Frjáls verslun - 01.06.1976, Síða 59
Söluskáli BP:
Bifröst í Borgarfiröi:
Reksturinn
gjörbreyttist
þegar hring
vegurinn
opnaðist
Odyr orlofsdvöl
fyrir Islendinga
Að Bifröst í Borgarfirði er nú annað árið í röð rekið orlofs-
hcimili fyrir almenning. Þar gefst fólki kostur á vikudvöl á hag-
stæðu verði og þeir, sem þess óska, geta fengið fæði á staðnuni
og afnot að allri aðstöðu, sem þar er, svo sem gufuböðum, íþrótta-
sal o. fl. Rekstur orlofsheimilis í þessari mynd er nýjung hér
á landi og ef dæma má af aðsókninni á s.I. ári og það sem af
er þessu sumri, 'þá mælist hún mjög vel fyrir.
Innarlega við Hafnarbra’utina
sem liggur í gegnum kauptúnið
stendur söluskáli BP. FV hitti
þau Hörð Júlíusson og konu
hans Sigrúnu Sæmundsdóttur
þar og voru þau önnum kafin
við að taka upp vörur og gera
klárt fyrir sumartímann.
— Við vorum innst í kaup-
túninu þegar við byrjuðum hér,
en nú erum við að verða mið-
svæðis þar sem byggðin færist
svo hratt innfyrir, sögðu þau.
Um reksturinn sögðu þau að
eftir að hringvegurinn opnaðist
gjörbreyttist þetta. Fyrsta sum-
arið var mikil umferð, en í
fyrra dreifðist það meira á árið.
Að reka slíka söluskála er orðið
ákaflega erfitt, þegar kaup og
annað er orðið svo dýrt sem
raun ber vitni. Þetta væri ekki
kleift nema vegna hversu mik-
ið þau ynnu við þetta án þess
að reikna tímann sem í það fer.
— Hér verslum við með allt
sem leyfi fæst fyrir og hægt er
að selja ferðamönnum, bensín,
sælgæti og matvörur. Hér starfa
auk okkar 2 stúlkur. Yfir sum-
arið, er unnið á þrem vöktum
og er opið til 11.30 á kvöldin
frá júníbyrjun.
Að lokum sögðu þau Hörður
og Sigrún að verst væri með
svona staði að í upphafi væru
þeir byggðir of litlir, enda ekki
gert ráð fyrir að selja anonað en
bensín og olíur, tóbak og sæl-
gæti. Nú væru komnar svo
strangar reglur að ekki mætti
selja þessar vörur út um sömu
dyr.
Það er heimavist Samvinnu-
skólans að Bifröst sem er notuð
undir orlofsheimilið í þrjá mán-
uði, þ.e. júní, júlí og ágúst, en
áður en rekstur orlofsheimilis-
ins hófst, hafði verið starfrækt
sumarhótel á staðnum í 15 ár.
Guðmundur Arnaldsson, félags-
málakennari Samvinnuskólans
átti hugmyndina að hinu nýja
rekstrarfyrirkomulagi og starf-
ar nú sem forstöðumaður orlofs-
heimilisins.
NÝTING MJÖG GÓÐ
Hann sagði í viðtali við
Frjálsa verslun að það væri
fræðsludeild SÍS sem ræki
orlofsheimilið. Þegar það kom
til tals að leggja niður hótel-
reksturinn komu fram ýmsar
hugmyndir um hvernig nota
mætti húsnæðið yfir sumar,
en hugmynd Guðmundar fékk
að lokum mest fylgi.
— Við renndum blint í sjó-
inn í fyrrasumar með orlofs-
heimilið en þetta virðist hafa
fengið góðan hljómgrunn, sem
gefur góð fyrirheit um framtíð-
ina, sagði Guðmuncur. — Nýt-
ingin í fyrra var mjög góð og
Séð heim að Bifröst í Borgarfirði.
FV 6 1976
59