Frjáls verslun - 01.06.1976, Blaðsíða 63
Nýtt hverfi í Borgamesi og nýja íþróttahúsið.
nú beðið með óþreyju eftir
árangri. Búið er að vinna mik-
ið í sambandi við tæknilegan
undirbúning hitaveitunnar og
eru miklar vonir bundnar við
hana af heimamönnum.
Leikskóli: Fyrir skömmu
hófst hér bygging leikskóla. í
þeim áfanga, sem nú er í bygg-
ingu, verður hægt að hafa 80
börn á dag í dvöl og er þá
fullnægt í bili þörfinni fyrir
slíkt húsnæði. Hægt verður
síðan að byggja við húsið, eftir
því sem þörf er á. Leikskóli
hefur verið rekinn hér í eldra
húsnæði samfellt frá árinu 1974
og hafa verið þar um 55 börn
daglega. Mikið er um það að
konur hér vinni utan heimilis
og hefur sú vinna aukist veru-
lega með tilkomu leikskólans.
Ætlunin er að nýi leikskólinn
verði tilbúinn á næsta ári.
Heilsugæslustöð: Á s.l. ári
tók hér til starfa ný heilsu-
gæslustöð og sameinuðust þá
Borgarnes og Kleppjárnsreykja-
læknishérað um rekstur henn-
ar. Við stöðina starfa þrír lækn-
ar, þrjár hjúkrunarkonur,
meinatæknir, ljósmóðir auk
annars starfsfólks. Tannlæknir
hefur þar einnig aðstöðu. Með
tilkomu heilsugæslustöðvarinn-
ar má segja að orðið hafi bylt-
ing i heilsugæslumálum í hér-
aðinu.
Gatnagerð: f sumar verður
talsvert unnið að varanlegri
gatnagerð, en þó einkum að
undirbyggingu gatna og lögn-
um. Lagning slitlags er meira
látin sitja á hakanum vegna
áformanna um hitaveitu. Hér
er búið að vinna tiltölulega mik-
ið við varanlega gatnagerð og
eru aðalgötur steyptar, en olíu-
möl lögð á íbúðagötur.
Brúin yfir Borgarfjörð: Nú
er unnið af fullum krafti að
smíði brúarinnar yfir Borgar-
fjörð. Með tilkomu hennar
styttist leiðin til Snæfellsness
og til Vestfjarða um HeydaJ um
ca 25 km og allar leiðir t.il
Norðurlands, Austfjarða og
Vestfjarða um Bröttubrekku
um rúma 7 km. Stytting vega-
lengda innan kjördæmisins og
bættar samgöngur hljóta að
hafa mikil félagsleg áhrif og
stuðla að eflingu byggða í kjör-
dæminu. Vegalengdin milli
Akraness og Borgarness stytt-
ist um nær helming, eða nær
28 km. Þetta mun hafa í för
með sér stóraukið samstarf
þessara byggðarlaga á sviði
félagsmála, heilbrigðismála,
skólamála og atvinnumála. Eng-
inn vafi er á að slíkt samstarf
getur orðið þessum byggðarlög-
um og kjördæminu öllu til
verulegra hagsbóta.
Vírnet hf.
BORGAIÍBRAUT, BORGARNESI.
Svartur galvaniseraður saumur. — Mótavír. — Bindivír. —
Girðingarlykkjur.
•
Staurar og galvanhúðun á aðsendum hlutum allt að tveim m á
lengd.
Sími 93-7296, Borgarnesi.
FV 6 1976
63