Frjáls verslun - 01.02.1977, Qupperneq 83
AUGLYSING
BÍLAR
SKRIFSTOFIJVÖRLR
OG BIJIXIAÐLR
JOFLR HF.:
- SKODA AMIGO -
Betri gerast bílar ekki
Jöfur hf., (Tékkmeska bif-
reiðaumboðið) er nú að hefja
innflutning á nýrri gerð Skoda
bifreiða, Skoda 105/120
„Amigo“. Skoda „Amigo“ er
arftaki hinna vinsælu Skoda
100/110, en af þeirri gerð hafa
1.800 bifreiðir verið fluttar til
landsins á undanförnum árum,
en einmitt þessi gerð var mest
sclda bifreiðin hér á landi s.l.
ár.
Nú keraur Skoda með nýja
bifreið sem ekki er aðeins gjör-
breytt í útliti, heldur uppfyllir
allar nútíma kröfur um öryggi
og þægindi í akstri, án þess þó
að breyta frá þeirri megin-
stefnu að bjóða fram bifreið
sem fy.rst og fremst er hag-
kvæm í rekstri. Slíkt er ekki
lítilsvert á tímum stöðugt
bækkandi verðlags.
Farþega- og farangursrými
hefur aukist til muna, og inn-
réttingar allar eru hannaðar
með tilliti til fyllsta öryggis og
þæginda farþeganna. Farþega-
rýmið er sérstablega styrkt en
samstæðurnar bæði aftan og
framan eru hannaðar þannig að
þær draga verulega úr höggi
við árekstur.
Vélarstærð hefur verið auk-
in nokkuð en um tvær mis-
munandi vélarstærðir er að
velja, 1.046 c.c. (rúmsm.) og
1.174 c.c., en þrátt fyrir þessa
stækkun er meðalbenzíneyðsl-
an hin sama og áður, eða að-
eins frá 7 lítrum á 100 km. til
8,6 lítra á 100 km., eftir vélar-
stærð.
Skoda „Amigo“ býður upp á
fjölmargar tækninýjungar, sem
of langt mál væri að rekja hér.
Flestar tilheyra þær auknum
öryggisráðstöfunum og má t.d.
nefna aflhemla, en hemlakerf-
ið er tvöfalt með diskahemlum
á framhjólum, og þannig
mætti lengi telja.
Hingað til lands verða flutt'
ar þrjár gerðir af Skoda Amigo,
Amigo 105, Amigo 120 L og
Amigo 120 LS en munurinn
milli þessara gerða felst í mis-
munandi vélarstærðum, inn-
réttingum og ýmsum öðrum
búnaði. Aætlað verð er kr.
880.000 fyrir AMIGO 105, kr.
950.000 fyrir AMIGO 120 L og
kr. 1.000.000 fyrir AMIGO 120
LS.
Skoda Amigo er bifreið sem
hentar öllum þörfum fjölskyld-
unna.r, 5-manna, 4-dyra, rúm-
góður, sparneytinn. Sannkall-
aður fjölskylduvinur og ein-
mitt þess vegna er hann kall-
aður „AMIGO“.
FV 2 1977
85