Frjáls verslun - 01.06.1976, Page 39
Haukur Eggertsson ásamt samstarfsfólki.
verðsprengingar, en þegar úr
rættist, háði of lítið húsnæði
starfsemi fyrirtækisins. S.l. ár
fluttum við hingað að Höfða-
bakka 9 og höfum þar yfir
2000 nr gólfflöt. Þá var farið
inn á nýjar brautir í fram-
leiðslunni, ýmsar nýjar vélar
teknar í notkun, en sumar af
þeim eldri lagðar til hliðar eða
hent.
Flutningar og slík endur-
bygging kostar mikið fé og fyr-
irhöfn, og kemur að sjálfsögðu
niður á rékstrinum í bili. En
nú er allt á fullri ferð að nýju,
svo að hvað verkefni áhrærir,
er útlit fyrir, að þau muni
verða nægjanleg.
F.V.: — Gætir lítilla áhrifa
af erlendri samkcppni í þessari
grein?
Haukur: — Erlend sam-
keppni gagnvart okkur er tals-
vert mikil, sérstaklega þegar
um stærri viðfangsefni er að
ræða. Okkar megin framleiðsla
er plastpokar og aðrar umbúðir
úr plastfilmum. Hvað viðkem-
ur almennum viðfangsefnum
eru hinir erlendu keppinautar
nokkuð hættir að leita á mark-
aðinn, en samt er vel fylgst
með verðum, og yfirleitt er það
Krafa, að innlendu verðin séu
lægri. En ásóknin er miklu
meiri í stóru viðfangsefnin.
Hinir erlendu aðilar hafa oft
boðið hér á verði, sem vart
mun þekkjast í þeirra heima-
landi. Þar kemur einnig til
greina, að flest af slíkum vör-
um eru án nokkurs innflutn-
ingstolls, og má þar t. d. nefna
umbúðir um útflutningsvorur
af hvaða tagi sem er, og áburð-
arsekki.
Þetta leiðir oft til þess, að
íslenzk fyrirtæki, í þessari
grein sem öðrum, verða af við-
komandi verkefnum. Alla vega
hefur það mikil áhrif á verð-
myndunina, því að hin erlendu
verð eru þá notuð til að þrýsta
hinum niður.
Mér hefur fundist skilningur
sumra hinna stærri kaupenda
ekki alltaf hafa verið nægur.
Má vera, að þar gæti að ein-
hverju vantrúar á íslenzka
framleiðslu. En þetta er þó
verulega að breytast, enda er
t. d. tæknileg samkeppnisað-
staða okkar nú allt önnur með
endurnýjuðum og fullkomnari
vélakosti.
F.V.: — Hvernig lítur sanian-
burður við svipuð fyrirtæki er-
lendis út varð'andi hráefnis-
kaup, orkukaup og aðra rekstr-
arþætti auk opinberrar fyrir-
greiðslu við ið'naðinn, sem fyr-
ir hendi er t. d. á Norðurlönd-
um?
Haukur: — Efniskaupin eru
ekki vandamál. Allir vilja
selja. Hitt er annað mál, að
seljendur plastefna eins og við
notum, eru stórir efnaiðnaðar-
hringar, sem hafa með sér sam-
stöðu um verð. Hin stóru er-
lendu umbúðafyrirtæki eiga
miklu auðveldara með að ná
hagstæðu verði, og það gerir
okkar aðstöðu erfiðari. Á því
byggjast einnig undirboðin
gagnvart minni rekstri eins og
okkar.
Undirboð, „dumping“, hafa
margsinnis átt sér stað hérlend-
is, og þar á meðal gagnvart
Plastprent. Er mér tjáð, að und-
irboðsákvæðum tollalaganna
hafi aðeins einu sinni verið
beitt hérlendis. í öðrum iðnað-
arlöndum er slíkum lögum beitt
ótæpt, ef óeðlilega er sótt að
einhverjum greinum þeirra iðn-
aðar.
Hér hefur enginn trú á þvi,
að það þýði að fara af stað með
slík mál. Óhrekjanlegar sann-
anir geta verið torsóttar, og
skaðinn þá skeður löngu áður
en að þær fengjust.
F.V.: — Margir standa í
þeirri trú að gnægð fallvatna
á Islandi geri það sjálfkrafa
að verkum, að raforka sé mjög
ódýr hér miða'ö við önn,ur lönd,
þar sem menn verða t. d. að
brenna olíu til að framleiða
rafmagn. Hver er staðreyndin í
þessu efni?
Haukur: — Skoðanir okkar
um orkumálin fara saman. ís-
land er land fallvatna og ódýrr-
ar orku, enda mundu erlendir
orkuneytendur ekki leita héi
aðstöðu, ef svo væri ekki. Hins
vegar greiðir íslenzkur fram-
leiðsluiðnaður hæstu gjöld fyrir
raforku, sem þekkjast a. m. k.
í Vestur-Evrópu.
Ég hef fengið ljósrit af raf-
magnsreikningi dansks fyrir-
tækis, sem er í sömu grein og
Plastprent. Það var fyrir olíu-
hækkunina. Þá greiddi það fyr-
ii-tæki nákvæmlega helmingi
minna fyrir eininguna en við.
Og eftir því sem ég bezt veit,
greiða þeir ennþá verulega
lægra verð, þrátt fyrir það, að
Danir verða að framleiða sína
raforku með olíu.
Og ekki bætir nú úr skák
hið svokallaða verðjöfnunar-
gjald, og síðan söluskattur á
allt saman. Mér er ljóst, að það
eru fleiri en ég, sem þurfa að
taka á öllu sínu umburðarlyndi
til að hlusta í þögn á stjórn-
FV 6 1976
39