Frjáls verslun - 01.11.1976, Qupperneq 40
Matvælaframlefj&sla
Fjölbreytt framleiðsla hjá innlendum
matvælaframleiðendum
F.V. heimsækir nokkur fyrirtæki í þessari grein
íslendingar fóru sínar eigin leiðir í matvælagerð og framleiðslu fyrr á öldum. Snemma fóru þeir að
vinna úr mjólkinni osta, skyr og smjör og að herða fiskinn og þurrka kjötið, reykja það og salta.
Þá var einnig lítið um grænmeti og skortur var á korni. En tímarnir eru breyttir og öll matvæla-
framleiðsla gjörbreytt og nú eru á boðstólum allar h’ugsanlegar unnar kjötvörur, grænmeti bæði
nýtt og niðursoðið, gómsætt fuglakjöt og yfirleitt er úr nógu að velja. Aðferðir við geymslu eru
einnig gjörbreyttar því nú er allt kjöt geymt í frysti, og mörg heimili eiga einmitt frystikistur,
þó að sjálfsögðu sé kjöt enn reykt eins og gert hefur verið frá fornu fari og fáir láta hangikjötið
vanta á jólaborðið, því sá réttur hefur alltaf fylgt jólunum og er þjóðarréttur fslendinga.
Kjöt
iðnaðar-
stöð
Sambands-
ins fram-
leiðir nú
12 matar-
pyls'u-
tegundir.
Hér eru
nýfram-
leidd bjúgu
sem
síðan er
pakkað
í loft-
tæmdar
umbúðir.
Nú þegar jólin eru í nánd
fara íslendingar að hugsa um
mat og þá verða margir góð-
ir réttir á borðum. Val okk-
ar á jólamat virðist hafa breyst
á undanförnum árum, því auk
hangikjötsins er yfirleitt á
boðstólum svínakjöt s.s. reyktir
hamborgarhryggir auk hvers
konar fugla þó aðallega rjúpna,
kjúklinga, gæsa og kalkúna.
F.V. heimsótti nokkur fyrir-
tæki sem vinna að matvæla-
framleiðslu í Reykjavík og ná-
grenni til að fræðast um starf-
semi þeirra.
KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ
SAMBANDSINS FRAM-
LEIÐIR UNDIR VÖRU-
MERKINU GOÐI
Kjötiðnaðarstöð Sambandsins
hafði forystu um merkingar á
unnum kjötvörum, árið 1972
þar sem getið er pökkunardags,
verðs, vigtar og nettoþyngdar,
auk þess sem skýrt var frá sam-
setningu og næringargildi vöru-
tegundarinnar. Kjötvörur eru
settar í lofttæmdar umbúðir til
þess að koma í veg fyrir skað-
leg áhrif súrefnis í andrúms-
loftinu, sem veldur þránun fitu
og eyðileggur eðlilegan pækil-
lit vörunnar, og veita auk þess
örugga vörm, gegn óhreinindum.
Allar kjötvörur Sambandsins
eru merktar gæðastimplinum
GOÐI, en merki þetta er upp-
haflega ættað frá sænska sam-
vinnusambandinu.
KOMU Á FÓT RANN-
SÓKNARSTOFU FYRIR 20
ÁRUM
Kjötiðnaðarstöð Sambandsins
á Kirkjusandi var tekin í notk-
un árið 1972, en auk þess eru í
húsinu afurðasala Sambands-
ins, rannsöknarstofa búvöru-
deildar og tilraunaeldhús. Sam-
bandið var fyrsta kjötvinnslu-
fy.rirtækið sem kom sér upp
eigin rannsóknarstofu fyrir
u.þ.b. 20 árum.
Á rannsóknarstofunni fer
fram gerlafræðilegt og efna-
fræðilegt eftirlit og vöruþróun,
auk þess sem fylgst er með
vörulýsingu og næringargildi í
38
FV 11 1976