Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1976, Page 22

Frjáls verslun - 01.06.1976, Page 22
Þessi verðlisti er frá 1897. Þá var fólk byrjað að panta vörur samkvæmt slíkum lista og fá sendar í pósti. Þessi viðskiptaaðferð er enn í fullu gildi. verði sem fékkst með því að útiloka milliliði. Margs konar matvörum var bætt í vörufram- boð A & P og þótti nafnið viss trygging fyrir vönigæðum og lágu verði, sem rekja mátti til stórra og hagkvæmra innkaupa keðjuverzlananna. Þetta fyrir- tæki hóf rekstur sinn í nokkr- um stórum borgum en um alda- mótin voru verzlanir A & P komnar líka í smábæina. # Snmákaupmönnum skákaö Með tilkomu dreifingarkerf- is, er náði til landsins alls, var tilveru smákaupmannsins, slátr- arans og bakarans teflt í hættu. The National Biscuit Company varð til við samruna nokkurra bökunarfyrirtækja um alda- mótin. Það ruddi sér leið inn á þjóðarmarkaðinn með kex og annað bakkelsi. Þegar smá- verzlunin seldi tekex úr tunn- um án þess að nokkur vissi hve gamalt það væri, sendi NABISCO kexið sitt á markað innpakkað í fallegar umbúðir með gæðatryggingu áprentaðri. Birgðir voru stöðugt endurnýj- aðar til að kexið væri alltaf sem nýtt. Á þjóðarmarkaðinum verzluðu aðrir með annars kon- ar vörur á sama hátt. Þannig var um Swift and Armour, sem seldu kjötvörur. Sýnishorn af birgðum þeirra skoðuðu stjórn- skipaðir eftirlitsmenn reglulega en slátrarnir heima í bæjunum höfðu engin tök á að ná til þeirra háu herra. Vörusalan gerði æ meiri ki’öfur til tízku, hönnunar og umbúða auk verðsins. Skór voru t.d. handsmíðaðir eftir pöntun snemma á 19. öldinni. Þegar vélvæðingin varð í skógerðinni og fjöldaframleiðsla hófst, fóru skóframleiðendur að sérhæfa sig í karlmanna- og kventízku. Kostnaður minnkaði og tízkan gegndi mikilvægu hlutverki til að gera skóna seljanlega og átti það sérstaklega við um kvenskó. Sama gilti um tilbú- inn fatnað, sem neytendur gátu þakkað saumavélinni og fjölda- framleiðslu. Godey's Lady's Book, sem hóf göngu sína 1837, var fyrsta ritið sinnar tegund- ar, sem skýrði lesendum sínum meðal kvenþjóðarinnar frá síð- ustu breytingum kvenfatatízk- unnar. Fyrir 1860 var upplag þessa rits orðið 150 þús. eintök á mánuði. New York-borg varð meiriháttar miðstöð fataiðnað- arins vegna þess að eftirlíking- ar af fínu kvöldkjólunum frá París voru saumaðar á lágu verði í fataverksmiðjunum í New York og sendar á ör- skömmum tíma á markað um öll Bandaríkin. # IMýjar uppfinningar reyndar Þegar nýjar vörutegundir komu fram á sjónarsviðið í kjölfar uppfinningar og nýrrar tækni varð að sannfæra al menming um kosti þess að prófa. Thomas Edison notaði svipaðar aðferðir til að koma raflýsingarnýjung sinni á fram- færi við almenning og notaðar höfðu verið, þegar gaslýsing var kynnt fyrir fjölskyldum á einstökum heimilum. Stórverzl- anir, snekkjm', bankar og auð- kýfingaheimili urðu sýningar- staðir fyrir undur raftækninn- ar. Rafknúin tæki, sem spöruðu vinnu, tíma og rúm voru kynnt fyrir húsmæðrum og seld í framhaldi af sýnikennslu, vegna sérstakra verðtilboða og af því að þau léttu af fólki þungu fargi og fyrirhöfn. Með efnalegum samanburði við ná- granna var það dómur al- menningsálitsins, að þeir, sem ekki höfðu rafmagn á heimil- um sínum væru á eftir og toll- uðu ekki í tízkunni. Margar svipaðar söluaðferðir voru not- aðar til að vinna talsímanum þann heiðurssess í bandarísku þjóðlífi, sem hann naut fljót- lega. # Bíllinn — almenningseign Hafi rafmagnið og síminn breytt lífi Bandaríkjamanna í lok nítjándu aldarinnar, þá skapaði bíllinn ekki síður gjör- breytt viðhorf nokkrum ára- tugum síðar. Henry Ford hafði fylgzt með því hvernig frum- kvöðlarnir í bílasmíði vöktu at- hygli á framleiðslu sinni með því að selja bílana efnamönnum sem eins konar stöðutákn. Eins og aðrir reyndi Henry Ford þessa leið með bílana sína og tókst að vekja á sér athygli með kappakstri. En hann sá, að markaður fyrir tiltölulega ó- dýran bíl og traustan var mik- 22 FV 6 1976

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.