Frjáls verslun - 01.04.1976, Page 93
AUGLÝSING
Kúlulegusalan hf.
Flestir öxlar
snúast í legum
var stofnað í Gautaborg árið
1907. Stofnandi var Sven Wing-
quist, sem fann upp veltileg-
una. Aðalstöðvar fyrirtækisins
hafa ætíð verið í Gautaborg.
SKF er nú orðið alþjóðafyr-
irtæki með verksmiðjur í 15
löndum og útibú eða útsólu-
staði um allan heim. Rúmlega
61 þúsund manns voru starf-
andi hjá eða á vegum fyrirtæk-
isiins árið 1974.
Aðalframleiðslan eru kúlu-
og keflislegur af öllum stærðum
og gerðum, allt frá 3 mm að
utanmáli upp í nokkra metra.
SKF framleiðir legur, sem þola
allt að 400.00 rpm og legur, sem
við lágan snúningshraða geta
borið yfir 2000 tonn.
SKF framleiðir einnig legu-
hús af ýmsum stærðum og gerð-
um, öxultengi, snittverkfæri,
hluti í spuna og vefnaðarvélar
(Textile Maohinery Compon-
ents), kúlu- og kefliskrúfur,
kúlulegufeiti, rennibekksodda
og fleira.
Auk þessa framleiðir SKF og
selur mikið af hálfunnu stáli,
sem unnið er í eigin námum.
Eins og flestir vita þjóna leg-
ur mikilvægu hlutverki í ís-
lenzku efnahagskerfi. Flestir
öxlar snúast í legum. Það er
því nauðsynlegt fyrir öryggi
efnahagskerfisins að nægar
birgðir af legum séu til í land-
inu. Þetta hlutverk innir Kúlu-
legasalan að vissu leyti af
hendi með fjölbreyttu úrvali
SKF lega og miklu birgðahaldi.
Jafnframt ef birgðir hrökkva
ekki til veitir SKF góða þjón-
ustu með hraðafgreiðslur.
Kúlulegusalan hf. Suður-
landsbraut 20, Reykjavík hefur
ihaft einkaumboð fyrir SKF á
íslandi síðan 1921.
O. Ellingsen hf.
Fiskvinnsluhnífar
og dolkar
Erik Frost nú Frost Kniv-
fabrik, byrjaði árið 1891 fyrst-
ur með fjöldaframleiðslu á hin-
um óviðjafnanlegu MORA hníf-
um með innbyggðri stálþynnu,
en þessir hnífar hafa verið not-
aðir á íslandi í marga áratugi.
Frost Knivfabrik framleiðir
nú meir en 250 mismunandi
gerðir af hnífum og er dagleg
framleiðsla 10-12 þús. hnífar.
Um 70% framleiðslunnar er
flutt út til flestra fiskveiði-
þjóða. Stöðugt er verið að
reyna að gera eftirlíkingar af
þessum hnífum, en án árang-
urs.
í upphafi voru MORA hníf-
arnir seldir hingað til lands á
vegum ýmissa útlendra umboðs-
aðila, en fyrir 25 árum varð
Verzlun O. Ellingsen einkainn-
flytjandi á FROST hnífum til
íslands. Hefur sala hingað og
fjölbreytni FROST-hnífa stöð-
ugt verið að aukast síðan.
Ótrúlegt en satt er að hnífar
til fiskiðnaðarins eru hér toll-
aðir með 80% tolli og 10% inn-
flutningsgjaldi. Ekki auðveldar
það innflytjendum að fjár-
magna aukinn innflutning á
þessari nauðsynjavöru nú þeg-
ar kaupgeta innflytjenda er
stöðugt að verða erfiðari.
FV 4 1976
89