Frjáls verslun - 01.08.1977, Page 21
Flugfélög
Bandarísk flugfélög þau
stærstu í heirni
IVfeir en helmingur af 25 stærstu flugfélögum í heimi eru bandarísk
Margir hafa velt því fyrir
sér hvert sé stærsta flugfélag' í
heimi og hver standi því næst.
Á því leikur enginn vafi að
stærstu þrjú flugfélög í heimi
eru United Airlines, Amcrican
Airlines og Eastern Airlines,
hvaða mælikvarði sem notaður
er á stærð.
Ýmsar leiðir eru til að meta
hvað flugfélög eru stór og al-
Starfsmamnafjöldi
1. Britisfh Airways . . 51.240
2. United ............. 49.849
3. American ........... 36.080
4. TWA ................ 34.938
5. Eastern ............ 34.684
6. Air France ......... 30.884
7. Delta .............. 29.091
8. Pan Am.............. 26.813
9. Lufthansa .......... 26.451
10. JAL . ............... 20.685
11. Air Canada........ 20.556
12. Iberia .............. 20.181
13. Pakistan Intl. . . . 17.611
14. KLM ................. 16.560
15. Alitalia ............ 15.952
16. SAS ................. 15.072
17. Varig ............... 15.025
18. Indian .............. 15.000
19. Swissair ............ 14.342
20. Quantas ............. 13.179
21. Air-India ........... 11.472
22. Northwest............ 11.208
23. Braniff ............. 10.636
24. Western ............. 10.221
25. South African .... 9.914
Ath.: KLM hefur áður verið í
hópi 25 stærstu flugfélaga á
sumum sviðum, en lét ekki í té
tölur fyrir 1976.
gengast að nota fimm. atriði til
viðmiðunar. Fyrsta atriðið er
farþegafjöldi, annað er flognir
farþegakílómetrar, þriðja er
flognir tonnakílómetrar með
vörur, fjórða er fjöldi flugvéla,
og fimmta er fjöldi starfsfólks.
Að sjálfsögðu er nokkurt
misræmi á milli þessara atriða.
Svo dæmi sé tekið er Pan
American númer 17 í röðinni,
þegar miðað er við farþega-
fjölda, en númer fjögur þegar
miðað er við farþegakílómetra.
Þetta stafar af Iþví að Pan
American flýgur ekki innan-
lands í Bandaríkjunum og flýg-
ur því aðallega langar leiðir.
efu af 25 þegar miðað er við
farþegakílómetra og toinnakíló-
metra, en aðeins níu af 25 í
starfsmannafjölda.
§ United á flestar
flugvélar
Upplýsingar þessar eru
fengnar úr tímaritinu AIR
TRAFFIC W(DRLD og ná til
ársins 1976. Ýmsar fleiri upp-
lýsingar koma þar fram, svo
sem það að United Airlines á
365 flugvélar. Þar af eru 18
Jumbo Boeing 747 og 37
Douglas DC 10 breiðþotur. Þá
Fleiri starfsmenn
ríkisfélaga
Þá er lærdómsríkt að bera
saman þau tvö flugfélög, sem
hafa flest starfsfólk. British
Airways hefur flest starfsfólk,
51.200 manns, en United Air-
lines hefur 49.800 manns í
vinnu. Þrátt fyrir þetta flytur
United meira en helmingi fleiri
farþega, flýgur nærri helmingi
fleiri farþegakílómetra, hefur
fjórðungi meiri vöruflutninga
og á um helmingi fleiri flugvél-
ar. Þegar að er gáð virðist til-
hneiging til að flugfélög í rík-
iseign hafi fleiri starfsmenn en
í einkaeign.
Svo er að sjá, sem bandarísk
flugfélög 'hafi færra starfsfólk
en önnur, þegar litið er yfir
lista yfir 25 stærstu flugfélög
heims, og miðað við þau fimm
atriði, sem áður voru nefnd.
Þegar miðað er við farþega-
fjölda eru 14 af 25 stærstu
flugfélögunum bandarísk, ell-
Flugvélafjöldi
1. United ............. 365
2. Eastern ............ 245
3. American ........... 235
4. TWA ................ 233
5. British Airways .... 190
6. Delta .............. 187
7. Air Canada ......... 120
8. Northwest .......... 113
9. Pan Am . ........... 107
10. Air France........... 105
11. Lufthansa............. 93
12. Allegheny ............ 86
12. Braniff .............. 86
12. Iberia................ 86
15. All Nippon............ 81
16. Western............... 77
17. SAS .................. 73
18. Alitalia ............. 72
18. JAL .................. 72
20. Continental .......... 56
21. Dan-Air .............. 54
22. National ............. 53
22. North Central ........ 53
24. Frontier ............. 52
25. Varig................. 51
21
FV 8 1977