
menn, þegar á að fá einhverja
Dagbjartur Einarsson.
fyrirgreiðslu. Við höfum ekki
fallið inn í þessa byggðajafn-
vægisstefnu ennþá, alla vegana
er farið fínt í það.
— Hvað um annan iðnað hér
í Grindavík?
— Það hefur lítið verið hugs-
að um annan iðnað hér. Ég álit
að þungamiðjan í þessu öllu
saman sé, að við sem búum í
Grindavík með bestu fiskimið
í heimi hér fyrir utan, eigum að
vera í fiskvinnslu og engu öðru.
— Enn það er verið að drepa
okkur með þessu skuttogaraæði
út um allt land, það hefði verið
nær að beina þessum plássum
úti á landi, sem eru fjærst
fiskimiðunum, inn á aðrar
brautir.
—- Hingað hefur fiskurinn
komið á Selvogsbankann í
gegnum aldirnar til að sinna
lögmálum náttúrunnar og hefur
okkar bátafloti verið fullfær að
ná í hann þangað. Nú hefur
okkur verið ráðlagt að fá okkur
skuttogara, en það er ekki
vandamálið.
— Vandamálið er, að þegar
skuttogararnir fá ekki stóra
fiskinn fara þeir í þann smáa, á
þau svæði þar sem uppeldis-
fiskurinn heldur sig. Þarna er
verið að klippa á lögmál nátt-
úrunnar og einnig lífæð þjóð-
arinnar. Það var því mesta ó-
happaverkið, sem hægt var að
gera að kaupa alla þessa skut-
togara. Allt í lagi að fá nokkur
skip en þessi sefjun, sem átt
hefur sér stað er algjör skrípa-
leikur.
— Að lokum vil ég, — sagði
Dagbjartur, — taka undir með
Kristjáni Friðrikssyni, að friða
eigi fyrir togveiðum svæðið frá
Straumnesi og að Eystra-Horni.
Og þó ekki væri friðað nema að
Langanesi skilar það sér mjög
fljótt aftur. Það þarf enginn að
halda að fiskurinn verði elli-
dauður fyrir norðan, þó ekki
komi þar troll í sjó í nokkur ár.
FV 4 1976
81